Í ólgusjó bandarískra hlutabréfa 13. október 2005 19:33 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, móðurfélags deCODE genetics, var kátur á miðvikudagsmorgun í New York þegar hann opnaði Nasdaq-markaðinn fyrstur Íslendinga. Tilefnið var að fimm ár eru liðin frá því að félagið var skráð á markað ytra. Er það fyrsta og eina fyrirtækið sem það hefur gert. Síðan fyrir fimm árum hefur rekstrarumhverfi líftæknifyrirtækja gjörbreyst. Sú bjartsýni sem ríkti meðal fjárfesta í garð þessara fyrirtækja er horfin að mestu leyti en mikill taprekstur hefur einkennt geirann. Áður en deCODE var skráð hafði nýtt hlutafé verið boðið út fyrir sautján milljarða króna á genginu átján dalir á hlut. Lokagengi fyrsta viðskiptadags hjá fyrirtækinu var 25,44 dalir á hlut. Síðan hefur verð á hlutabréfum í félaginu fallið um sextíu prósent og er nú rétt undir tíu dölum. Í samanburði við önnur líftæknifyrirtæki hefur deCODE þó spjarað sig vel. Transgenomic er líftæknifyrirtæki sem var skráð á Nasdaq sama dag og deCODE og var lokagengi þess fyrsta daginn um 24 dalir á hvern hlut. Gengi þess hefur á þessum fimm árum fallið um 95 prósent og er komið undir einn dal. Árið 2003 var sérlega hagstætt fyrir hluthafa fyrirtækisins. Félagið hækkaði um 350 prósent frá byrjun árs til ársloka. Síðasta eina og hálfa árið hefur verðið veriðað sveiflast eins og oft áður frá genginu fimm til tíu. Frá áramótum er hækkunin 22 prósent en sá sem keypti hlut í deCODE í byrjun apríl hefur náð um sjötíu prósent ávöxtun. Markaðsvirði deCODE stendur nú í 34 milljörðum króna sem er svipað og verðmæti FL Group þar sem Hannes Smárason, fyrrum aðstoðarforstjóri deCODE, ræður ríkjum. Fjárfestar þurfa því að vera kjarkaðir til þess að ráðast í fjárfestingu í deCODE, enda um áhættufjárfestinu að ræða. Bréfin hækka og lækka hratt.Enginn dvergmarkaður Margir hafa eflaust velt fyrir sér af hverju Kári og félagar ákváðu að skrá fyrirtækið í Bandaríkjunum en ekki á Íslandi. Kröfurnar þar í landi eru gríðarlegar til skráðra fyrirtækja og samkeppnin um fjármagn mikil. Á Íslandi virðist vera lítið mál að reka fyrirtæki sem skráð er á markað og skiptir engu máli hvaða fréttir berast; hlutabréfaverð hækkar. Á það við þegar sex stjórnarmenn segja af sér og reynsla hverfur úr stjórnun félags eins og gerðist í tilviki FL Group nýlega. Ekki skiptir heldur máli þótt upplýsingagjöf sé ábótavant eða grunur um meintan upplýsingaleka sé óupplýstur, eins og í tilviki Icelandic Group, SÍF og Actavis. Vissulega er mikil einföldum að segja að íslenski hlutabréfamarkaðurinn fari bara upp en ekki niður sama hvað gengur á. Kári sagði í samtali við Fréttablaðið á fimmtudaginn að Ísland væri dvergmarkaður í samanburði við þann bandaríska. Forréttindi væri að starfa í fyrirtæki sem skráð væri á Nasdaq-markaðinn og viðskiptaumhverfið væri með allt öðrum hætti. Þetta væri harðari heimur og ekki alltaf dans á rósum. Um leið væri umhverfið hvetjandi, veitti aðhald og krefðist þess að allir leggðu sig fram við að skapa gott og framsækið fyrirtæki. Með skráningu á Nasdaq fengi deCODE aðgang að peningum, erlendir greiningaraðilar fjölluðu um fyrirtækið og skoðuðu það á gagnrýninn hátt og bandaríska fjármálaeftirlitið tryggði ákveðinn trúverðugleika. "Það er mikilvægt atriði fyrir rekstur fyrirtækis og fyrir það er ég þakklátur," sagði Kári. Hann sagði þetta hafa verið mikla ævintýraför, spurður um það hvað stæði uppúr síðustu fimm ár. Gaman væri að horfa til baka frá því að fyrirtækið var stofnað fyrir níu árum. Sambærileg fyrirtæki, sem voru stofnuð á svipuðum tíma, væru ekki lengur starfandi. Fyrst fyrirtækja hefði deCODE náð að einangra meingen og í kjölfarið þróað lyf sem nú væri í klínískum prófunum.Taprekstur öll árin Eins og áður var getið hefur sagan undanfarin fimm ár ekki verið dans á rósum. Mikill taprekstur hefur einkennt öll rekstrarár deCODE og hefur - ef eitthvað er - aukist síðustu misserin. Stjórnendur félagsins hafa þó oftast verið bjartsýnir og stæra sig ávallt af áföngum, sem og áfangagreiðslum með reglulegu millibili. Á síðasta ári nam tapið 57,3 milljónum Bandaríkjadala eða um 3,5 milljörðum króna samanborið við 35 milljarða dala tap árið áður. