Lífið

Nemendur himinlifandi á fyrstu vorhátíðinni í tvö ár
Skólaslit voru víða í grunnskólum í dag og fögnuðu nemendur því margir að geta haldið út í sumarið. Um fjögur hundruð nemendur í Breiðagerðisskóla voru þeirra á meðal. Eftir að skóla var slitið þar í dag var hverfishátíð haldin á lóð skólans þar sem fjöldi fólks kom saman.

„Viljum fagna þessum æðislega viðburði í menningu unglinga sem okkur svo kær“
„Myndin snýst um Skrekk í heild sinni. Við viljum fagna þessum æðislega viðburði í menningu unglinga sem er okkur svo kær. Þetta gefur okkur svo ótrúlega mikið.“

Hugrún Birta og fyrrum herra heimur nýtt par
Fegurðardrottningin Hugrún Birta Egilsdóttir hefur fundið ástina með hinum enska Jack Heslewood. Þau kynntust í gegnum fegurðarsamkeppnina Miss world. Jack var kynnir á keppninni sem Hugrún keppti í fyrr á árinu og var sjálfur Herra heimur árið 2019.

Þakkar risaeðlunum fyrir bleika húsið sitt
Bryce Dallas Howard og eiginmaður hennar Seth Gabel opnuðu dyrnar að bleika og litríka heimilinu sínu í Kaliforníu og buðu Architectural Digest í heimsókn. Þau unnu með hönnuðinum Claire Thomas við að hanna heimilið sem hefur mikinn persónuleika.

Samantha Jones snýr aftur
Michael Patrick King, þáttastjórnandi Sex and the City og þáttanna And Just Like That hefur gefið það út að Samntha Jones muni snúa aftur í næstu seríu af síðarnefnda þættinum.

„Stór ástæða hjónaskilnaða, óhamingju og viðheldur ójafnrétti“
Hjónin Hulda Tölgyes og Þorsteinn V. Einarsson hafa kynnt sér þriðju vaktina betur en flestir og geta tengt við hana úr sínu eigin sambandi. Þau leggja mikið upp úr því að fræða aðra um verkaskiptinguna innan heimilisins og eru nú að byrja með námskeið.

Madonna hefur verið valin
Leikkonan Julia Garner hefur fengið boð um að leika stjörnuna Madonnu í kvikmynd um lífið hennar samkvæmt Variety. Madonna hyggst sjálf ætla að setjast í leikstjórastólinn og mun myndin fara yfir upphafið á hennar ferli.

„Að gefa út bók er algjör berskjöldun“
Elsa Margrét Böðvarsdóttir gaf út sína fyrstu bók Dansað í friði í maí síðastliðnum. Elsa Margrét er viðskiptafræðingur og viðurkenndur bókari að mennt en hún ákvað loks á fimmtugsaldri að nota vinstra heilahvelið meira og hvíla það hægra og gefa sig á vald listsköpunar, sem hafði legið í dvala að mestu síðan á unglingsárum. Blaðamaður heyrði í Elsu og fékk nánari innsýn í hennar skapandi hugarheim.

Styttir upp hjá Heiðdísi: „Sorg, vonbrigði og tilfallandi geðsveiflur eru hluti af eðlilegri líðan“
Á fyrstu sýningu sinni STYTTIR UPP sýnir hönnuðurinn og myndlistakonan Heiðdís Helgadóttir olíumálverk sem hún hefur unnið að síðastliðin fjögur ár. Sýningin er á vinnustofu Heiðdísar, Norðurbakka Hafnarfirði, og stendur hún yfir til 11. júní.

Stjörnulífið: Löng helgi, trúlofanir og allir að njóta
Helgin var löng og virðast flestir hafa gripið tækifærið til þess að gera eitthvað skemmtilegt. Bubbi fagnaði afmælinu sínu, listamenn héldu tónleika, margir skelltu sér í hlaup, börnin völdu sitt uppáhalds fólk og Íslendingarnir voru líka duglegir að ferðast.

Jökull í Kaleo og Telma trúlofuð
Jökull Júlíusson söngvari Kaleo og kærasta hans til margra ára Telma Fanney Magnúsdóttir eru trúlofuð. Samkvæmt færslu frá Telmu á Instagram var stóra spurningin borin upp þann 24. maí og var svarið við henni auðvelt fyrir hana, já.

Marta Lovísa prinsessa og Durek Verrett trúlofuð
Norska prinsessan Marta Lovísa og bandaríski seiðmaðurinn Durek Verrett eru trúlofuð.

Kveinuðu þegar Bubbi lofaði tíu árum í viðbót
Sérstök hátíðarsýning á söngleiknum Níu líf fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld í tilefni af 66 ára afmæli Bubba Morthens. Tónlistarmaðurinn segir góða tilfinningu fylgja því að vera viðstaddur hana á þessum tímamótum en Bubbi hefur horft á hverja einustu sýningu söngleiksins sem hefur notið mikilla vinsælda.

Voru öll látin nokkrum dögum síðar: „Mamma er horfin“
Um síðustu aldamót geisaði eyðni faraldur í Afríku og var ástandið einna verst í syðri hluta álfunnar.

Stökkið: „Andlega var ég gríðarlega tilbúin að flytja út“
Selma Soffía Guðbrandsdóttir flutti til Spánar fyrir tveimur árum til þess að fara í nám en ákvað eftir námið að vera þar áfram og starfar í dag sem þjónustustjóri (e. Client services manager) hjá fyrirtæki í Marbella sem leigir út lúxus villur.

