Uppstokkunarheimild heftir 31. ágúst 2004 00:01
Samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja mun skerðast miðað við það sem tíðkast í nágrannalöndunum ef tillögur nefndar viðskiptaráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi verða að lögum. Þetta er mat Þórdísar J. Sigurðardóttur, eins nefndarmanna og framkvæmdastjóra Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík, Ara Edwald, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Þórs Sigfússonar, framkvæmdastjóra Verslunarráðs, og Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallarinnar. Í skýrslunni er lagt til að Samkeppnisstofnun verði veitt heimild til þess að krefjast uppstokkun á fyrirtækjum teljist þau "hafa brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga eða skapað aðstæður sem hafi skaðleg áhrif á samkeppnina". Tekið er fram að tillagan sé í samræmi við breytingar sem nýlega voru gerðar á samkeppnisreglum Evrópusambandsins og norskum samkeppnislögum. Þá segir að sambærilegar heimildir sé að finna í fleiri löndum. Einnig er bent á að Samkeppnisstofnun hafi þegar heimild til þess að beita ákvæði sem þessu varðandi opinberar stofnanir sem stunda samkeppnisrekstur. Ekki leyft í öðrum löndum Þórdís heldur því þó fram í séráliti sínu í skýrslunni að heimild ESB gildi einungis þegar um sé að ræða viðskipti milli aðildarríkja sambandsins. ESB hafi ekki rétt á að fara inn í einstök ríki og krefjast uppstokkunar á fyrirtækjum sem starfi einungis á heimamarkaði. Þórdís bendir á að Svíar og Finnar hafi sérstaklega tekið þá ákvörðun að færa þetta úrræði ekki í lög. Samtök atvinnulífsins telja ekki þörf fyrir heimild Samkeppnisstofnunar til að brjóta upp fyrirtæki, að sögn Ara Edwald. "Menn hljóta að gjalda varhug við svo róttækum heimildum. Þetta er ekki nokkuð sem Norðurlöndin hafa verið að taka upp í landslögum sínum. Samkeppnisyfirvöld eiga að bregðast við ólögmætu atferli en ekki að ráðskast með uppbyggingu atvinnulífsins. Þau eiga að bregðast við framgöngu en ekki stærð," segir Ari. Þór Sigfússon segir að í Noregi sé ekki sátt um hvernig túlka eigi þetta nýja ákvæði í samkeppnislögunum þar. "Það er hins vegar augljóst að reglur ESB túlkast þannig að um sé að ræða fyrirtæki sem eru að misnota markaðsaðstöðu á stærri fjölþjóðlegum mörkuðum og eiga þær því ekki við um Ísland," segir Þór. Þórður Friðjónsson segir að með heimildinni kunni að vera gengið lengra en önnur lönd hafa gert. "Við þurfum að hugsa okkur um tvisvar ef tillögur og hugmyndir nefndarinnar skerði samkeppnisaðstöðu íslenskra fyrirtækja. Það er brýnt að koma í veg fyrir að við tökum hér upp reglur sem ganga lengra en annars staðar er gert," segir hann. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að þessar áhyggjur séu byggðar á misskilningi. "Tillögur nefndarinnar eru í samræmi við það sem tíðkast í löndunum í kringum okkur og Evrópusambandið hefur þennan rétt. Ákvæðið verður tekið inn í EES-samninginn og því mun Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, fylgjast með því að þessu verði framfylgt á EES-svæðinu. Það verður að setja þetta í íslensk lög svo hægt verði að setja þetta inn í íslenskan rétt en Norðmenn hafa þegar gert það. Nefndin er fyrst og fremst að setja fram þessar tillögur svo regluverkið verði í samræmi við viðskiptalönd okkar og þau lönd sem við berum okkur saman við. Nefndin fór yfir reglugerðir í þeim löndum og er þetta ákvæði í samræmi við það," segir Valgerður. Megum ekki stíga skref til baka Þór Sigfússon segir að í Evrópu sé rætt um það hvernig megi örva fyrirtæki til dáða og ná þeim upp úr öldudal athafnaleysis. "Hér eru fyrirtæki að skapa störf og ráða fólk og hefja margvíslega útrás þvert á það sem er að gerast í löndunum í kring um okkur. Samkeppnin hefur sjaldan verið meiri á fjölmörgum sviðum atvinnulífsins en nú. Við þessar aðstæður er óskiljanlegt að vinna þurfi skýrslu um ástand íslensks viðskiptalífs í að því er virðist mikillli leynd og án alls samráðs við aðila viðskiptalífsins," segir Þór. Þórður Friðjónsson tekur undir þetta og segir rétt að vekja sérstaka athygli á því að mörg hinna stærri fyrirtækja sem hafa sýnt mikla útrás á erlenda markaði hafi verið að ná gífurlegum árangri á því umhverfi sem hér er til staðar. "Það er ábyggilega vandfundið það land sem hefur verið jafn öflug útrás frá. Byggist það að verulegu leyti á viðskiptaumhverfinu og umbótum á efnahagskerfinu undanfarin 15 ár. Við þurfum að gæta okkar sérstaklega að stíga ekki skref til baka og gera umhverfið óþjálla og erfiðara að starfa í og skapa þannig viðskiptalífið og um leið lífskjör Íslendinga. Það er enginn vafi á því að vöxtur fyrirtækja hefur skilað öflugra efnahagslífi og betri kjörum á Íslandi," segir Þórður. Viðskiptaráðherra segir þörf á reglum Spurð um hvort raunveruleg þörf sé á því að setja lög um íslenskt viðskiptalíf þegar talið er að það hafi aldrei verið í jafnmiklum blóma segir Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra, að svo sé. "Hugmyndin er sú að það séu reglur sem eru skiljanlegar og skilvirkar og sanngjarnar. Miðað við frelsi viðskiptalífsins, sem við mælum eindregið með, er ekki þar með sagt að það eigi ekki að spila eftir einhverjum reglum í þjóðfélaginu," segir hún. Aðspurð hvort ekki séu reglur nú þegar í samkeppnislögum sem veiti nægilegt aðhald í viðskiptalífinu segir Valgerður að til að mynda hafi nefndin komist að því að núverandi samkeppnislög taki á hringamyndun. "Hins vegar eru þarna ákveðnar breytingar lagðar til og þá sérstaklega á stjórnsýsluþættinum," segir hún. Gylfi Magnússon, hagfræðiprófessor í Háskóla Íslands og formaður nefndarinnar segir það mat nefndarinnar að tillögurnar eigi að styrkja íslenskt efnahagslíf. "Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að fyrirtæki sem fylgja vönduðum reglum um stjórnhætti fyrirtækja skila að jafnaði betri árangri en fyrirtæki sem ekki fylgja slíkum reglum. Fagfjárfestar eru til að mynda tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir slík fyrirtæki. Skýrar samkeppnisreglur og skilvirkt eftirlit gera fyrirtækjum kleift að keppa á eðlilegum viðskiptalegum forsendum," segir Gylfi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Innlent Egill Þór er látinn Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Erlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Varað við ferðalögum víða um land Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Sjá meira