Skaðabótamál gegn fyrrverandi stjórnendum Landsbankans í bígerð Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 22. ágúst 2010 18:30
Tvö skaðabótamál slitastjórnar Landsbankans gegn fyrrverandi stjórnendum bankans eru á leið til dómstóla. Skaðabótakröfurnar í málunum skipta tugum milljarða, en ítrasta krafan í stærra málinu nemur um 20 milljörðum króna. Slitastjórn Landsbankans gaf það út í fréttum okkar í vor að hún væri að kanna skaðabótaskyldu fyrrverandi eigenda og stjórnenda. Slitastjórnin og skilanefndin fengu til liðs við sig sérfræðiteymi á vegum Deloitte í Bretlandi til að rannsaka starfsemi bankans í aðdraganda hrunsins. Í kjölfarið tilkynnti slitastjórnin 11 tilvik, samtals að fjárhæð 250 milljörðum króna, til breskrar tryggingarmiðlunar þar sem stjórnendur eru taldir hafa bakað bankanum tjón með athafnaleysi sínu eða athöfnum og þar með valdið kröfuhöfum bankans tjóni. Bankinn var tryggður gegn slíku hjá miðluninni fyrir 50 milljónum evra eða sem samsvarar um 7 og hálfum milljarði íslenskra króna. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru tvö þessara mála langt á veg komin og styttist í að slitastjórnin leggi fram stefnu í þeim. Skaðabótakröfurnar hljóða upp á tugi milljarða króna, en krafan í stærra málinu nemur um 20 milljörðum króna. Hafa verður í huga að um ítrustu kröfur er að ræða og því allsendis óvíst hvað skilar sér á endanum í búið vinnist málin. Gera má ráð fyrir að kröfuhöfum verði kynnt staða mála á kröfuhafafundi á morgun.
Skroll-Viðskipti Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira