Sýning í Nýlistasafninu 10. ágúst 2006 15:30 Verk eftir Toshinaro Sato frá Japan
Laugardaginn 12. ágúst kl:16:00 opna nokkrir listamenn frá ýmsum löndum sýningar sínar í Nýlistasafninu. Pétur Már Gunnarsson frá Íslandi , Johann Maheut frá Frakklandi og Toshinaro Sato frá Japan standa saman að sýningunni Sögur neðan jarðar. Með hliðsjón af landfræðilegri og menningarlegri legu Íslands, samtímis á mörkum og í fararbroddi listasenunnar, verða hugtökin ,,mæri" og ,,þröskuldur", ,,rammi" og ,,yfirborð" kölluð á teppið og þau borin saman við framsetningu og skynjun. Það þarf aðeins að taka örfá skref í viðbót til að standa samhliða afskræmdum einfaldleika samhverfa Péturs Más Gunnarssonar, en þá þyrfti líka að grípa fyrir augun í öllum þeim kröppu beygjum sem Johann Maheut býður upp á í verkum sínum, sem stundum felast og stundum laumast á braut.... Jafnframt þessu sýnir Toshinari Sato röð ljósmynda sem teknar eru víðsvegar um heiminn: fyrirmyndin leysist upp í ljós og liti, fyrirbæri sem kalla má sam-mannleg, og eru algjörlega sneyddar vísbendingum um hvar myndatakan átti sér stað. Gestum er boðið að feta þennan slóða eins og línudansari frá einum skilaboðum til annarra. Annar hluti sýningarinnar mun fara fram í Frakklandi 2007 og munu þá fleiri íslenskir listamenn slást með í förina. Pétur Már Gunnarsson hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hann stundaði nám við Listaháskóla Íslands og við Listaakademíuna í Vínarborg. Um skeið var hann stjórnarformaður Nýlistasafnsins. Johan Maheut starfar í París og hefur sýnt víða um heim. Hann vinnur fyrst og fremst með innsetningar og ljósmyndir. Toshinari Sato stundaði nám við listaháskólann í Tókýó og við listaháskólann í Grenoble í Frakklandi. Hann hefur sýnt víða um heim og nú síðast í MASATAKA HAYAKAWA galleríinu í Tókíó. Sýning þeirra stendur til 3. september
Lífið Menning Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fleiri fréttir Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Sjá meira