Íslenski boltinn

Mikið breyttist á aðeins sex dögum hjá FH og Fylki - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Fylkismenn slógu FH-inga út úr 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla í fótbolta í Kaplakrika í kvöld aðeins sex dögum eftir að Fylkisliðið tapaði 0-8 á sama stað í Pepsi-deildinni.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli en Fylkir vann 3-2 í vítaspyrnukeppni. Hinn 41 árs gamli Kristján Finnbogason var hetja Fylkismanna því hann varði þrjú síðustu víti FH-inga í vítakeppninni.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik FH og Fylkis á Kaplakrikavelli í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×