Viðskipti erlent
247 248 249 250 251 252 253 254 255 … 334 ›
Bandaríkin eru á leið í fjárhagslegt járnbrautarslys Hagfræðingurinn Nouriel Roubini segir að hagkerfi Bandaríkjanna sé á leiðinni í fjárhagslegt járnbrautarslys. Þetta kemur fram í grein sem Roubini skrifar í Financial Times í dag. Hagfræðingurinn er þekktur undir viðurnefninu dr. Doom en hann sá m.a. fyrir fjármálakreppuna árið 2007. Viðskipti erlent 29.10.2010 08:42
Windows og Office mala gull fyrir Microsoft Hagnaður Microsoft jókst um 51% á þriðja ársfjórðungi ársins einkum vegna aukinnar sölu á Windows og Office. Þessi forrit hafa löngum malað gull fyrir tölvurisann á undanförnum árum. Viðskipti erlent 29.10.2010 08:04
Leiðtogar ESB samþykkja harðari evru-reglur Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komið sér saman um að setja harðar reglur sem miða að því að styrkja evrusvæðið og minnka líkurnar á frekari fjármálakreppum. Viðskipti erlent 29.10.2010 08:01
Ólíklegt að brotleg lönd verði svipt atkvæðisrétti Fulltrúar Þýskalands og Frakklands reyna að fá fulltrúa annarra ríkja Evrópusambandsins (ESB) til að styðja nýjar reglur um ríkisútgjöld sem nauðsynlegar séu til að forða annarri skuldakreppu í Evrópu. Viðskipti erlent 29.10.2010 05:45
Skortur verður á jólatrjám í Noregi og Danmörku Langir biðlistar eru þegar að myndast eftir jólatrjám í Noregi. Í Danmörku er útséð um að nægilegur fjöldi jólatrjá verði til staðar fyrir innanlandsmarkaðinn. Viðskipti erlent 28.10.2010 13:32
Uppljóstrari fær nær 11 milljarða úr Glaxo-máli Fyrrum starfsmaður breska lyfjarisans GlaxoSmithKline (GSK), Cheryl Eckard, fær 96 milljónir dollara, eða nær 11 milljarða kr. í verðlaun fyrir að hafa ljóstrað upp um lögbrot lyfjarisans í tengslum við rekstur lyfjaverksmiðju í Puerto Rico. Viðskipti erlent 28.10.2010 08:36
Hells Angels í mál við tískuhúsið Alexander McQueen Mótorhjólagengið Hells Angels hefur höfðað mál í Kaliforníu gegn tískuhúsinu Alexander McQueen. Hells Angels ákæra tískuhúsið fyrir að hafa misnotað vörumerki sitt, hauskúpu með vængjum. Viðskipti erlent 28.10.2010 08:02
Minnsta atvinnuleysi í Þýskalandi í 19 ár Atvinnuleysi hefur ekki verið minna í Þýskaland síðan árið 1991. Tölurnar um atvinnuleysi í Þýskalandi verða gerðar opinberar á morgun. Ursula von der Leyen atvinnumálaráðherra landsins er hinsvegar svo ánægð með stöðuna að hún greindi frá tölunum á blaðamannafundi í dag. Viðskipti erlent 27.10.2010 15:33
GlaxoSmithKline fær risasekt vegna sölu gallaðra lyfja Breski lyfjarisinn GlaxoSmithKline hefur fengið á sig samtals 750 milljón dollara, eða 84 milljarða kr. sekt og skaðabætur í Bandaríkjunum vegna sölu á m.a. menguðu barnakremi og óvirku þunglyndislyfi. Salan á þessum lyfjum stóð árum saman þótt yfirstjórn GlaxoSmithKline væri kunnugt um vandamálin tengd þeim. Viðskipti erlent 27.10.2010 12:50
Samið um fjármálin við gerð myndarinnar Hobbitinn Stjórnvöld á Nýja Sjálandi og Warner Bros. hafa náð samkomulagi um fjármálin við gerð myndarinnar Hobbitinn eftir sögu J. R. R. Tolkien. Þar með er tryggt að myndin verður tekin upp á Nýja Sjálandi og endi er bundinn á tveggja mánaða óvissu í málinu. Viðskipti erlent 27.10.2010 11:02
