Greiðsluafkoma ríkissjóðs jákvæð um 23 milljarða 4. janúar 2007 14:05
Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs jókst um 52 milljarða krónur á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs. Þetta er 30,1 milljarði hagstæðari niðurstaða en á sama tíma árið áður. Tekjur hækkuðu um 34 milljarða krónur á tímabilinu miðað við síðasta ár ef undan er skilin salan á Landssímanum. Gjöld hækka hins vegar um 5 milljarða krónur á milli ára. Þetta merkir að greiðsluafkoma ríkissjóðs var jákvæð um rúma 23 milljarða krónur á fyrstu ellefu mánuðum ársins samanborið við 11,4 milljarða árið áður. Í Vefriti Fjármálaráðuneytisins, sem kom út í dag, kemur fram að tekjur ríkissjóðs námu 339 milljörðum króna frá janúar til nóvember á síðasta ári sem er 22 milljarða króna samdráttur á milli ára. Munar þar um 57 milljarða króna söluhagnað af sölu á Landssímanum árið áður. Sé litið fram hjá honum jukust heildartekjur á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs um 34 milljarða krónur eða 11,3 prósent. Skatttekjur og tryggingagjöld jukust um 12,9 prósent að nafnvirði eða 5,9 prósent umfram verðbólgu. Skattar á tekjur og hagnað námu 107 milljörðum króna á tímabilinu í fyrra en það er 20 prósenta aukning frá sama tíma árið áður. Innheimt tryggingagjöld jukust um 16 prósent milli ára en innheimta eignarskatta nam 8,3 milljörðum króna. Innheimta stimpilgjalda fellur þar undir. Innheimta skatta á vöru og þjónustu (svokallaðir veltuskattar) nam 160 milljörðum króna en það er 5,9 prósenta aukning að raunvirði. Greidd gjöld námu 285 milljörðum króna á tímabilinu en það er 5 milljörðum meira en á sama tíma á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2005. Þá nema lántökur á tímabilinu 21,6 milljörðum króna í fyrra en afborganir lána námu 44,6 milljörðum króna. Mismunurinn er fjármagnaður með handbæru fé frá rekstri. Greiddir voru 3,7 milljarðar til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs, að því er segir í Vefriti Fjármálaráðuneytisins. Vefur Fjármálaráðuneytis
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira