Formúla 1

Magnussen fljótastur í Bahrain

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kevin Magnussen.
Kevin Magnussen. Vísir/Getty
Daninn ungi Kevin Magnussen hjá McLaren var fljótastur allra á öðrum degi æfinga í Bahrain. Tími hans, 1:34.910 mínútur, var afgerandi fljótasti tími dagsins. Nico Hulkenberg var annar á Force India, rúmlega 1,5 sekúndu á eftir Magnussen.

Red Bull lauk 59 hringjum í dag, sem gefur jákvæð merki um að vandinn sé leystur. Heimsmeistaranum Sebastian Vettel ók í dag og tókst þá að ljúka tveimur hringjum meira en keppnisvegalengdin verður í Bahrain í ár.  

Valtteri Bottas ók Williams bíl sínum lengst allra í dag eða 116 hringi sem er rúmlega tvöföld keppnisvegalengd. Næstur á eftir honum var Fernando Alonso á Ferrari með 97 hringi.

Kevin Magnussen sagði í lok dags að hann myndi ekki láta þennan árangur stíga sér til höfuðs. Hann varar við því að lesa of mikið út úr tímum æfinga. Mercedes segir að liðið sé enn ekki farið að prófa vélina á fullum snúning.

Það enn eftir að koma í ljós hver innbyrðisstaða liðanna er. Magnussen segir að það verði ekki alveg ljóst fyrr en í Ástralíu þar sem fyrsta keppni tímabilsins fer fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×