Þróttarar rúlluðu yfir Eyjamenn | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. mars 2015 11:31 Gregg Ryder tók við Þrótti haustið 2013. vísir/daníel
Óvænt úrslit urðu í Lengjubikarnum í fótbolta í gær þegar tvö Pepsi-deildar félög töpuðu fyrir 1. deildar liðum. Þróttur R. gerði sér lítið fyrir og valtaði yfir ÍBV í Egilshöllinni með fimm mörkum gegn engu. Eyjamenn, sem unnu BÍ/Bolungarvík 5-0 í síðasta leik sínum, áttu ekki roð við Þrótturum sem leika undir stjórn hins enska Gregg Ryder. Alexander Veigar Þórarinsson skoraði tvö af mörkum Þróttar og þeir Grétar Atli Grétarsson, Viktor Jónsson (víti) og Vilhjálmur Pálmason skoruðu eitt mark hver.Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan en þau koma frá SportTV. Eftir sigurinn er Þróttur í 4. sæti riðils 1 með sjö stig eftir fimm leiki. Eyjamenn eru hins vegar í 6. sæti með sex stig eftir fimm leiki. Þá vann Grótta 2-0 sigur á Fjölni í Egilshöllinni. Viktor Smári Segatta skoraði bæði mörk Gróttu sem eru nýliðar í 1. deildinni í sumar. Grótta vann þarna sinn fyrsta sigur í Lengjubikarnum í ár en Seltirningar eru í 6. sæti riðils 2 með fimm stig eftir fjóra leiki. Fjölnismenn eru í sætinu fyrir ofan með sex stig eftir fimm leiki. Grafarvogsliðið vann tvo fyrstu leiki sína í riðlinum en hefur síðan þá tapað þremur leikjum í röð.Fimm leikir fara fram í A-deild Lengjubikarsins í dag. Þeir eru sem hér segir: ÍA - Keflavík Fjarðabyggð - Valur BÍ/Bolungarvík - Víkingur Ó. Leiknir - Selfoss Þór - Grindavík
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Ýmislegt sem kom upp á: „Kornið sem fyllti mælinn“ Körfubolti Dagur og lærisveinar hans í úrslit Handbolti Segja sigurmark Portúgals ólöglegt: „Stór dómaramistök“ Handbolti Fórnaði sér fyrir strákaliðið Sport Rauðu djöflarnir áfram taplausir Fótbolti Bryðja töflur og spila á öðrum fæti fyrir Dag Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 88-76 | Valsmenn sterkari í brakinu Körfubolti Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Handbolti Fleiri fréttir KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Einbeittur brotavilji Víkinga ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð Mætti Barcelona í byrjun mánaðar en spilar með Fram í Bestu í sumar Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Þróttur fær aðra úr Árbænum Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Víkingar fá mikinn liðsstyrk Valur semur við norskan miðvörð Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Atli á leið til Víkings Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Eyþór sóttur í Fylki: „Loksins einhver að koma að leika við þig“ Nýju þjálfararnir byrjuðu á 8-0 sigri á KR Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis Sjá meira