Gengi hlutabréfa lækkaði í Japan 24. apríl 2006 10:05 Mynd/AFP
Gengi hlutabréfabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 2,8 prósent og er það mesta lækkun vísitölunnar á einum degi síðan í janúar á þessu ári. 18. janúar sl. lækkaði vísitalan um 2,9 prósent. Vísitalan lækkaði um 489,56 punkta og stendur nú í 16.914,40 stigum. Ástæðan fyrir lækkuninni er hækkun olíuverðs og hærra gengi jensins, gjaldmiðils Japana. Þá eru fjárfestar sagðir halda að sér höndum en þeir bíða afkomutalna fyrirtækja, sem koma út síðar í vikunni. Gengi bréfa bílaframleiðendanna Honda Motor Co og Toyota Motor Corp. lækkuðu mest. Bréf Honda lækkuðu um 3,69 prósent en Toyota um 2,75 prósent. Þá lækkaði gengi bréfa í hátæknifyrirtækinu Sony Corp. sömuleiðis um 2,93 prósent en bréf í Canon Inc. um 2,04 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira