„Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Hjörvar Ólafsson skrifar 19. desember 2025 21:44 Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, fer sáttur inn í jólafríið. Vísir/Hulda Margrét Steinar Kaldal, þjálfari karlaliðs Ármanns í körfubolta, var sáttur við frammistöðuna og mikilvæg stig sem liðið landaði með sigri í leik liðsins gegn ÍA í 11. umferð Bónus-deildarinnar í kvöld. „
Þetta er gríðarlega mikilvægur sigur og ég er ofboðslega ánægður með hvernig við mættum til leiks og spiluðum heilt yfir fyrir utan stuttan slakan kafla í þriðja leikhluta,“ sagði Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, að leik loknum. „Þeir spiluðu fast á okkur og mér fannst við ekki bregðast alveg nógu vel við því. Við náðum hins vegar áttum, hertum á klónni aftur í vörninni og náðum ró og skynsemi í sóknarleikinn á nýjan leik. Þetta var flott og heilsteypt frammistaða og við hleyptum þeim aldrei almennilega inn í leikinn sem er jákvætt,“ sagði Steinar enn fremur. „Þetta var fjögurra stiga leikur og það skipti sköpum að næla í sigur. Við fengum flott framlag frá Ingva Þór og margir leikmenn í okkar liði sem eru að þroskast og þróast í rétta átt. Mig vantar ennþá aðeins meira framlag frá Woolbright en ég er viss um það mun koma,“ sagði hann. „Mig langar síðan að gefa shotout á Sævar Sævarsson sem skaut á lýkkið mitt á hárgreiðsluna mína í desember. Ég fór til rakarans í dag og hann ferskti aðeins upp á mig og ég vona að ég líti betur út. Nú mun svo jólastekin bragðast betur í ljósa þessa sigurs en í kjölfarið munum æfa vel og mæta klárir til leiks á nýju ári. Við ætlum að sjálfsögðu að berjast fyrir sæti okkar allt til enda,“ sagði þjálfarinn borubrattur.
Bónus-deild karla Ármann Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Sjá meira