Fyrsti innflytjandi í ráðherrastól 21. október 2004 00:01
Ibrahim Baylan varð í gær fyrsti innflytjandinn í sögu Svíþjóðar til að taka við embætti ráðherra í stjórn landsins. Göran Persson forsætisráðherra skipaði Baylan í embætti menntamálaráðherra í uppstokkun sinni á ráðherrum sænsku stjórnarinnar. Baylan fæddist í Tyrklandi en fluttist til Svíþjóðar þegar hann var tíu ára gamall. Reynsla hans endurspeglast í einu af áhersluatriðum hans. Hann segist ætla að beita sér fyrir því að gera innflytjendabörnum auðveldara fyrir að aðlagast sænska skólakerfinu. "Þetta er tækifæri fyrir mig til að taka þátt í umbótum á skólunum okkar," sagði Baylan eftir að tilkynnt var um skipun hans. "Ég hef fylgst með Ibrahim um margra ára skeið. Hann er undir það búinn að verða ráðherra því hann hefur góða þekkingu á málefnunum og hefur náð þroska í stjórnmálum," sagði Persson. Sænska stjórnin hefur átt undir högg að sækja í skoðanakönnunum undanfarið og sagði Persson að hún hefði aldrei jafnað sig eftir að kjósendur höfnuðu stefnu hennar í kosningu um upptöku evrunnar.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Fleiri fréttir Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Sjá meira