Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. ágúst 2026 20:40 Elizabeth-Jane Ross hafði verið í Grikklandi í um hálfan mánuð þegar hún lést. Facebook Maður hefur játað að hafa flutt lík skoskrar konu í ferðatösku og komið því fyrir í yfirgefinni byggingu í Aþenu í Grikklandi. Heimilislaus maður fann líkið nokkrum dögum síðar.
Hin 38 ára gamla Elisabeth-Jane Ross fannst látin í Kypseli-hverfi Aþenuborgar þann 18. júlí, nokkrum dögum eftir að tilkynnt var um að hennar væri saknað. Lögreglan í Aþenu hóf rannsókn í samstarfi við yfirvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi og Skotlandi og hefur nú handtekið 26 ára gamlan mann sem breska ríkisútvarpið segist hafa heimildir fyrir að sé frá Afganistan. Maðurinn var færður á lögreglustöð á fimmtudag þar sem hann játaði aðild sína að málinu. Hann var handtekinn grunaður um manndráp, rán og brot á vopnalögum, en endanleg ákæra liggur ekki fyrir. Samkvæmt lögreglu kom Ross, sem fjölskylda hennar kallaði Lisu, til Grikklands 26. júní og dvaldi á Píreus-svæðinu til 10. júlí, en hélt þá til óþekkts áfangastaðar á Stór-Aþenusvæðinu. Eftir að hafa skoðað myndbandsupptökur segist lögregla hafa tengt 26 ára manninn við málið. Hann er sagður hafa flutt lík Ross í ferðatösku þangað sem það fannst, og í kjölfarið notað bankakort hennar til að taka út peninga. Við húsleit á heimili hans fundust jafnframt gerviskammbyssa og hnífur sem lögregla lagði hald á. Ross hafði upphaflega dvalið í Keratsini-hverfi, tæpa tíu kílómetra vestur af miðborg Aþenu, hjá grískum vinum. Hún mun hafa sagt þeim þann fimmtánda júlí að hún ætlaði til Kypseli, þar sem „amerískir vinir“ hennar eða kunningjar væru. Þessara amerísku vina er nú leitað.
Skotland Grikkland Erlend sakamál Bretland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Sjá meira