

Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sýn hf. Eðvald tekur við starfinu af Kristínu Friðgeirsdóttur sem lét af störfum fyrr í mánuðinum. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallar.
Upphaf fyrsta brugghússins á Vestfjörðum má rekja til afdrifaríks símtals frá mági framkvæmdastjórans. Hann vann við að múra þegar símtalið kom en mánuði eftir það var brugghúsið orðið að veruleika.
Dagar hafa ráðið þau Guðfinnu Eyrúnu Ingjaldsdóttur, Brynhildi Guðmundsdóttur, Ísak Erni Kristinsson, Ingigerði Erlingsdóttur og Sigurð Hjaltalín Þórisson í stöður nýrra stjórnenda hjá fyrirtækinu. Þau taka einnig sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins og hafa þegar hafið störf.
KEA hefur keypt 30 prósenta hlut í Ferro Zink hf. af Jóni Dan Jóhannssyni og á eftir viðskiptin allt hlutafé í félaginu, sem er með starfsemi á Akureyri og í Hafnarfirði.
Bókamarkaðnum á Laugardalsvelli í Reykjavík lauk á sunnudagskvöld og fór svo á endanum að sölumarkmið framkvæmdastjórann náðist. Hundrað þúsund bækur seldust.
Samtök atvinnulífsins og Deloitte á Íslandi halda árlegan Sjálfbærnidag atvinnulífsins þar sem fyrirtæki á Íslandi geta sótt sér nýjustu þekkingu sem nýtist þeim í rekstri út frá sjálfbærni. Yfirskrift fundarins er Má þetta bara?
Rekstur veitingastaðarins Pizza King, sem staðsettur er við Skipholt 70, er til sölu. Ásett verð eru þrettán milljónir.
Ekki verður landað í dag í Grindavík eins og vonir stóðu til um. Hafnarstjóri segir varnargarða þó hafa blásið mönnum byr í brjóst. Fyrirtæki fá að fara inn í bæinn í dag en fyrst stóð til að það yrði ekki leyft.
Þrír stjórnendur hafa verið ráðnir til Styrkáss. Allir koma þeir frá dótturfélögum innan samstæðu. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Bankastjóri Landsbankans segir bankann ekki vera ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag nær eingöngu í eigu ríkisins. Bankinn muni halda áfram ferlinu við kaup á TM tryggingum þrátt fyrir andstöðu fjármálaráðherra.
Rekstrarafkoma samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu 2023 var jákvæð um 8,1 milljarð króna samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 5,2 milljarða króna árið 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu Isavia vegna nýbirts ársreiknings.
Alls sóttu 27 manns um starf forstjóra fasteignafélagsins Þórkötlu. Umsóknarfrestur rann út 5. mars síðastliðinn.
Gengi hlutabréfa Kviku banka hækkaði um tæplega fjögur prósent í fyrstu viðskiptum eftir að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 9:30 í morgun.
Kaup Festi á öllu hlutafé í Lyfju hf mun að óbreyttu krefjast íhlutunar af hálfu Samkeppniseftirlitsins.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra lýsir óánægju sinni með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Hún segir að ríkisfyrirtæki eigi ekki að kaupa tryggingafélög og að viðskiptin verði ekki samþykkt af henni, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða.
Kviku banka hafa borist skuldbindandi tilboð um kaup á hlutafé TM trygginga hf. en bankinn hefur verið með TM í söluferli í samræmi við tilkynningu þann 17. nóvember 2023 og síðari tilkynningar þess efnis.
Stjórn Fly Play hf. og forstjóri félagsins, Birgir Jónsson, hafa í dag gert samkomulag um starfslok hans. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við sem forstjóri PLAY.
Kristján Ólafur Sigríðarson, einn níu sakborninga í meintu mansalsmáli tengdu Pho Vietnam og Wok On, hefur komið víða við síðan hann hóf veitingarekstur og fasteignaviðskipti. Kristján er í dag 33 ára gamall en byrjaði í viðskiptum aðeins 25 ára með aðstoð stjúpföður síns sem er einn þriggja hluthafa í World Class fjölskylduveldinu.
Leggja á niður Ríkiskaup og færa verkefni stofnunarinnar ýmist til sérstakrar starfseiningar eða ríkisaðila sem starfar á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Breytingin er liður í innleiðingu á breytingum á lögum um opinber innkaup.
Gunnar Alexander Ólafsson hefur verið ráðinn í starf hagfræðings hjá ÖBÍ réttindasamtökum.
Tæplega sextíu prósent þeirra sem taka afstöðu vilja síður eða alls ekki eiga viðskipti við fyrirtæki sem nýta greiðslumiðlun frá Rapyd.
Fjölskyldan í Múlakaffi hefur tekið við rekstri veitingastaðar og veislusalar í Sjálandi í Garðabæ sem ber sama heiti. Til stendur að reka líkamsræktarstöð World Class á svæðinu eftir tvö ár.
Íslandsbanki spáir því að ársverðbólga verði um 6,5 prósent í mars og lækki örlítið á milli mánaða. Landsbankinn spáir því að ársverðbólga verði óbreytt 6,6 prósent í mars. Greinendur beggja banka eiga von á því að verðbólgan hjaðni rólega næstu mánuði og verði um 5,4-5,3 prósent um mitt ár. Bankarnir birtu báðir spár sínar í dag.
Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.
Starfsmaður Landspítalans fékk tæpar tíu milljónir í viðbótarlaun árið 2022. Það er hæsta greiðslan sem greidd hefur verið á launategundinni „viðbótarlaun á grundvelli stofnanasamninga“ á Landspítalanum síðustu fjögur ár.
Alls voru um 63,2 prósent búin að skila skattframtali í morgun. Frestur til að skila rennur formlega út í dag en þó er svigrúm til um og eftir helgarinnar til að klára skilin. Af þeim sem eru búin að skila standa þau sig best sem eru í yngstu og elstu aldurshópunum.
Lýstar kröfur í N4 ehf. námu 89 milljónum króna, en ekkert greiddist upp í rúmlega 84 milljónir þeirra. Fyrirtækið starfrækti sjónvarpstöðina N4 í fimmtán ár.
Sigríður Lovísa Jónsdóttir, gæðastjóri launa og jafnlaunavottunar hjá Brimborg, hlaut flest atkvæði í kosningum til stjórnar VR sem lauk í hádeginu. Hún hefur átt sæti í stjórn VR frá árinu 2022.
Suðurnes hafa að geyma hlutfallslega fleiri leiguíbúðir í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en nokkur annar landshluti. Fimmtungur íbúða í landshlutanum er skráður í leiguskrá.
Fjármálastöðugleikanefnd situr fyrir svörum um nýútgefna yfirlýsingu sína. Í yfirlýsingunni segir að fjármálakerfið standi traustum fótum.