Golf
131 132 133 134 135 136 137 138 139 … 178 ›
Tiger lék vel | Bubba og Mickelson í erfiðum málum Annað stórmót ársins í golfheiminum, US Open, hófst í dag. Tiger Woods hefur lokið keppni í dag en hann kom í hús á 69 höggum eða einu höggi undir pari. Golf 14.6.2012 20:55
Birgir Leifur: Væri fín afmælisgjöf að komast á Ólympíuleikana "Þetta skiptir alltaf miklu máli að fá fjármagn inn í þetta til þess að láta draumin rætast,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG í dag þegar greint var frá stofnun afrekssjóðsins Forskot. Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group en 15 milljónir verða veittar til fimm íslenskra afrekskylfinga árið 2012. Golf 14.6.2012 16:00
Tinna: "Ég var búin með allt í buddunni“ "Áður en þessi dagur kom þá var ég búin með allt í buddunni. Stofnun afrekssjóðsins hefur mikla þýðingu fyrir okkur, þetta gefur okkur ákveðið frelsi og við þurfum ekki alltaf að vera með áhyggjur af peningum á meðan við erum að æfa og keppa,“ sagði atvinnukylfingurinn Tinna Jóhannsdóttir úr Keili við Vísi í dag þegar greint var frá stofnun nýs afrekssjóðs hjá Golfsambandi Íslands. Golf 14.6.2012 15:15
Ungir afrekskylfingar keppa í Finnlandi Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi hefur valið fimm unga kylfinga sem verða fulltrúar Íslands á finnska meistaramótinu sem fram fer 27.-29. júní. Þar verður leikið í tveimur aldursflokkum hjá báðum kynjum. Keppt verður á Cooke vellinum í Vierumaki sem er um 100 km fjarlægð frá Helsinki. Golf 14.6.2012 14:30
15 milljónir til íslenskra afrekskylfinga Tilkynnt var um stofnun afrekssjóðsins Forskot á blaðamannafundi hjá Golfsambandi Íslands í dag. Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group en 15 milljónir verða veittar til fimm íslenskra afrekskylfinga árið 2012. Golf 14.6.2012 14:00
Fjórtán ára Kínverji tekur þátt á US Open Þegar Paul Casey varð að draga sig úr keppni á US Open í golfi þá gladdist ungur 14 ára Kínverji. Sá heitir Andy Zhang og hann er á leiðinni á mótið í stað Casey. Golf 12.6.2012 22:00
Sunna bætti vallarmet Ragnhildar Sunna Víðisdóttir, GR, bætti um helgina níu ára gamalt vallarmet Ragnhildar Sigurðardóttur þegar hún lék lokahringinn á Egils Gulls-mótinu á 67 höggum í gær. Golf 11.6.2012 10:15
Þórður Rafn: Verðlaunaféð dugar fyrir næsta móti "Ég hef spilað einu sinni áður á 66 höggum hér á Íslandi, á meistaramóti í Grafarholti, en þar er parið 71. Ég er ánægður með hringinn en við þurfum að fá góðar aðstæður hér á landi til að ná svona skori – og aðstæðurnar voru fínar hér í Vestmannaeyjum í dag,“ sagði Þórður Rafn Gissurarson kylfingur úr GR eftir sigurinn á Egils Gull mótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi í dag. Golf 10.6.2012 16:21
Þórður Rafn Gissurarson bar sigur úr býtum á Egils Gull mótinu í Eyjum Þórður Rafn Gissurarson ,GR, tryggði sér sigur í karlaflokki á Egils Gull mótinu sem lauk í Vestmannaeyjum í dag. Golf 10.6.2012 16:07
Egils Gull mótið: Berglind stóðst áhlaup Sunnu og vann í Eyjum Berglind Björnsdóttir úr GR tryggði sér sigur á Egils Gull mótinu í golfi í Vestmannaeyjum í dag en hún hafði betur eftir æsispennandi keppni. Berglind lék einu höggi betur en Sunna Víðisdóttir úr GR sem fór á kostum á lokadeginum. Golf 10.6.2012 13:38
Efnilegur kylfingur fór holu í höggi tvo daga í röð Gísli Sveinbergsson, ungur og efnilegur kylfingur úr Keili í Hafnarfirði, er að gera góða hluti þessa dagana. Hann náði því nefnilega að fara holu í höggi tvo daga í röð en þetta kemur fram á heimasíðu Keilis. Golf 10.6.2012 07:00
Krefjandi og langur golfdagur að baki í Eyjum Keppendur á Egils gull mótinu í Vestmannaeyjum hafa lokið leik í dag en spilaðar voru 36 holur í dag. Á morgun fer þriðji og síðasti hringurinn fram þegar síðustu 18 holurnar verða leiknar en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni. Golf 9.6.2012 23:32
Berglind á eitt högg á Guðrúnu Brá fyrir lokadaginn Berglind Björnsdóttir úr GR er með eins högg forskot fyrir lokahringinn á Egils Gull mótinu í Vestmannaeyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni. Berglind hefur leikið fyrstu 36 holurnar á 149 höggum eða 9 höggum yfir pari. Golf 9.6.2012 23:06
Frábær annar hringur hjá Axel - lék á fjórum höggum undir pari Keilismaðurinn Axel Bóasson er með tveggja högga forskot fyrir lokahringinn á Egils Gull mótinu í Vestmannaeyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni. Axel lék annan hringinn á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari. Golf 9.6.2012 22:46
