Bæta má stöðu jafnréttis á Íslandi 27. ágúst 2004 00:01 "
Þrátt fyrir að íslensk lög geri ráð fyrir jafnrétti kynjanna og þokast hafi í þá átt undanfarna áratugi mætti hin raunverulega staða vera betri," sagði Cherie Booth, einn þekktasti lögmaður Breta og eiginkona Tony Blair forsætisráðherra, á málþingi undir heitinu Konur, völd og lögin sem Háskóli Íslands stóð fyrir í gær. Máli sínu til stuðnings benti hún á að tölulegar upplýsingar um Ísland bentu til þess að enn væri langt í land. "Tveir af níu hæstaréttardómurum eru konur, tvær konur eru dómstjórar í átta héraðsdómum landsins og af 38 héraðsdómurum eru aðeins tíu konur. Fáar konur stunda lögmennsku, en einungis 14% lögmanna á Íslandi eru konur. Tölfræðin batnar ekki þegar ráðuneytin eru skoðuð. Í stjórnunarstöðum í ráðuneytunum eru 60 karlmenn og 15 konur. Í nefndum ráðuneytanna eru um 70 prósent karlmenn. Ef við snúum okkur að utanríkisráðuneytinu þá var aðeins ein kona sendiherra af 30 þar til í síðasta mánuði en þeim hefur nú fjölgað í þrjár. Svo dæmi sé tekið úr Háskóla Íslands voru fyrr á árinu 22 konur meðal 147 prófessora skólans," sagði hún. Cherie Booth benti á að þrátt fyrir að jafnvel fleiri konur en karlar stundi nú lögfræðinám sé mikið ójafnvægi í kynjaskiptingu í áhrifastöðum í lögfræðistétt. Það sé raunin um allan heim. "Lögmannastétt verður fyrst og fremst að þjóna almenningi. Það er mikilvægt að við sem stundum lögmennsku og kennum viðhöldum trausti almennings. Til þess að gera það verðum við að endurspegla fjölbreytt samfélag okkar. Lögmenn og dómarar eiga ekki bara að vera hvítir, miðaldra karlar," sagði hún. "Það verður að vera hægt að líta á réttlæti sem rétt allra, ekki bara forréttindi fárra. Konur eru helmingur samfélagsins. Til þess að hægt sé að þjóna almenningi á þýðingarmikinn hátt verður að ná tengslum við hann. Það tekst best með því að endurspegla þann almenning á sem réttasta máta," sagði Cherie Booth. Hún vitnaði í kvenkynsdómara sem sagði að sá sem túlkaði lögin væri í það minnsta jafnmikilvægur og sá sem byggi þau til, ef ekki mikilvægari. Í viðtali við fjölmiðla að loknu ávarpi sínu sagðist hún aðspurð ekki telja að túlkun kvenlögmanna á lögum væri ólík túlkun karla. "Öll túlkun á lögum er mismunandi og byggist hún á reynslu. Það leikur enginn vafi á því að konur og karlar búa að mismunandi reynslu og það þarf að endurspegla þann mismun í lögfræðinni." Spurð hvers vegna karlmenn taki ekki virkari þátt í jafnréttisbaráttunni sagðist hún telja þá fremur virka. "Ég á þrjá syni en aðeins eina dóttur og hef því sérstakra hagsmuna að gæta varðandi þetta. Mikið af jafnréttisbaráttunni hefur unnist með samvinnu karla og kvenna. Það er mikilvægt að líta á jafnréttisbaráttuna sem hagsmunabaráttu bæði kvenna og karla. Það er mikilvægt að gera fólki kleift að lifa lífi sínu eins og það vill. Konur og karlar vilja bæði geta sinnt heimilislífinu og starfinu og það ætti ekki að vera val um annað hvort," sagði hún. "Það sem við þurfum að gera er að ganga úr skugga um að karlmenn séu að ræða þessi mál. Mér finnst mjög hvetjandi hve margir ungir karlmenn hafa áhuga á því. Margir þeirra vilja vera þátttakendur í uppeldi barna sinna. Eiginmaður minn hefur alltaf tekið virkan þátt í uppeldi barna okkar og tel ég okkur heppin hvað það varðar að lífsmáti okkar leyfir það." Cherie Booth sagði að eitt helsta samfélagsmál 21. aldarinnar verði að reyna að koma á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Það varði ekki aðeins konur heldur einnig karlmenn sem vilja taka aukinn þátt í uppeldi barna sinna. Þá vilji margir hafa kost á því að stunda frístundir eða stunda nám með vinnu. "Það er mikilvægt að skoða á gagnrýninn hátt þann vinnukúltúr sem komst á á þeim tíma þegar annars konar sveigjanleiki í starfi var í boði - þegar karlar unnu úti og konan sá um heimilið og börnin. Viðskiptalífið endurspeglar þá mynd enn og er þess valdandi að konur sem vinna hlutastarf eða sveigjanlegan vinnutíma eiga það enn meira á hættu að verða útundan og fá færri tækifæri til þess að byggja upp sambönd í gegnum tengsl sem allt hefur áhrif á frama." Hún sagði að þetta væri ein meginástæðan fyrir því að karlmenn þyrftu hvatningu í því að taka í auknum mæli upp sveigjanlegan vinnutíma og vinnuveitendur að víkka hug sinn þegar kemur að veitingum stöðuhækkana. "Ég minnist þess ávallt að á níunda áratugnum, þegar við hjónin áttum þrjú ung börn, sagði Ray Powell, sem var mjög áhrifaríkur innan þingflokks Verkamannaflokksins, við Tony að ef hann hætti ekki að fara heim úr þinginu eftir atkvæðagreiðsluna klukkan 19 til þess að hitta börnin áður en þau færu að sofa, og þess í stað stundaði barina með starfsfélögum sínum - sem flestir voru karlkyns, yrði honum ekkert ágengt í stjórnmálum."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Innlent Egill Þór er látinn Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Erlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Sjá meira