Fótbolti

Henderson fær að fara frá Sádi Arabíu og nálgast Ajax
Enski landsliðsmaðurinn Jordan Henderson hefur náð samkomulagi við lið Al Etiffaq í Sádi Arabíu um að fá að losna undan samningi sínum og snúa aftur til Evrópu.

Búið að ákveða daginn sem kærumál Man. City verða tekin fyrir
Richard Masters, framkvæmdastjóri ensku úrvalsdeildarinnar, hefur tjáð sig hvenær um öll kærumálin gegn Manchester City verða tekin fyrir.

Vill tug milljarða frá stjórnarformanni Newcastle fyrir að vinna myrkraverk prinsins
Yasir Al-Rumayyan, formaður enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle United og LIV-mótaraðarinnar í golfi, gæti verið stefnt í einkamáli fyrir að „fylgja fyrirmælum krónprinsins Mohammed Bin Salman. Talið er að lögsóknin muni hljóða upp á rúma tíu milljarða íslenskra króna.

Juventus í bullandi titilbaráttu
Juventus er í bullandi titilbaráttu í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, eftir 3-0 sigur á Sassuolo. Þegar 20 umferðir eru búnar er liðið aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Inter frá Mílanó.

Rosenörn semur við Stjörnuna
Markvörðurinn Mathias Rosenörn hefur samið við Stjörnuna í Bestu deild karla í knattspyrnu. Samningurinn gildir út tímabilið 2026.

Telja Gylfa Þór vera að íhuga að leggja skóna á hilluna
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Lyngby í Danmörku, íhugar nú að leggja knattspyrnuskóna á hilluna.

Byggja HM 2034 leikvang á klettabrún
Sádi-Arabar kynntu í gær nýjan framtíðar knattspyrnuleikvang sem verður byggður fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem á að fara fram í landinu árið 2034.

Diouf reyndi að róa brjálaðan Onana niður
André Onana, markvörður Manchester United, var afar ósáttur að vera utan hóps þegar Kamerún mætti Gíneu á Afríkumótinu í gær.

Fram heldur áfram að smíða nýja vörn
Fram hefur staðfest komu Þorra Stefáns Þorbjörnssonar á láni frá Lyngby í Danmörku. Hann mun leika með Frömmurum í Bestu deildinni í sumar.

De Rossi snýr aftur heim og tekur við Roma
Daniele De Rossi hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Roma út tímabilið. Hann tekur við af José Mourinho sem var rekinn í morgun.

Ólöf Sigríður skrifar undir samning við Breiðablik
Landsliðsframherjinn Ólöf Sigríður Kristinsdóttir hefur skrifað undir samning við Breiðablik fyrir komandi tímabil í Bestu deild kvenna.

Mourinho rekinn frá Roma
Portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourinho hefur stýrt liði Roma í síðasta skiptið.

„Skandall að Messi hafi unnið“
Norski fótboltasérfræðingurinn Carl-Erik Torp var allt annað en sáttur við það þegar Lionel Messi var í gær kosinn besti knattspyrnumaður ársins hjá FIFA.

Håland og Messi jafnir að stigum en Messi stóð uppi sem sigurvegari
Í gærkvöld fór verðlaunahátíð FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, fram í Lundúnum. Var besta knattspyrnufólk ársins 2023 heiðrað.

Murielle frá Króknum í Grafarholt
Markadrottningin Murielle Tiernan hefur ákveðið færa sig um set og mun spila með Fram í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu næsta sumar frekar en í Bestu deildinni með Tindastóli. Frá þessu greindi Fram á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Messi og Bonmatí leikmenn ársins
Lionel Andrés Messi og Aitana Bonmatí eru leikmenn ársins 2023 að mati Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA. Voru leikmennirnir tveir heiðraðir á hátíðlegri athöfn í Lundúnum.

FIFA verðlaun: Man City og enskar landsliðskonur áberandi
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA tilkynnti í kvöld lið, þjálfara og markvörð ársins 2023 í karla- og kvennaflokki við hátíðlega athöfn í Lundúnum.

Segja Hákon Rafn á óskalista Celtic
Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson ku vera á óskalista skosku meistaranna Celtic.

Onana stóð ekki í markinu þegar Kamerún gerði jafntefli
Þrátt fyrir að ná að mæta til leiks þá stóð André Onana, markvörður Manchester United, ekki í marki Kamerún þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Gíneu í fyrsta leik þjóðanna á Afríkumótinu í knattspyrnu.

Everton og Nottingham Forest kærð fyrir brot á fjárhagsreglum
Ensku úrvalsdeildarfélögin Everton og Nottingham Forest hafa verið kærð fyrir brot á fjárhagsreglum deildarinnar. Tíu stig hafa nú þegar verið dregin af Everton fyrir slík brot.

Hófu titilvörnina á öruggum sigri
Senegal vann 3-0 sigur á Gambíu í fyrsta leik sínum í C-riðli Afríkumótsins í fótbolta karla.

Réðist á landsliðsþjálfara Gana
Maður var handtekinn fyrir að ráðast á þjálfara ganverska karlalandsliðsins í fótbolta eftir óvænt tap þess fyrir Grænhöfðaeyjum á Afríkumótinu í gær.

Gæti spilað tvo leiki í tveimur álfum á sólarhring
Andre Onana stóð í marki Manchester United á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær og hann gæti spilað með Kamerún í Afríkukeppninni í dag.

Vinahöll Svía verður að Jarðarberjahöll
Þjóðaleikvangur Svíþjóðar hefur heitið Friends Arena eða Vinahöll síðan hann var tekinn í notkun fyrir tólf árum. En það breytist í sumar.

Alex Þór í KR
Fótboltamaðurinn Alex Þór Hauksson hefur samið við KR. Hann hefur undanfarin þrjú ár leikið með Öster í Svíþjóð.

„Ég er enginn dýrlingur“
Vinícius Júnior var allt í öllu þegar Real Madrid fór illa með Barcelona í úrslitaleik Ofurbikarsins í gærkvöldi en Real liðið vann leikinn á endanum 4-1.

Ísraelskur fótboltamaður handtekinn í Tyrklandi
Ísraelski knattspyrnumaðurinn Sagiv Jehezkel var handtekinn í Tyrklandi í gær eftir að hafa vakið athygli á stríðinu á milli Ísraels og Hamas-samtakanna.

Littler fékk áritaða treyju frá Sir Alex
Pílu undrabarnið Luke Littler var sérstakur gestur á Old Trafford í gær þegar Manchester United gerði 2-2 jafntefli við Tottenham í enski úrvalsdeildinni.

Ten Hag pirraður yfir aulamörkum
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, var ósáttur með mörkin sem hans menn fengu á sig í 2-2 jafntefli dagsins við Tottenham Hotspur.

Rómverjar hrapa niður töfluna eftir tap í Mílanó
AC Milan styrkti stöðu sína í 3. sæti Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, með 3-1 sigri á Roma. Á sama tíma hrapa Rómverjar niður töfluna og eru nú í 9. sæti en þó aðeins fimm frá Meistaradeildarsæti.