Fréttir
88 89 90 91 92 93 94 95 96 … 334 ›
Sigurður Ingi mætir í Samtalið á ólgutímum Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14:00. Seinna í dag liggur leið hans á Bessastaði til að taka einnig við innviðaráðuneytinu í minnihluta starfsstjórn. Innlent 17.10.2024 12:24
Starfsstjórn með minnihluta á Alþingi tekur við síðdegis Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem mynduð var í apríl verður formlega leyst frá völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag, tveimur dögum eftir að forseti Íslands samþykkti lausn hans og annarra ráðherra þeirrar ríkisstjórnar úr embætti og skipaði alla ráðherrana í starfsstjórn. Ný minnihluta-starfsstjórn tekur við völdum á Bessastöðum síðdegis. Innlent 17.10.2024 12:13
„Kennarar eru ekki eyland í kjarabaráttunni“ Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs hjá SA segir að viðbótarhækkanir til kennarastéttarinnar geti raskað kjarasátt í landinu. Kennarar séu ekki eyland, fleiri hópar eigi eftir að klára sína samninga. Þá segir hann að samanburður einkageirans og hins opinbera sé snúinn því margir kostnaðarliðir, umfram laun, hvíli á herðum opinberra vinnuveitenda. Innlent 17.10.2024 12:02
Jón Magnús gefur kost á sér Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, mun óska eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Innlent 17.10.2024 12:02
Þau skipa uppstillingarnefnd Sjálfstæðismanna í Reykjavík Fimmtán manns tóku sæti í uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fundi kjördæmaráðs flokksins í gær. Berta Gunnarsdóttir, varaformaður Varðar – fulltrúaráðssins í Reykjavík, er formaður nefndarinnar. Innlent 17.10.2024 11:38
Þingrof í morgun og ríkisráð hittist síðdegis Í hádegisfréttum verður farið yfir tíðindi dagsins en klukkan hálfellefu hófst þingfundur þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti formlega um þingrof og kosningar. Innlent 17.10.2024 11:36
„Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Tvær B-2 sprengjuflugvélar voru í nótt notaðar til að varpa sprengjum á neðanjarðarbyrgi Húta í Jemen. Sprengjuflugvélarnar búa yfir tækni sem gerir erfitt að sjá þær á ratsjám og eru meðal háþróuðustu herflugvéla heims. Erlent 17.10.2024 11:35
„Loksins er lokið lengsta dauðastríði nokkurrar ríkisstjórnar“ Forsætisráðherra tilkynnti um þingrof og kosningar á þingi í dag. Formaður Miðflokksins sagði dauðastríði ríkisstjórnarinnar loks lokið og formenn annarra stjórnarandstöðuflokka sögðu kosningarnar tækifæri til breytinga. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði erindi ríkisstjórnarinnar lokið og formaður Vinstri grænna sagði hann óhæfan til að leiða ríkisstjórn. Innlent 17.10.2024 11:22
Áslaug Arna vill halda sæti sínu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur lýst því yfir að hún vilji leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Innlent 17.10.2024 11:14
Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrataflokksins, var til viðtals á Fox News í gær og sitt sýnist hverjum um hvernig hún stóð sig. Erlent 17.10.2024 10:41
Stefnir á áframhaldandi þingsetu Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, stefnir á áframhaldandi þingsetu. Hann segist eiga eftir að taka samtalið við félaga sína í Sjálfstæðsflokknum í Reykjavík en að hann muni áfram bjóða fram krafta sína. Innlent 17.10.2024 10:28
Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“. Erlent 17.10.2024 10:22
Lenya vill forystusæti hjá Pírötum í Reykjavík Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Pírata í Reykjavíkurkjördæmunum. Það tilkynnti Lenya á Facebook í færslu í gær. Hún hefur síðustu þrjú ár sinnt varaþingmennsku fyrir flokkinn en segir tíma til kominn að hleypa nýju fólki að borðinu. Innlent 17.10.2024 10:09
Varaþingmaður vill þriðja sætið Ingveldur Anna Sigurðardóttir, lögfræðingur og varaþingmaður, vill þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Innlent 17.10.2024 10:00