Kínverjar í viðræðum um kaup á Elkem Ríkisrekna kínverska efnagerðin China National BlueStar á nú í viðræðum við Orkla í Noregi um möguleg kaup á Elkem sem m.a. rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Blackstone Group mun styðja við bakið á Kínverjunum. Viðskipti erlent 27.10.2010 10:11
Móðurfélag Norðuráls tapaði 1,9 milljarði á þriðja ársfjórðungi Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls, skilaði tapi upp á 16,8 milljónir dollara eða um 1,9 milljörðum kr. á þriðja ársfjórðungi ársins. Til samanburðar varð rúmlega 40 milljóna dollara hagnaður af starfsemi félagsins á sama tímabili í fyrra. Viðskipti erlent 27.10.2010 08:27
Nordea hagnast vel á Pandóru Nordea bankinn skilaði ágætu uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung ársins. Nordea hagnaðist vel á markaðsskráningu skartgripaframleiðandans Pandóru en 30% af tekjum bankans í Danmörku stafa af hagnaðinum frá Pandóru. Viðskipti erlent 27.10.2010 08:08
Auðvelt að hakka Facebooksíður með nýju forriti Með nýju forriti er mjög auðvelt að hakka sig inn á Facebooksíður, Twitter eða Google. Þetta kemur fram í Ekstra Bladet. Um er að ræða forritið Firesheep en hægt er að keyra það á Firefox. Viðskipti erlent 26.10.2010 14:18
Gullspákaupmenn hegða sér eins og merðir á spítti Gulleignir fjárfesta og spákaupmanna eru orðnar á stærð við gullforða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Peter Warren forstjóri fjárfestingarsjóðsins Warren Capital segir að þetta sé staða sem geti skapað mikinn óróleika á markaðinum þar sem margir af spákaupmönnunum hegði sér eins og merðir á spítti. Viðskipti erlent 26.10.2010 13:37
Látnar stjörnur moka inn seðlum Sænski rithöfundurinn Stieg Larsson er nýtt nafn á topp tíu lista Forbes í ár yfir þær látnu stjörnur sem haldið hafa áfram að moka inn hvað mestum seðlum eftir andlát sitt. Michael Jackson heldur toppsætinu á þessum lista eins og raunar flestir áttu von á. Viðskipti erlent 26.10.2010 11:05
Samkeppniseftirlitið í Sviss rannsakar BMW Samkeppniseftirlitið í Sviss hefur hafið rannsókn á bílaframleiðandanum BMW. Eftirlitið telur að BMW hafi komið í veg fyrir sölu á BMW bifreiðum til svissneskra ríkisborgara sem búsettir eru á EES svæðinu þar með talið Íslandi. Viðskipti erlent 26.10.2010 09:27
Þúsundir milljarða á dauðum reikningum í Danmörku Danskar lífeyriskrónur gufa upp á reikningum sem hvorki er borgað inn á eða út af. Reiknað er með að um 500 milljarðar danskra kr. eða um 10.000 milljarðar kr. liggi inni á þessum „dauðu“ lífeyrissjóðsreikningum eins og það er orðað í dönskum fjölmiðlum í morgun. Viðskipti erlent 26.10.2010 08:14
Kína í stríði við Evrópu og Japan um sjaldgæfa málma Evrópubandalagið og Japan íhuga nú að kæra Kínverja til WTO vegna útflutningstakmarkana Kínverja á sjaldgæfum málmum. Þegar er farið að bera á skorti á þessum málmum á mörkuðum í Evrópu. Viðskipti erlent 25.10.2010 13:24