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs nam tapið tæpum einum milljarði króna sem var umfram áætlanir stjórnenda. Tekjur voru einnig undir markmiðum. Gengi félagsins ræðst þó líklega meira af sveiflum á gengi líftæknifyrirtækja almennt en eigin rekstraráföngum. Einnig hafa jákvæðar fréttir borist frá fyrirtækinu af ýmis konar byltingum á sviði læknisrannsókna sem vega upp á móti sífelldum taprekstri. Þó er full ástæða til að fylgjast með framgangi fyrirtækisins í náinni framtíð. Lyfjaþróun , sem byggð er á erfðarannsóknum, er vaxandi þáttur í starfsemi þess. Tilkynnt var í vikunni um þrjá nýja starfsmenn á þessu sviði sem hafa mikla reynslu af slíkri vinnu. Ef árangur næst í þessu starfi verður vöxtur deCODE ævintýralegur. Eins og svo oft gildir um fjárfestingar sem fela í sér mikla áhættu er vonin um mikla ávöxtun mikil. Aðhald Nasdaq-markaðarins mun sjá til þess að Kári haldi sínu starfsfólki vel við efnið svo deCODE sigli áfram á ólgusjó bandaríska hlutabréfamarkaðarins en sökkvi ekki.Björgvin Guðmundsson -bjorgvin@frettabladid.is Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Björgvin Guðmundsson Í brennidepli Mest lesið Rangfærslur Viðskiptaráðs Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Minnihlutinn sem skilur ekki að hann er í minnihluta Þórður Snær Júlíusson Skoðun Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Heiðar Róbert Birnuson Skoðun Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson Skoðun Hvers vegna gera þau það ekki fyrst sjálf? Tómas Ragnarz Skoðun Ofurlaun fyrir leikskólakennara Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir Skoðun Kvenréttindafélag Íslands viðhefur ósmekklegt persónuníð Huginn Þór Grétarsson Skoðun Hversu oft þarf að kveikja í? Olga Cilia Skoðun Hunsa eigin þekkingu og stefna á stórslys Björn Ólafsson Skoðun Frítt Elliði Vignisson Skoðun Skoðun Skoðun Friðarráð Eleanor Roosevelt lýsir okkur enn Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Frítt Elliði Vignisson skrifar Skoðun Vaxandi álag á fagfólk innan velferðarþjónustu Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Kvenréttindafélag Íslands viðhefur ósmekklegt persónuníð Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Kemst ég örugglega út? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Ofurlaun fyrir leikskólakennara Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Sagði seðlabankastjóri Alþingi ósatt? Örn Karlsson skrifar Skoðun Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Heiðar Róbert Birnuson skrifar Skoðun Bakkakot er ekki frávik. Þetta er kerfi sem brást Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Hversu oft þarf að kveikja í? Olga Cilia skrifar Skoðun Góðan daginn, hvernig hefur þú það? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Money Heaven og týndu börnin okkar Davíð Bergmann skrifar Skoðun Svifryk borgarinnar er ekki slys – það er afleiðing stefnu Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Ég býð þingmönnum og verkalýðsforkálfum í námsferð Róbert Björnsson skrifar Skoðun Veljum vistvænar samgöngur Finnur Ricart Andrason skrifar Skoðun Sterk rödd Íslands skiptir máli Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Minnihlutinn sem skilur ekki að hann er í minnihluta Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hunsa eigin þekkingu og stefna á stórslys Björn Ólafsson skrifar Skoðun Lausn við svifryki Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Ekki úr lausu lofti gripinn, Daði Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin… Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvers vegna gera þau það ekki fyrst sjálf? Tómas Ragnarz skrifar Skoðun Ég brenn (út) fyrir menntakerfinu Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Að „fara í ræturnar“, val Samfylkingarinnar í Reykjavík við skipan á framboðslista Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar Skoðun Hugrekki krefst nafns – nafnleynd krefst einskis Liv Åse Skarstad skrifar Skoðun Jafnara aðgengi að Frístundastyrk í Reykjavík Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Er verið að bregðast brotaþolum kynferðisofbeldis? Brynhildur Yrsa Valkyrja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Vilt þú vita hvað hönnun í raun þýðir og hvað hún gerir? Sigríður Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Að „fara í ræturnar“, val Samfylkingarinnar í Reykjavík við skipan á framboðslista Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar
Skoðun Er verið að bregðast brotaþolum kynferðisofbeldis? Brynhildur Yrsa Valkyrja Guðmundsdóttir skrifar