Íslenski boltinn

Andri Þór og Baldock í banni í bikarnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Andri Þór Jónsson í baráttu við Einar Loga Einarsson hjá ÍA á dögunum.
Andri Þór Jónsson í baráttu við Einar Loga Einarsson hjá ÍA á dögunum. Mynd / Vilhelm
George Baldock, miðjumaður ÍBV, og Andri Þór Jónsson, varnarmaður Fylkis, verða fjarri góðu gamni í bikarleikjum liðanna í vikunni. Kapparnir taka út leikbann í leikjum liða sinna.

Baldock var úrskurðaður í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna fjögurra gulra spjald. Baldcock er um leið fyrsti leikmaður efstu deildar karla til þess að næla sér í fjögur gul en hann hefur komið við sögu í öllum sex leikjum ÍBV á tímabilinu.

Baldock missir því af viðureign ÍBV og Víkings frá Ólafsvík á Snæfellsnesi á þriðjudaginn í næstu viku.

Andri Þór, sem rekinn var af velli með beint rautt spjald í 8-0 tapi Fylkis gegn FH síðastliðinn laugardag, var úrskurðaður í eins leiks bann.

Hann missir af bikarleik Fylkis þar sem andstæðingurinn er aftur FH. Leikur liðanna fer fram í Kaplakrika á föstudagskvöld.

Þá var Mist Edvarsdóttir, miðvörður Vals, úrskurðuð í eins leiks bann. Mist hefur þegar tekið út leikbann sitt en hún sat hjá í 2-1 sigri Vals gegn KR á mánudagskvöldið.

Leikmenn sem vikið er af velli fara sjálfkrafa í leikbann í næsta leik hið minnsta óháð skýrslu aga- og úrskurðarnefndar sem birt er á þriðjudögum. Aga- og úrskurðarnefnd getur þó ákveðið að lengja leikbannið gefi skýrsla dómara tilefnis til slíks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×