Íslenski boltinn

Selfoss kom tvisvar til baka og náði í stig á Akureyri

Anton Ingi Leifssno skrifar
Elfar Árni fagnar marki með Breiðabliki, en hann gekk í raðir KA fyrir tímabilið.
Elfar Árni fagnar marki með Breiðabliki, en hann gekk í raðir KA fyrir tímabilið. vísir/valli
KA og Selfoss skildu jöfn 2-2 í fyrstu deild karla í knattspyrnu í dag, en leikurinn var liður í fimmtu umferð deildarinnar.

Elfar Árni Aðalsteinsson kom KA yfir eftir þriggja mínútna leik og þannig stóðu leikar í hálfleik. Einar Ottó Antonsson jafnaði metin á 58. mínútu.

Archange Nkumu kom KA aftur yfir á 66. mínútu, en Ingþór Björgvinsson jafnaði metin fyrir Selfoss fimm mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 2-2.

KA er í öðru sætinu með ellefu stig, en Selfoss er í því áttunda með fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×