Innlent

Auglýsir eftir þingmönnum

Ástþór Magnússon
Ástþór Magnússon

Lýðræðishreyfingin undir forystu Ástþórs Magnússonar hefur auglýst stöður þingmanna og ráðherra laustar til umsóknar. Í tilkynningu frá hreyfingunni segir að stöðurnar séu auglýstar á vefsíðunni xp.is. Þar kemur einnig fram að launakjör séu frá 600.000 krónum á mánuði auk ýmissa fríðinda. Eftir að hafa árangurslaust reynt að ná sambandi við fólk í atvinnuleit í gegnum atvinnumiðlun Vinnumálastofnunar voru störf á vegum Lýðræðishreyfingarinnar auglýstar á vefnum job.is að því er kemur fram í tilkynningunni.

„Ekki einn einasti umsækjandi mætti í atvinnuviðtal frá vinnumiðlun Vinnumálastofnunar þegar þar var leitað eftir fólki til ýmissa starfa á nýjum fjölmiðli Lýðvarpinu FM100.5 og frettavakt.is. Annaðhvort eru tölur um 18000 manns á atvinnuleysisskrá stórýktar eða skrifræði hefur kaffært Vinnumálastofnun með þeim hætti að starfsfólkið snýst um sjálft sig án þess að senda atvinnulausum upplýsingar um lausar stöður með skilmerkum hætti."

Þá segir að nokkur sæti séu enn laus á framboðslistum XP persónukjöri Lýðræðishreyfingarinnar í kjördæmum landsins. Nýtt rafrænt Alþingi sem kynnt er á vefnum xp.is muni hjálpa nýliðum að takast á við verkefnin á Alþingi eftir kosningar á nánum tengslum við þjóðina.

„XP er eina framboðið sem býður fram óraðaða lista, persónukjör og beint lýðræði í komandi kosningum. XP er að fá slíkan meðbyr og stuðning í grasrótinni að nánast annar hver maður sem beðinn er um það skrifar undir meðmælalista og búið er að safna öllu meðmælendum í báðum kjördæmum í Reykjavík og verið að klára landsbyggðina. Í skoðanakönnun á vefnum xp.is vilja 70.9% aðspurðra beint og milliliðalaust lýðræði."

Sækja má um stöður þingmanna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×