Hallgrímur Mar samdi við Víking Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. október 2014 15:00 Hallgrímur með þjálfaranum Milos Milojevic og Heimi Gunnlaugssyni, varaformanni knattspyrnudeildar Víkings. Vísir/Tom
Pepsi-deildar lið Víkings er byrjað að styrkja sig fyrir átökin næsta sumar, en félagið gekk frá samningi við kantmanninn öfluga Hallgrím Mar Steingrímsson í dag. Þessi 24 ára gamli Húsvíkingur skrifaði undir þriggja ára samning við Fossvogsfélagið í Víkinni í dag, en þetta verður í fyrsta skipti sem hann spreytir sig í deild þeirra bestu. Hallgrímur Mar, sem gekk í raðir KA frá uppeldisfélagi sínu Völsungi árið 2009, hefur verið einn skæðasti sóknarmaðurinn í 1. deildinni undanfarin ár. Síðustu þrjú sumur hefur hann skorað 22 mörk í 58 leikjum og var kosinn í lið ársins af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar 2012 og aftur í ár eftir að skora níu mörk í 21 leik. Hallgrímur var samningslaus eftir tímabilið og æfði með KR fyrr í mánuðinum, en hann sagði fjögur félög berjast um sig í viðtali við fótbolti.net fyrr í vikunni. Víkingar, sem höfnuðu í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar í sumar og spila í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 23 ár á næsta tímabili, ætla sér að styrkja liðið enn frekar, að sögn HeimisGunnlaugssonar, formanns meistaraflokksráðs. Fossvogsliðið missti sinn besta mann, Aron Elís Þrándarson, í atvinnumennsku eftir tímabilið, en hann gerði þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarliðið Álasund.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tillögu Aþenu vantaði þrjú prósent til að vera tekin fyrir: Gengu út af KKÍ þinginu Körfubolti Hafþór Júlíus keppir á móti í Síberíu Sport Sjónvarpsbannið í enska boltanum pirrar prinsinn Enski boltinn Sjáðu Körfuknattleiksþingið í beinni Körfubolti Stórefast um framtíð íslenska körfuboltans ef ekkert verði gert Körfubolti Greint frá ósæmilegri hegðun í aðdraganda þings KKÍ Körfubolti Skoraði Messi þá ólöglegt mark í úrslitaleik HM í Katar? Fótbolti Englendingar gætu verið með sjö lið í Meistaradeildinni á næstu leiktíð Enski boltinn Aron verður heldur ekki með í dag Handbolti „Hefur verið draumur minn síðan ég var lítill“ Handbolti Fleiri fréttir Eyþór afgreiddi gömlu félagana í KR með sigurmarki í blálokin Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Markvörður FH fer heim til Keflavíkur Lengsta undirbúningstímabilið að klárast Alex Freyr skrópaði á æfingu á Spáni Helena Ósk tryggði Valskonum sæti í undanúrslitunum Þór/KA konur áfram í undanúrslit eftir sigur í Árbænum Tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni 55 ára Rúnar smurði hann í skeytin með bæði hægri og vinstri Valur fær manninn sem var efstur á óskalistanum Kveður Selfyssinga óvænt: „Það er synd að kveðja á þennan hátt“ Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Sjá meira