Tökum upp Bandaríkjadal 8. apríl 2009 05:00 Taka þarf upp alþjóðlega, gjaldgenga mynt sem lögeyri á Íslandi hið fyrsta svo milliríkjaviðskipti geti átt sér stað með eðlilegum, óþvinguðum og óheftum hætti. Ísland þarf að vera opið og frjálst til þess að skapa skilyrði til verðmætasköpunar. Því miður er þróunin í þveröfuga átt og er þar einkum um að kenna tilraunum til þess að halda íslensku krónunni við í skjóli strangra gjaldeyrishafta. Nokkuð breið samstaða virðist ríkja í íslensku samfélagi um að heppilegt væri að taka upp nýjan gjaldmiðil og því er mikilvægt að stjórnvöld, hvernig sem þau eru skipuð, grípi til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til þess að svo megi verða. Vandi þjóðarinnar er ærinn og þarfnast úrlausnar strax. Fyrirtækin geta ekki þrifist til lengdar undir oki gjaldeyrishafta og erfitt er fyrir ný fyrirtæki að hasla sér völl við þær aðstæður. Vandinn vex með hverjum degi sem núverandi ástand varir. Yrði afráðið að taka upp evru með aðild að myntbandalagi Evrópu þyrfti að uppfylla svokölluð Maastricht-skilyrði sem kveða á um ýmis atriði, sem snerta til dæmis skuldastöðu hins opinbera, fjárlagahalla og vaxtastig. Á næstu árum á Íslandi verður mjög erfitt eða ómögulegt að uppfylla þau skilyrði, og því myndi evran langt því frá leysa þann vanda sem nú steðjar að íslenska hagkerfinu. Haftakrónan mun leiða íslenska þjóð langt aftur í tímann áður en upptaka evru væri möguleg með aðild að myntbandalagi Evrópu. Þetta þurfum við að horfast í augu við. AGS og upptaka BandaríkjadalsStjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna samþykkti í vikunni ályktun þess efnis að nú þegar verði hafið samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að taka upp Bandaríkjadal í viðskiptum á Íslandi. Nýleg dæmi eru þess efnis að sjóðurinn hafi aðstoðað þjóðir við slíkar aðgerðir - hví ætti hann ekki að hjálpa Íslandi? Í kvöldfréttum sjónvarps í liðinni viku sagðist fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa lagt nokkrar leiðir til við íslensk stjórnvöld til að bæta úr stöðunni sem upp væri komin vegna hriplekra gjaldeyrishafta. Áhugavert væri að vita hvað fastafulltrúinn hafði í huga annað en hert höft, sem gera notkun á íslensku krónunni nánast óheimila. Tvöfalt gengiNýsamþykkt gjaldeyrishöft, sem meðal annars banna útflytjendum að kaupa krónur í erlendum bönkum til heimflutnings, undirstrika hversu vonlaus staðan í gjaldeyrismálum Íslandi er. Á meðan gengi gjaldmiðilsins fær ekki að ráðast á markaði munu stjórnvöld þurfa að grípa til sífellt harðari aðgerða til þess að verja gervigengið í Seðlabankanum. Þær aðgerðir fela annars vegar í sér höft og hins vegar fjárútlát, vegna þess að Seðlabankinn þarf að niðurgreiða íslensku krónuna á innlendum markaði til að halda genginu of háu. Krónan er síðan skráð mun lægra erlendis. Mismunurinn sem verður til milli þessara tveggja fölsku gengisskráninga er síðan sóun eða tjón. 100 þúsund á mannSamkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands hefur gjaldeyrisforði hans skroppið umtalsvert saman á síðustu mánuðum. Stærstur hluti þeirrar minnkunar er vegna styrkingar krónunnar samkvæmt útreikningum Seðlabankans. En sé leiðrétt fyrir gengisstyrkingunni má áætla að Seðlabankinn noti 2-4 milljarða á mánuði í að kaupa krónur. Haldi þetta út heilt ár lætur nærri að kostnaðurinn við þessar æfingar nemi á bilinu 100-150 þúsund krónur á hvern Íslending. Þá má geta þess til samanburðar að tekjuskattshækkanatillögur VG myndu skila 4-7 milljörðum á ári í ríkiskassann og myndu því duga í tvo til þrjá mánuði til þess að halda gervigenginu uppi. Upptaka Bandaríkjadals á Íslandi gæti lagt grundvöll að endurreisn landsins án þess dragbíts sem haftakrónan er. Dalurinn myndi leysa gjaldeyrisvandamálið strax, en ekki eftir nokkur ár eins og innganga í myntbandalag Evrópu myndi gera. Ennfremur er ljóst að afnám haftakrónunnar og upptaka Bandaríkjadals gera Íslandi auðveldara að uppfylla Maastricht-skilyrðin og ætti þessi leið því að vera fagnaðarefni fyrir þá sem hafa áhuga á því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórlindur Kjartansson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar