Erlent
178 179 180 181 182 183 184 185 186 … 334 ›
Æðsti leiðtogi Íran sagður hafa náðað tugþúsundir fanga Æðsti leiðtogi Íran, Ayatollah Ali Khamenei, er sagður hafa náðað tugþúsundir fanga, þar af fjölda sem var handtekinn fyrir að mótmæla gegn stjórnvöldum. Ríkismiðlar segja náðanirnar háðar skilyrðum. Erlent 6.2.2023 09:01
Móðir og sjö börn hennar fórust í eldsvoða í Frakklandi Móðir og sjö börn hennar eru látin eftir að hafa brunnið inni á heimili sínu í bænum Charly-sur-Marne í norðurhluta Frakklands. Erlent 6.2.2023 07:40
Segir Pútín hafa lofað sér því að láta ekki drepa Selenskí Naftali Bennett, fyrrverandi forsætisráðherra Ísrael, hefur greint frá því að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hafi heitið honum því skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu að hann myndi ekki láta drepa Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Erlent 6.2.2023 07:36
Hundruð látin eftir risaskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi Óttast er að hundruð hafi látið lífið eftir að gríðarlega öflugur jarðskjálfti reið yfir Tyrkland og Sýrland í nótt. Skjálftinn átti upptök sín í suðausturhluta Tyrklands, rétt við sýrlensku landamærin og var hann 7,8 stig að stærð. Erlent 6.2.2023 06:40
Rektor fannst látinn á skólalóðinni ásamt fjölskyldu sinni Emma Pattinson, rektor Epsom framhaldsskólans í Surrey á Bretlandi, fannst látin í byggingu á skólalóðinni ásamt eiginmanni sínum og sjö ára dóttur þeirra. Erlent 6.2.2023 00:14
Varnarmálaráðherra Úkraínu látinn taka pokann sinn Oleksii Reznikov hefur verið skipt út sem varnarmálaráðherra Úkraínu. Kyrylo Budanov, yfirmaður GUR leyniþjónustunnar, leysir hann af hólmi. Erlent 5.2.2023 21:47
Leggur til tveggja kjörtímabila hámark en stefnir á sitt þriðja Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður Repúblikana, hefur lagt fram frumvarp um tveggja kjörtímabila hámark fyrir þingmenn Bandaríkjaþings. Sjálfur hefur hann þó tilkynnt að hann muni sækjast eftir endurkjöri í annað sinn. Erlent 5.2.2023 21:20
Tíu létust í snjóflóðum í Ölpunum Tíu manns létu lífið um helgina í snjóflóðum á ýmsum stöðum, bæði í austurríska og svissneska hluta Alpafjallanna. Meirihluti þeirra látnu voru erlendir ferðamenn. Erlent 5.2.2023 16:18
Pervez Musharraf er látinn Pervez Musharraf, fyrrverandi forseti Pakistan, er látinn, 79 ára að aldri. Hann hafði verið að glíma við veikindi í nokkur ár og bjó síðustu ár lífs síns í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þar sem hann sótti læknisþjónustu. Erlent 5.2.2023 10:40
Skutu niður njósnabelginn Bandaríkjaher hefur skotið niður loftbelg, sem talinn er vera njósnabelgur frá Kína, utan strönd Suður-Karólínu. Erlent 4.2.2023 19:59
Herflugvélar hringsóla um njósnabelginn Fjórar orrustuþotur hringsóla nú um kínverskan njósnabelg sem svífur skammt utan við Myrtle Beach í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Bandarísk yfirvöld íhuga nú að skjóta belginn niður. Erlent 4.2.2023 18:55
Sextán ára lést í hákarlaárás í Perth Sextán ára stúlka lét í morgun lífið eftir hákarlaárás í Swan-ánni í Perth í vesturhluta Ástralíu. Talið er að stúlkan hafi verið á sæþotu með vinum sínum þegar árásin átti sér stað. Erlent 4.2.2023 13:53
Nauðganir, „þrælahald“ og falskt loforð um hjónaband Andrew Tate og bróðir hans, Tristan, eru sakaðir um að hafa gabbað konur til að ferðast til Rúmeníu, neytt þær í að framleiða klám, bannað þeim að fara úr húsi og að hafa haldið þeim sem þrælum samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði í Rúmeníu. Talsmaður rannsóknardeildar lögreglunnar segir miklar líkur á að bræðurnir verði ákærðir. Erlent 4.2.2023 10:01
Tveir handteknir fyrir að myrða sex úr sömu fjölskyldu Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við morð sex einstaklinga úr sömu fjölskyldu í smábænum Goshen í Kaliforníu í janúar. Meðal þeirra myrtu voru tíu mánaða gamalt barn og sextán ára móðir þess. Erlent 3.2.2023 22:25
Elsti hundur heims við hestaheilsu Portúgalski hundurinn Bobi hefur komist á spjöld sögunnar sem elsti hundur allra tíma, en metið hefur verið staðfest af Heimsmetabók Guinness. Erlent 3.2.2023 07:52
Pizzabakari reyndist eftirlýstur mafíósi Ítalski mafíósinn Edgardo Greco var nýlega handtekinn í frönsku borginni Saint-Étienne eftir sautján ár á flótta. Greco hafði breytt um nafn og starfaði sem pizzabakari í borginni. Greco hafði verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tvo bræður árið 1991. Erlent 3.2.2023 07:39
Njósnabelgur svífur yfir Bandaríkjunum Bandarísk stjórnvöld segjast vera að fylgjast grannt með stórum eftirlitsloftbelg sem svífur nú yfir Bandaríkjunum en er sagður á vegum Kínverja. Erlent 3.2.2023 06:49
Finnland og Svíþjóð ætli hönd í hönd í NATO Finnland og Svíþjóð stefna enn að því að ganga í Atlantshafsbandalagið, NATO, á sama tíma, þrátt fyrir andstöðu Tyrkja við aðild Svía að bandalaginu. Þetta ítrekuðu forsætisráðherrar ríkjanna tveggja á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. Erlent 2.2.2023 19:40
Búast við stórsókn Rússa í lok febrúar Varnarmálaráðherra Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að undirbúa nýja stórsókn sem gæti hafist í lok þessa mánaðar eða í kringum 24. febrúar. Erlent 2.2.2023 07:09
Haley sögð munu tilkynna um forsetaframboð 15. febrúar Nikki Haley, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, er sögð munu tilkynna um framboð sitt til forseta 15. febrúar næstkomandi. Erlent 2.2.2023 06:58
Grunuð um að hafa myrt tvífara sinn Lögreglunni í þýsku borginni Ingolstadt var þann 16. ágúst í fyrra tilkynnt um hvarf 23 ára gamallar þýsk-írakskrar konu sem starfar sem áhrifavaldur. Stuttu síðar fannst bíll hennar í Ingolstadt. Í bílnum var lík konu með afmyndað andlit sem hafði verið stungin ítrekað. Foreldrar þýsk-íröksku konunnar töldu að um lík dóttur sinnar væri að ræða. Erlent 1.2.2023 17:07
Áfrýjun Tate-bræðra hafnað en þeir segjast saklausir Áfrýjun Andrew Tate og bróður hans, Tristan, var hafnað af áfrýjunardómstól Búkarest í dag. Þeir munu þurfa að dvelja í fangelsi þar til undir lok febrúar. Andrew öskraði á aðdáendur sína og fjölmiðla að hann væri saklaus þegar hann var leiddur inn í dómhús í dag. Erlent 1.2.2023 16:32
Alríkislögreglan leitar á heimili Bidens Alríkislögregla Bandaríkjanna leitar nú á heimili Joe Biden Bandaríkjaforseta í Delaware í tengslum við rannsókn embættisins á hvarfi leynilegra skjala. Þetta staðfestir lögmaður Bidens í yfirlýsingu. Erlent 1.2.2023 15:24
Hundruð þúsunda hafa lagt niður störf í dag Um hundrað þúsund opinberir starfsmenn á Bretlandi hafa lagt niður störf í dag, þar á meðal starfsmenn háskóla, kennarar og lestarstjórar. Þetta er fyrsta verkfallið sem farið er í á Bretlandi síðan 2016. Launafólk fer fram á launahækkanir til að bregðast við hækkandi verðlagi. Erlent 1.2.2023 15:01
Kynlífssvall og svefnleysi banar pokaköttum Niðurstöður nýrrar ástralskrar rannsóknar benda til að karlkyns pokakettir fórni svefni til að tryggja sér kynlíf og að þessi forgangsröðun spili stóran þátt í ótímabærum dauða þeirra. Rannsóknin bendir til að karldýrin ferðist langar vegalengdir í von um að finna kvendýr og sleppi því að sofa á meðan. Erlent 1.2.2023 13:37
Allt í volli í dýragarðinum í Dallas: Dýr að sleppa og grunsamlegur dauðdagi hrægamms Dularfull hvörf og grunsamlegur dauðdag hrægamms í dýragarðinum í Dallas eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni í borginni. Í gær komst í ljós að tveimur keisaratamarin öpum hafði verið stolið úr garðinum en skömmu fyrir það fannst hrægammur sem lést dularfullum dauðdaga. Erlent 1.2.2023 10:24
Þingmaðurinn ljúgandi hættir við nefndasetu Bandaríski þingmaðurinn George Santos mun ekki taka sæti í tveimur þingnefndum sem hann hafði verið skipaður í. Hann segist vilja bíða þar til búið væri að hreinsa hann af ásökunum um lygar í ferilskrá sinni og hefur beðið samflokksmenn sína afsökunar á „fjölmiðlafárinu“ sem myndast hefur í kringum hann. Erlent 1.2.2023 09:17
Vilja flytja út norskt gjafasæði til Íslands Livio í Noregi hefur sóst eftir því að hefja útflutning á norsku gjafasæði og horfir sérstaklega til Íslands og Svíþjóðar. Erlent 1.2.2023 09:01
Leit að geislavirkri nál í heystakki bar árangur í Ástralíu Yfirvöld í Ástralíu segjast nú hafa fundið agnarsmátt geislavirkt hylki sem týndist á dögunum. Erlent 1.2.2023 07:54
Neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum saksóknara Donald Trump neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum sem lagðar voru fyrir hann við yfirheyrslur vegna rannsóknar yfirvalda í New York. Þetta sést á myndskeiði af yfirheyrslunni sem CBS News hefur undir höndum. Erlent 1.2.2023 07:44