Körfubolti

Jón Arnór næst stigahæstur í sigurleik Benetton

Jón Arnór í leik með KR nú í vetur.
Jón Arnór í leik með KR nú í vetur. Mynd/Vilhelm

Jón Arnór Stefánsson skoraði fjórtán stig þegar að lið hans, Benetton Treviso, vann átján stiga sigur á Bologna í fjórðungsúrslitum úrslitakeppni ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Treviso tók þar með 2-1 forystu í einvígi liðanna.

Jón Arnór var sem fyrr í byrjunarliði Treviso í kvöld og lék í alls 28 mínútur í leiknum. Hann setti niður þrjá þrista í leiknum, tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Í umfjöllun á heimasíðu ítalska körfuboltasambandsins segir að Jón Arnór hafi verið annar lykilmanna Benetton í sigri liðsins í kvöld.

Sigurvegarinn í einvíginu mætir meisturunum í Montepaschi Siena sem sópaði Scavolini Spar Pesaro úr sinni viðureign í fjórðungsúrslitunum, 3-0.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×