Þingrof og kosningar á dagskrá þingsins Þingfundur hefst klukkan 10.30 í dag. Á dagskrá fundarins er tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar þann 30. nóvember. Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 17.10.2024 09:56
Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Ítalska þingið samþykkti bann við því að fólk leiti eftir staðgöngumæðrun erlendis í gær. Andstæðingar ríkisstjórnar Giorgiu Meloni forsætisráðherra segja lögunum beint að samkynja pörum. Erlent 17.10.2024 08:46
Ólafur vill leiða listann Ólafur Adolfsson lyfsali hjá Apóteki Vesturlands og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi gefur kost á sér í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á Norðvesturlandi. Áður hefur Teitur Björn Einarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnt að hann sækist eftir sama sæti. Innlent 17.10.2024 08:15
Lyfjaávísanir um 20 lækna til rannsóknar hjá landlæknisembættinu Lyfjaávísanir um það bil 20 lækna eru til rannsóknar hjá landlæknisembættinu og hafa viðkomandi annað hvort fengið sent bréf frá embættinu eða eiga von á bréfi, þar sem þeim gefst kostur á andsvörum. Innlent 17.10.2024 07:37
Dálítil rigning sunnan- og vestanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu og skýjuðu, en átta til þrettán metrum á norðvestanverðu landinu. Veður 17.10.2024 07:09
Skora á Alþingi að axla ábyrgð og greiða fyrir nýrri Ölfusárbrú Héraðsnefnd Árnesinga skorar á Alþingi að axla ábyrgð og leysa úr þeim hnökrum sem upp hafa komið vegna fjármögnunar nýrrar brúar yfir Ölfusá. Innlent 17.10.2024 07:07
„Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar. Innlent 17.10.2024 07:02
Kjarasamningar opinberra starfsmanna megi ekki raska kjarasátt „Kennarar eru til fyrirmyndar og ég öfunda þau af því að fá að kenna. Það eru því mikil vonbrigði að samninganefnd kennara og forysta kennarasambandsins grípi nú til skæruverkfalla með tilheyrandi röskun á skólastarfi og óvissu án þess að leggja fram skýrar kröfur í kjarasamningum.“ Innlent 17.10.2024 06:53
Ráðist á starfsfólk hótels Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna einstaklings sem var sagður hafa ráðist á starfsfólk hótels í póstnúmerinu 105. Innlent 17.10.2024 06:26
Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi Reikna má með fjölmenni í Valhöll á sunnudaginn þegar hart verður barist um sæti á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar þann 30. nóvember næstkomandi. Formaður og varaformaður bjóða sig fram í tvö efstu sætin en reikna má með að varaformaðurinn fái harða baráttu um annað sætið. Sigur yrði risaskref í átt til formennsku en tap gæti sett frekari frama innan flokksins úr skorðum. Innlent 17.10.2024 00:13
Sendur í leyfi Úlfur Einarsson forstöðumaður Stuðla hefur verið sendur í ótímabundið leyfi frá störfum sínum á meðferðarheimilinu. Úlfur tjáði sig opinskátt um alvarlega stöðu sem uppi væri á Stuðlum í fréttaskýringarþættinum Kveik í gær. Innlent 16.10.2024 23:59
Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins, sem kenndur er við Hamborgarabúlluna, hyggst gefa kost á sér á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Innlent 16.10.2024 23:15
Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið Þórunn Sveinbjarnardóttir gefur kost á sér í 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður flokksins sækist einnig eftir oddvitasætinu. Innlent 16.10.2024 22:46
Uppstillingar á báðum listum í Reykjavík Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík samþykkti í kvöld einróma að haga vali á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmum með uppstillingu. Innlent 16.10.2024 22:13
Hundrað ára Carter búinn að kjósa Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti sem varð hundrað ára á dögunum, er búinn að kjósa í bandarísku forsetakosningunum. Hann kaus með utankjörstaðaratkvæði, sem var lagt í pósthólf við dómshús í borginni Americus í Georgíuríki. Erlent 16.10.2024 21:52
Oddný ætlar ekki aftur fram Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður flokksins, mun ekki sækjast eftir sæti á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. Innlent 16.10.2024 21:19