Danir spara milljarða sem aldrei fyrr Danskar fjölskyldur settu 8,6 milljarða danskra kr. eða um 180 milljarða kr. aukalega inn á bankareikinga sína á milli ágúst og september í ár. Þar með hefur sparnaður Dana slegið nýtt met. Viðskipti erlent 25.10.2010 11:23
Norski olíusjóðurinn tapar stórfé á HQ Bank Norski olíusjóðurinn hefur tapað stórfé á kaupum sínum í sumar á hlutum í sænska bankanum HQ Bank. Sænska fjármálaeftirlitið yfirtók HQ Bank í lok ágúst og síðan var bankinn seldur Carnegie bankanum. Viðskipti erlent 25.10.2010 09:54
Suður- Kóreumenn hættir við að kaupa Elkem í Noregi Stálfyrirtækið Posco í Suður-Kóreu er hætt við að kaupa Elkem í Noregi sem m.a. rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Raunar segir forstjóri Posco að þeir hafi aldrei í alvöru verið að íhuga að kaupa Elkem. Viðskipti erlent 25.10.2010 08:07
LVMH kaupir 14% hlut í Hermes Franska lúxusvörukeðjan LVMH ætlar að kaupa um 14% hlut í Hermes veskjaframleiðandanum á 1,45 milljónir evra. LVMH ætlar samt hvorki að reyna yfirtöku á fyrirtækinu né hafa áhrif á rekstur þess, eftir því sem Reuters fréttastofan fullyrðir. Viðskipti erlent 24.10.2010 13:38
Þróunarríki fá meiri áhrif innan AGS Fjármálaráðherrar frá stærstu tuttugu iðnríkjum heims hafa samþykkt breytingar á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Viðskipti erlent 23.10.2010 13:30
Noregsprinsessa næstum orðin gjaldþrota Märtha Louise Noregsprinsessa rambar nú á barmi gjaldþrots. Viðskipti erlent 22.10.2010 09:50
Reykjanesbær fær lán upp á 193 milljónir Reykjanesbær hefur gengið frá láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga að upphæð 193 milljónir kr. Viðskipti erlent 22.10.2010 09:35
Sex.com slegið á tæpar 1500 milljónir Sex.com, sem er jafnan álitið vera á meðal verðmætustu léna í heiminum, var nýlega slegið á 13 milljónir bandaríkjadala á uppboði. Upphæðin nemur tæplega 1500 milljónum króna. Eigandi lénsins, fyrirtækið Escom LLC, er gjaldþrota. Það var fyrirtækið Clover Holdings Ltd sem var hæstbjóðandi í lénið. Escom keypti lénið á 14 milljónir bandaríkjadala árið 2006, að því er ABC fréttastofan greinir frá. Viðskipti erlent 21.10.2010 16:22
Hamborgarar gáfu vel af sér Hagnaður McDonald's hamborgarakeðjunnar jókst á þriðja ársfjórðungi. Ástæðan er rakin til breytinga á matseðli McDonalds í Bandaríkjunum og lengri opnunartíma í Evrópu. Viðskipti erlent 21.10.2010 15:44
Nokia sparkar 1800 starfsmönnum Þótt afkoma Nokia fyrirtækisins sé betri en vænst hafi verið til og hlutabréf í fyrirtækinu hafi hækkað um 8,6 prósent, ætla stjórnendur þess að skera verulega niður í rekstri. Viðskipti erlent 21.10.2010 11:45
Milljónamæringum fjölgar um 35.000 í Noregi milli ára Samkvæmt álagningarseðlum skattsins í Noregi fjölgaði milljónamæringum í landinu, mælt í norskum krónum, um 35.000 í fyrra miðað við árið áður. Yfir 60.000 Norðmenn voru með meir en eina miljón norskra kr. í tekjur í fyrra. Viðskipti erlent 21.10.2010 09:48