Íslenski boltinn

Grétar byrjar vel með Reyni - skoraði tvö í sigri á HK

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Grétar Ólafur Hjartarson.
Grétar Ólafur Hjartarson.
Grétar Ólafur Hjartarson, fyrrum framherji Grindavíkur og Keflavíkur í Pepsi-deildinni, byrjar vel með liði Reynis úr Sandgerði en 2. deild karla í fótbolta fór af stað í kvöld. Grétar skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri Reynis á HK á N1-vellinum í Sandgerði.

Grétar Ólafur skoraði fyrra markið sitt strax á 9. mínútu með hörkuskoti frá vítateig og bætti síðan við öðru marki á 25. mínútu eftir skyndisókn eftir því sem fram kemur á heimasíðu HK-inga.

Bjarki Már Sigvaldason minnkaði muninn í 2-1 á 60. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Inga Þórs Þorsteinssonar en Ingi Þór fékk síðan að líta rauða spjaldið þegar fjórtán mínútur voru eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×