Molar dagsins í NBA 3. maí 2005 00:01 NordicPhotos/GettyImages
Heimildir herma að nýliði Chicago Bulls, Ben Gordon, verði valinn besti varamaður deildarinnar á næstu dögum. Gordon hefur verið frábær með liði Chicago í vetur og reyndist liði sínu mikilvægur undir lokin í fjölmörgum leikjum. Gordon er sagður muni hljóta titilinn "besti sjötti maður deildarinnar" og muni hafa naumlega betur en Ricky Davis hjá Boston, í þessu árlega kjöri. Áður er búið að velja Bobby Simmons hjá Los Angeles Clippers framfarakóng deildarinnar og þá hefur verið tilkynnt að miðherji Detroit Pistons, Ben Wallace, var valinn besti varnarmaður deildarinnar í þriðja skipti á ferlinum. Anthony sektaður. Carmelo Anthony, leikmaður Denver var sektaður um 7500 dollara fyrir að hrinda Manu Ginobili hjá San Antonio Spurs í leik liðanna á laugardaginn. "Mér finnst þetta nú dálítið há sekt fyrir smá hrindingu. Ég er ekki vanur að gera svona lagað. Ég mun áfrýja þessu," sagði leikmaðurinn hissa. Kwame Brown illt í maganum. Framherjinn Kwame Brown gat ekki leikið með liði sínu Washington Wizards í fjórða leiknum gegn Chicago Bulls á mánudagskvöldið og bar við magakveisu. Brown hefur ekki skorað körfu í einvíginu síðan í fyrsta leiknum og hefur verið býsna dapur síðan. Arenas býður upp á bjór. Gilbert Arenas, leikmaður Washington heldur vanalega upp á sigra liðsins á heimavelli með því að kasta treyju sinni til áhorfenda, en eftir að Wizards náðu að jafna metin í einvíginu við Bulls, segist hann vera í skapi til að gera meira fyrir aðdáendur sína. "Það er ljóst að þetta verða að minnsta kosti sex leikir svo að við eigum eftir að spila aftur hér á heimavelli, þannig að ég er að hugsa um að bjóða öllum upp á bjór ef við vinnum," sagði Arenas, sem varla hefur kynnt sér verðlagið í höllinni, því umgangur handa öllum í MCI höllinni myndi kosta kappann rúma 100.000 dollara. Jamison verðlaunaður. Antawn Jamison, leikmaður Washington, hlaut á dögunum nýleg verðlaun sem veitt eru árlega í NBA deildinni og eru nefnd eftir Magic Johnson. Verðlaun þessi eru veitt þeim leikmanni sem þykir skara fram úr í samvinnu við fjölmiðlafólk, auk þess að standa sig vel á leikvellinum. "Ég vil vera börnunum góð fyrirmynd og þessi verðlaun segja til um hvernig innri mann ég hef að geyma," sagði Jamison. Jordan slær á létta strengi. Eddie Jordan, þjálfari Washington, var spurður hvað honum fyndist um sektina sem kollegi hans hjá Houston, Jeff Van Gundy fékk deginum áður fyrir að gagnrýna dómara. "Tja, ætli deildin sé ekki bara að ná sér í aur í sparigrísinn til að byggja sig upp fyrir yfirvofandi verkfall," sagði Jordan. Blaðamaður spurði hann þá hvort hann ætti ekki von á því að verða sektaður sjálfur fyrir þessi ummæli sín. "Ég var bara að grínast," svaraði Jordan um hæl. Prince verður með. Tayshaun Prince, leikmaður Detroit Pistons, hefur lýst því yfir að hann muni leika með liði sínu í fimmta leiknum gegn Philadelphia í nótt, þrátt fyrir meiðslin sem hann hlaut í fjórða leiknum. Þegra blaðamenn spurðu hann hvort hann yrði með, sagði hann einfaldlega; "Ég spila". Prince lenti illa á fætinum í fjórða leiknum við Philadelphia, en sagðist ekki hafa áhyggjur af framhaldinu. "Þetta háir mér kannski eilítið sóknarlega, en ég get beitt mér að fullu varnarlega og það held ég að dugi okkur alveg," sagði Prince.Ben Gordon verður valinn besti varamaður ársins í deildinni á sínu fyrsta ári, skv heimildarmönnum vestrareutersAntawn Jamison vann hin árlegu Magic Johnson verðlaun fyrir háttvísi í samskiptum við fjölmiðlareuters
NBA Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Fleiri fréttir Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Everton - Arsenal | Skytturnar vilja skjóta sér aftur upp á topp Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Guðrún Brá tveimur höggum frá því að öðlast fullan keppnisrétt á LET Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Joshua kjálkabraut Paul KA-menn fengu góða jólagjöf Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Sjá meira