Fótbolti

Ísland 1 vann Opna Norðurlandamótið - Ísland 2 lenti í 4. sæti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd / UEFa.com
Lið 1 hjá u-17 landsliðið Íslands vann í dag Opna Norðurlandamótið í knattspyrnu sem fram fer á Akureyri eftir 1-0 sigur gegn Dönum í úrslitaleiknum sjálfum. Ævar Ingi Jóhannesson skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega tuttugu mínútna leik.

Lið 2 hjá okkur Íslendingum tapaði, 2-1, fyrir Noregi í leiknum um bronsið á mótinu. Markalaust var eftir fyrstu 45 mínúturnar í þeim leik, en íslenska liðið komst yfir í byrjun síðari hálfleiks.

Gestirnir gerðu síðan tvö mörk og gerðu útum leikinn. Samúel Kári Friðjónsson gerði eina mark íslenska liðsins í dag.

Englendingar unnu Finna, 3-2, í leik um fimmta sæti á mótinu og Svíar höfnuðu í sjöunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×