Íslenski boltinn

Elfar Árni í KA

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elfar Árni fagnar marki fyrir Breiðablik gegn KR.
Elfar Árni fagnar marki fyrir Breiðablik gegn KR. VÍSIR/mynd
Elfar Árni Aðalsteinsson er genginn í raðir KA frá Breiðablik þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Elfar Árni gerir þriggja ára samning við Akureyrarfélagið.

Elfar, sem er uppalinn á Húsavík, skoraði 27 mörk í 104 leikjum fyrir Breiðablik. Elfar fékk slæmt höfuðhögg í leik gegn KR í Pepsi-deildinni sumarið 2013, en náði sem betur fer að jafna sig af þeim.

KA hefur krækt í þrjá sterka leikmenn fyrir átökin næsta sumar, en auk Elfars Árna eru þeir Hilmar Trausti Arnarsson og Halldór Hermann Jónsson komnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×