Einn þeirra handteknu sautján ára Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. ágúst 2026 15:06 Lögreglu barst fyrst tilkynning um málið rétt fyrir klukkan tvö síðdegis í gær. Samsett Mennirnir sem handteknir voru í gær á Akureyri á aldrinum sautján til tuttugu og tveggja ára samkvæmt heimildum fréttastofu.
Fimm voru handteknir á Akureyrií aðgerð lögreglu og sérsveitar í gær fyrir að hafa skotvopn í fórum sínum. Byssurnar sem lögregla fann reyndust ekki vera alvöru skotvopn en varðstjóri lögreglunnar á Norðurlandi eystra sagði byssurnar vera „nákvæmar eftirlíkingar af skotvopni“ fyrr í dag. Sjá einnig: Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Mennirnir eru í kringum tvítugt en sá yngsti er sautján ára drengur, samkvæmt heimildum fréttastofu. Kári Erlingsson, varðstjóri lögreglunnar á Akureyri, segir sig ekki geta staðfest að einn þeirra sé undir lögaldri en segir að mennirnir séu „um átján ára til tvítugt.“ Lögregla hafi fyrst áttað sig á að ekki væri um alvöru skotvopn að ræða þegar verið var að haldleggja vopnin í kjölfar handtöku, að sögn Kára. Lögreglu hafi fyrst borist tilkynning um einstaklinga að miða vopnum úr bílum að vegfarendum rétt fyrir klukkan tvö síðdegis í gær. Heimildir fréttastofu herma að byssurnar hafi verið keyptar í leikfangavöruversluninni Kids Coolshop fyrr um daginn. Ungu mennirnir hafi verið stöðvaðir af lögreglu við byssuleik. Hér að neðan má sjá myndir af annarri tveggja umræddra byssa. Byssan kostar 7499 krónur í vefverslun Kids Coolshop. Kids Coolshop Byssan er frá leikfangaframleiðendanum Gonher og er eftirlíking af MP5 A5 vélbyssu. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot.
Akureyri Lögreglumál Tengdar fréttir Miðaði byssu á annan mann Eftir að hafa varist allra fregna um aðgerðir í dag sagði aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að tilkynnt hefði verið um mann vopnaðan skotvopni að miða því á annan mann. Fimm voru handteknir í dag. 2. ágúst 2026 19:48 Tveir lagðir við gangstéttina Á myndbandi sem fréttastofu barst sést aðgerð sérsveitar og lögreglu á Akureyri í dag frá öðru sjónarhorni þar sem minnst tveir menn voru látnir liggja á gangstéttinni. Fimm voru handteknir og skotvopn fundust í tveimur bílum. 2. ágúst 2026 19:16 Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Sjá meira
Miðaði byssu á annan mann Eftir að hafa varist allra fregna um aðgerðir í dag sagði aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að tilkynnt hefði verið um mann vopnaðan skotvopni að miða því á annan mann. Fimm voru handteknir í dag. 2. ágúst 2026 19:48
Tveir lagðir við gangstéttina Á myndbandi sem fréttastofu barst sést aðgerð sérsveitar og lögreglu á Akureyri í dag frá öðru sjónarhorni þar sem minnst tveir menn voru látnir liggja á gangstéttinni. Fimm voru handteknir og skotvopn fundust í tveimur bílum. 2. ágúst 2026 19:16