Signý og Guðrún Brá spiluðu best á fyrsta hring Keiliskonurnar Signý Arnórsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru efstar og jafnar eftir fyrsta hringinn á Egils Gull mótinu í Eyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni í ár. Golf 9.6.2012 18:00
Þrír jafnir eftir fyrsta hring á Egils Gull mótinu í Eyjum GR-ingarnir Gísli Þór Þórðarson og Arnór Ingi Finnbjörnsson og GA-ingurinn Örvar Samúelsson spiluðu best á fyrsta hringnum á Egils Gull mótinu í Eyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni í ár. Golf 9.6.2012 17:46
Egils Gull mótið tafðist vegna veðurs - stefnt á að klára 36 holur í dag Egils Gull mótið sem er annað stigamót ársins á Eimskipamótaröðinni hófst í morgun klukkan tíu í Vestmannaeyjum en vegna veðurs frestaði mótstjórn ræsingu um tvo og hálfan tíma. Golf 9.6.2012 15:27
Að birta til hjá McIlroy - efstur eftir 2 daga í Memphis Rory McIlroy er efstur á St Jude Classic golfmótinu í Memphis þegar keppni er hálfnuð sem er mikil breyting frá gengi Norður-Írans að undanförnu. Fyrir þetta mót hafi McIlroy ekki komist í gegnum niðurskurðinn á þremur mótum í röð. Golf 9.6.2012 11:30
Íslenskur kylfingur varð mús að bana Sjöunda holan á golfvellinum á Blönduósi er væntanlega með þeim eftirminnilegri sem kylfingurinn Guðmundur Ingvi Einarsson hefur spilað. Guðmundur fékk fugl á holunni auk þess að verða mús að bana. Þetta kemur fram á vefsíðunni Kylfingur.is. Golf 8.6.2012 23:45
Birgir Leifur komst ekki í gegnum niðurskurðinn Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson spilaði annan hringinn á Kärnten Golf Open mótinu í Austurríki á þremur höggum yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Golf 8.6.2012 11:13
Birgir Leifur um miðjan hóp Birgir Leifur Hafþórsson lék á pari á fyrsta keppnisdegi móts í Áskorendamótaröð Evrópu sem fer nú fram í Kärnten í Austurríki. Golf 7.6.2012 22:08
Stefán Már og Þórður Rafn spiluðu þriðja hring á tveimur undir pari Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er í 24. sæti að loknum þremur hringjum á Land Fleesensee Classic-mótinu í Þýskalandi. Golf 7.6.2012 13:30
Stefán Már og Þórður Rafn í gegnum niðurskurðinn Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, eru komnir í gegnum niðurskurðinn á Land Fleesensee Classic-mótinu í Þýskalandi. Þetta kemur fram á kylfingur.is. Golf 7.6.2012 09:53
Snjallsímar orðnir plága á golfmótum Kylfingurinn Phil Mickelson dró sig úr keppni eftir fyrsta daginn á Memorial-mótinu. Hann kom þá algjörlega brjálaður í hús á 79 höggum. Hann kenndi snjallsímum um slæma spilamennsku sína. Golf 6.6.2012 19:45
Umboðsmaður Tigers keyrði ölvaður Umboðsmaður Tiger Woods, Mark Steinberg, er hæstánægður með gengi skjólstæðings síns og svo mikið að hann ákvað að halda fullvel upp á gengi Tigers um helgina. Golf 4.6.2012 16:15
Sögulegur sigur hjá Tiger | Jafnaði Nicklaus Tiger Woods fór á kostum á lokadegi Memorial-mótsins í kvöld og tryggði sér sögulegan sigur. Þetta var 73. sigur Tigers á PGA-mótaröðinni og hann hefur þar með jafnað sjálfan Jack Nicklaus. Golf 3.6.2012 22:16
Jaidee vann Wales Open Tælendingurinn Thongchai Jaidee hristi af sér slæma byrjun á lokadegi Wales Open og vann mótið með einu höggi. Golf 3.6.2012 19:30
Keyrði 1.500 kílómetra eftir pútter Skotinn Colin Montgomerie mun ekki taka þátt á opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Hann gerði samt sitt besta til þess að komast á mótið og meðal annars gerði sér far eina 1.500 kílómetra eftir pútter. Það gekk ekki. Golf 29.5.2012 15:15
Donald efstur á heimslistanum | 120 milljónir kr. fyrir sigurinn Enski kylfingurinn Luke Donald sigraði á BMW meistaramótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Með sigrinum náði Donald efsta sæti heimslistans á ný og hann fékk um 120 milljónir kr. fyrir sigurinn í verðlaunafé. Donald á enn eftir að landa sigri á einu af risamótunum fjórum sem fram fara árlega og hann ætlar sér að brjóta ísinn sem allra, allra fyrst. Golf 28.5.2012 12:15
Eimskipsmótaröðin: Birgir Leifur sigraði eftir harða baráttu Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG sigraði á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi með glæsilegum lokahring. Birgir lék Hólmsvöllinn í Leiru á 68 höggum í dag eða fjórum höggum undir pari. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék reyndar betur en Birgir í dag en Guðmundur var nálægt því að jafna vallarmetið. Guðmundur lék á 66 höggum í dag eða 6 höggum undir pari og endaði hann í öðru sæti á -2 samtals. Hlynur Geir Hjartarson varð þriðji á 2 höggum yfir pari vallar samtals. Golf 27.5.2012 19:13