Sport

Rooney lenti í ryskingum við leikmann Blackburn

Wayne Rooney
Wayne Rooney NordicPhotos/GettyImages

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að skaphundurinn Wayne Rooney hjá Manchester United hafi lent í ryskingum við Michael Gray, leikmann Blackburn, á veitingastað í Manchester um helgina.

Talsmaður Rooney segir að Gray hafi haft afskipti af Rooney og föruneyti hans á veitingastaðnum og byrjað með leiðindi, með þeim afleiðingum að knattspyrnumennirnir lentu í ryskingum. Atvikið var ekki tilkynnt til lögreglu og segir talsmaður Rooney að málinu sé lokið af sinni hálfu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×