Eyjamaðurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson samdi við FH til fjögurra ára á þriðjudaginn, en hann kom til Hafnafjarðarliðsins frá uppeldisfélagi sínu ÍBV.
Þórarinn, sem spilað hefur allan sinn feril með ÍBV fyrir utan stutta dvöl hjá Sarpsborg í Noregi, gerði nýjan samning við Eyjamenn í byrjun árs og var samningsbundinn liðinu út næsta tímabil.
Því þurfti FH að kaupa leikmanninn af ÍBV eins og kom fram á heimasíðu FH-inga þegar félagaskiptin voru tilkynnt.
Samkvæmt heimildum íþróttadeildar borgaði FH Eyjamönnum 4,5 milljónir króna fyrir Þórarinn Inga sem hefur átt sæti í landsliðshópi Lars Lagerbäcks og Heimis Hallgrímssonar undanfarna mánuði.
Stjórnarmaður félags í Pepsi-deildinni tjáði íþróttadeild enn fremur að umboðsmaður Þórarins Inga hefði boðið honum leikmanninn fyrir sömu upphæð, en hann hafnaði boðinu.
Þórarinn Ingi kom inn í lið ÍBV 17 ára gamall árið 2007 og hefur síðan þá spilað 133 leiki og skorað 20 mörk fyrir Eyjamenn í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins.
Hann var á meðal bestu leikmanna deildarinnar 2010, 2011 og 2012 þegar ÍBV barðist um Íslandsmeistaratitilin undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, en Þórarinn olli nokkrum vonbrigðum í sumar þegar hann kom heim á miðjutímabili frá Sarpsborg.
Hann spilaði átta leiki í Pepsi-deildinni án þess að skora en safnaði sjö gulum spjöldum og fór tvívegis í leikbann.
Auk Þórarins Inga eru FH-ingar búnir að fá til sín Finn Orra Margeirsson frá Breiðabliki, tvo stóra bita á leikmannamarkaðnum.
FH borgaði 4,5 milljónir fyrir Þórarinn Inga

Tengdar fréttir

Hvernig hafa liðin staðið sig á leikmannamarkaðnum?
Fréttablaðið gaf hverju liði í Pepsi-deild karla einkunn fyrir frammistöðuna á leikmannamarkaðnum í haust.

FH keypti Þórarinn Inga
Eyjamaðurinn gerði fjögurra ára samning við FH.