Íslenski boltinn

Stelpurnar okkar á fullri ferð í Go-kart í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stelpurnar á æfingu.
Stelpurnar á æfingu. Mynd/Anton
Íslenska kvennalandsliðið mætir Belgíu í undankeppni EM 2013 á Laugardalsvellinum á morgun og liðið hefur verið að undirbúa sig fyrir leikinn frá því að stelpurnar unnu 3-1 sigur á Noregi á laugardaginn.

Stelpurnar halda fast í þá hefð að brjóta upp þennan svokallaða hefðbundna undirbúning og í frétt á heimasíðu KSÍ kemur fram að íslenski hópurinn hafi skellt sér í Go-kart í dag.

„Í ljós kom að í hópnum leyndust hin mestu ökufól og átti það ekki hvað síst við um ákveðna starfsmenn liðsins. Reyndist þetta ágætis leið til að losa um spennu enda ákaflega spennandi og þýðingarmikill leikur framundan," segir í frétt á heimasíðu KSÍ í dag.

Mynd/Heimasíða KSÍ
Miðasala á Ísland-Belgía er í fullum gangi á www.midi.is og kostar 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn, 16 ára og yngri. Leikurinn hefst á Laugardalsvelli kl. 19:30 á morgun og á heimasíðu KSÍ eru landsmenn hvattir til þess að fjölmenna á völlinn en fínu síðsumarsveðri er spáð annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×