Höfðu ekki hugmynd um Strætó á Keflavíkurflugvelli
Flestir þeirra ferðamanna sem Vísir ræddi við á Keflavíkurflugvelli í vikunni virtust ekki hafa hugmynd um að til staðar væru almenningssamgöngur að nafni Strætó sem gæti ferjað þau til höfuðborgarinnar. Flest voru búin undir hátt verðlag og sumir vissu vel af veðursviptingum hérlendis og voru tilbúin í sumar af eintómri rigningu.

Shakira og Piqué skilja eftir ellefu ára samband
Kólumbíska tónlistarkonan Shakira og knattspyrnumaðurinn Gerard Piqué hafa ákveðið að skilja að borði og sæng eftir ellefu ára samband.

„Gott að hafa í huga að það er allt í lagi að vera ekki allt í lagi“
Glódís Perla Viggósdóttir er atvinnu fótboltakona sem hefur með sanni vakið athygli úti á velli. Hún hefur gaman af lífinu, býr yfir miklu keppnisskapi og elskar heimagert guacamole. Glódís Perla er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Sannfærð um að Ísland hefði unnið Eurovision og ákvað að læra íslensku
Bresk kona sem hefur einsett sér að læra tungumál þeirrar þjóðar sem vinnur Eurovision hverju sinni ákvað að læra íslensku eftir að keppninni var aflýst árið 2020. Hún telur að Daði og Gagnamagnið hefðu verið líklegust til sigurs það árið. Hún hefur þegar lært ítölsku og hollensku en segir íslenskuna hafa verið meiri áskorun.

Amerískur túristi bað Elísabetu að taka mynd af sér með lífverðinum hennar
Richard Griffin, fyrrverandi lífvörður Elísabetar Bretadrottningar, rifjaði upp skondna sögu frá starfstíð sinni hjá drottningunni í tilefni af sjötíu ára valdaafmæli hennar sem fagnað er í Bretlandi um helgina. Griffin sagði frá því þegar þau mættu tveimur amerískum túristum, sem könnuðust ekkert við Elísabetu.

„Ég myndi ekki vilja vera Brynjólfur, hann fær allt of mikið af símtölum“
Háskólaneminn Jessý Jónsdóttir lenti í þeim óheppilegu aðstæðum í dag að starfsmaður Sáms Sápugerðar hafði, líklega óvart, látið áframsenda öll símtöl í hennar símanúmer.

Fetar í fótspor föðurins og hefur formlega feril í stjórnmálum
Margrét Bjarnadóttir tók í gær sæti í bæjarstjórn Garðabæjar og hóf þar með formlega feril í stjórnmálum. Bjarni Benediktsson, faðir Margrétar, segist einstaklega stoltur af dótturinni.

Nýr örlagavaldur á Ástareyjunni
Raunveruleikaþættirnir Love Island hafa notið gríðarlegra vinsælda um allan heim. Þar leita þátttakendur í sífellu að ástinni og hafa hingað til fengið að ákveða sjálfir með hverjum þeir stinga saman nefjum, en nú verður breyting á.

Sýningin Tinni á Íslandi opnar í Epal Gallerí
Það var mikil gleði á opnun myndlistarsýningarinnar Tinni á Íslandi í gær en myndlistarmaðurinn og rithöfundurinn Óskar Guðmundsson er maðurinn á bak við verkin.

„Fyrir utan grjót og mosa veit ég ekki hvað er svona merkilegt“
Leikarinn Rainn Wilson, sem fór á kostum sem hinn sérvitri Dwight Schrute í gamanþáttaröðinni The Office, er staddur hér á landi. Hann er á ferðalagi um heiminn um þessar mundir fyrir þáttaseríu sína Rainn Wilson and the Geography of Bliss.

Frumsýning: Daniil og Joey Christ í beefi
Fyrsta myndbandið úr nýrri seríu frá útvarp 101 og Stúdíó Sýrlandi er nú frumsýnt hér á Vísi en í myndbandinu taka tónlistarmennirnir Daniil og Joey Christ lagið Ef þeir vilja Beef í beinni.

Nýtt lag: Sannkallað sumarmarmelaði með dass af Frikka Dór
Popp dúóið Draumfarir og Friðrik Dór Jónsson hafa sameinað krafta sína í sumarsmellinum Nær þér. Grípandi laglínur og skemmtilegur texti sem saminn er af þeim sjálfum gera lagið upplagt fyrir rúntinn í sólinni.

„Fólk þarf stundum að láta sannfæra sig um að prófa“
Fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir og fjölskyldan hennar hafa ferðast um allan heim án þess að borga fyrir húsnæði. Það var einn snjóþungan vetur sem hún fékk nóg af því að allir væru alltaf blautir í fæturna og ákvað að leita lausna.

„Ég er á besta deiti allra tíma“
Fjölmiðlakonan Þórhildur Þorkelsdóttir og Hjalti Harðarson byrjuðu saman eftir besta stefnumót allra tíma að þeirra mati. Síðan þá hafa þau verið nánast óaðskiljanleg, eiga einn strák, eru rómantísk og njóta þess að ferðast.

„Sjaldan verið jafn mikil þörf fyrir verndarvætti“
UN Women á Íslandi og 66°Norður hafa hannað bol til stuðnings konum á flótta í Úkraínu en allur ágóði af sölu bolsins rennur beint til verkefna UN Women. Bolurinn er hannaður af Þórdísi Claessen og Irynu Kamienieva.