Fundið fé í útflutningi gamalla trukka Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. febrúar 2009 00:01 Gamlir trukkar á útleið. Hjá Jötunn Vélum á Selfossi má sjá röð gamalla vörubíla bíða þess að verða fluttir úr landi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir jafnframt mikið flutt út af dráttarvélum til Póllands. Þá hefur aukist eftirspurn eftir notuðum vinnuvélum á markaði hér innanlands. Markaðurinn/ÓKÁ
Útflutningur notaðra vinnuvéla hefur stóraukist vegna veikingar krónunnar. Gamlir trukkar sem áður fengust fyrir þrjú til fjögur hundruð þúsund krónur hafa síðan í haust skilað eigendum sínum nú sex til átta hundruð þúsund krónum í söluhagnað. Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötunn Véla á Selfossi, segir fyrirtækið í samstarfi við erlenda kaupendur, en útflutningurinn skiptist í raun í tvennt. Vörubílar séu einna helst sendir til Íraks, Líbanons og Benín í Afríku. „Síðan höfum við verið að kaupa aðeins af traktorsgröfum og öðrum vinnuvélum. Þær hafa mest farið til Evrópu, þótt eitthvað hafi líka selst til Líbanon og til Suður-Ameríku. Hvað hinn hlutinn varðar, sem snýr að landbúnaðinum, þá höfum við mest verið að selja dráttarvélar til Póllands og eitthvað til Danmerkur." Vélarnar segir Finnbogi að fyrirtækið kaupi af viðskiptavinum fyrirtækisins, bændum og minni verktökum og flytji svo úr landi. „Við byrjuðum fyrir um þremur árum á þessum útflutningi dráttarvéla til Austur-Evrópu," segir Finnbogi en fyrirtækið er jafnframt með starfsemi á tveimur stöðum í Danmörku. „Svo þegar tók að hægjast í þjóðfélaginu hér jókst áherslan á þennan þátt starfseminnar." Finnbogi bendir á að fyrir þessum þremur árum hafi 4.000 evru-verð fyrir tæki farið úr því að vera um 360 þúsund krónur í 600 til 800 þúsund. „Sama gildir um vörubílana," segir hann en elstu vörubílarnir sem fyrirtækið hefur keypt til útflutnings eru frá árinu 1960. „Eigendurnir eru að fá í vasann til sín 100 til 200 þúsund krónur fyrir elstu bílana og þessir gömlu kúlubensar, allt til 1980 eru að leggja sig á 300 til 400 þúsund. Og þetta eru kannski tæki sem hafa bara staðið einhvers staðar á bak við hús, þannig að það eru tækifæri í kreppunni," segir Finnbogi, en á um leið von á að úr þessum viðskiptum dragi þegar krónan taki að styrkjast á ný. Í fyrra flutti Jötunn Vélar úr landi nálægt því 100 dráttarvélar og hafa keypt um 40 vörubíla í heildina og nálægt því 20 vinnuvélar. „Og við erum í þessu á fullu enn þá," segir Finnbogi, sem ekki óttast að hér verði tækjaskortur þegar hjól atvinnulífsins taki að snúast á ný. „Við munum tæpast þurfa að hafa það á samviskunni því mest eru þetta bílar sem staðið hafa á bak við hús til fjölda ára og eru bara fundið fé við þessar aðstæður. En svo hefur náttúrlega mikið verið flutt út af nýlegum bílum á vegum fjármögnunarfyrirtækjanna. Ég held samt tæpast að við verðum tækjalaus. Þegar hjólin fara að snúast aftur og vantar bíla getur viðkomandi verið betur settur með að kaupa bíl á milljón sem hentar honum þá, en með því að geyma bíl sem hann fengi milljón fyrir núna, en óvíst er að henti honum síðar."
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Sjá meira