Íslenski boltinn

Bjarni: Leikmenn KR vilja hafa pressu á sér

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta er kannski með erfiðari útivöllum til að heimsækja,“ sagði Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR , eftir að dregið hafði verið í 8-liða úrslit í Borgunarbikarnum.

KR-ingar fá það erfiða verkefni að heimsækja Eyjamenn 7. eða 8. júlí. 

„Þetta verður mjög erfiður leikur en það er stefna félagsins að vinna alla titla sem í boði eru og þetta er eitt verkefnið að því.“

„Þetta er í raun stysta leiðin að stórum titli og það hefur gengið vel hjá okkur í þessari keppni undanfarinn ár, það væri gaman að vinna þennan titil þriðja árið í röð.“

„Bikarúrslitadagurinn er virkilega skemmtilegur og við viljum gera allt til að komast í hann.“

„KR er með þannig lið að við viljum vera með mikla pressu á okkur. Þessi hópur er nægilega góður til þess að vinna alla titla.“

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Bjarna hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×