Íslenski boltinn

1. deild karla á SportTV í sumar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik í 1. deild karla síðastliðið tímabil.
Úr leik í 1. deild karla síðastliðið tímabil. Mynd/HAG
Vefsíðan SportTV.is mun í sumar sýna frá leikjum í 1. deild karla. Í dag var tilkynnt að samkomulag hefði náðst á milli KSÍ og SportTV þess efnis.

Stefnt er að því að sýna einn leik í umferð í sumar auk þess að sýna markasyrpu að lokinni hverri umferð.

Keppni í 1. deildinni hefst um helgina og hefur verið ákveðið hvaða leikir verða sýndir í fyrstu umferðum mótsins.

Leikir í beinni:

lau. 12. maí. 14.00: Haukar - Tindastóll

lau. 19. maí. 14.00: Víkingur R. - ÍR

fös. 25. maí. 20.00: Þróttur R. - Leiknir R.

lau. 02. jún. 16.00: Fjölnir - KA

lau. 09. jún. 14.00: Haukar - Leiknir R.

lau. 16. jun. 14.00: Þróttur R. - BÍ/Bolungarvík

fim. 21. jun. 20.00: KA - Þór




Fleiri fréttir

Sjá meira


×