Fréttir
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 334 ›
Skilti Skúbbs þarf að fjúka í nágrannadeilum sem líkt er við stríð Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Skúbb ísgerðar um að fella úr gildi ákvörðun þess efnis að ísbúð Skúbbs, við Laugarásveg í Reykjavík, sé skylt að fjarlægja ljósaskilti við verslunina. Eigendur ísbúðarinnar segja nágranna heyja stríð gegn sér. Innlent 30.1.2025 14:20
Lilja útilokar ekki formannsframboð og vill flýta flokksþingi Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins útilokar ekki að hún bjóði sig fram til embættis formanns flokksins fyrir næsta flokksþing sem hún vill flýta. Flokkurinn verði að bregðast við miklum breytingum í innanlands- og utanríkismálum. Innlent 30.1.2025 14:05
Taka norsku stjórnina úr sambandi vegna orkumála Norska ríkisstjórnin er sprungin eftir að þingflokkur Miðflokksins ákvaða að slíta samstarfi við Verkamannaflokkinn í dag. Leiðtogi flokksins segist ekki vilja vilja færa Evrópusambandinu aukin völd. Erlent 30.1.2025 13:42
Ekki ljóst hvort skýringar Sjálfstæðismanna haldi vatni Fjármálaráðuneytið hefur staðfest að Sjálfstæðisflokkur og Píratar uppfylltu ekki skilyrði laga til úthlutunar framlaga úr ríkissjóði þegar úthlutun fór fram árið 2022. Ekki hefur verið tekin afstaða til þýðingar þess að breyta skráningu eftir úthlutun. Allir flokkar, þeirra á meðal Flokkur fólksins, hafi aftur á móti uppfyllt önnur skilyrði. Sjálfstæðismenn fengu fréttabréf í fyrrakvöld þar sem sagði að fréttaflutningur um styrkjamál flokksins væri úr lausu lofti gripinn og í besta falli byggður á misskilningi. Innlent 30.1.2025 13:13
Búið að ná 28 líkum upp úr ísilögðu vatninu Fjölmiðlar vestanhafs segja 28 lík hafa verið heimt úr Potomac-ánni, þar sem brak úr flugvélinni og þyrlunni sem lentu saman í gærkvöldi flýtur innan um ís. Yfirvöld hafa ekki staðfest fjölda látinna en ef rétt reynist eru 39 enn í vatninu. Erlent 30.1.2025 12:43
Umferð um brautina gangi hægt Reykjanesbraut hefur verið opnuð aftur eftir um tveggja tíma lokun. Lögreglustjóri segir umferð þó ganga hægt, enda aðstæður erfiðar. Gular viðvaranir eru í gildi víða, en appelsínugular taka gildi á morgun. Innlent 30.1.2025 12:11
Leggur fram innanhússtillögu Ríkissáttasemjari leggur fram innanhússtillögu í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög á fundi í Karphúsinu klukkan fjögur í dag. Ekki þarf að setja innanhússtillögu í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna en samninganefndir beggja aðila þurfa að fallast á hana innan tiltekins tíma. Innlent 30.1.2025 11:53
Plottað um heimsyfirráð eða dauða Blásið verður til Kvennaárs með dansveislu í Iðnó í kvöld. Í ár eru fimmtíu ár liðin frá Kvennafrídeginum og í tilefni þess verður allt árið verður lagt undir jafnréttisbaráttu að sögn formanns BSRB. Tugir samtaka standa að viðburðinum. Innlent 30.1.2025 11:47
Appelsínugular viðvaranir bætast við þær gulu Líkt og greint hefur verið frá eru gular viðvaranir í öllum landshlutum um helgina. Nú er einnig búið að gefa út appelsínugular viðvaranir í þremur landshlutum. Það er á Miðhálendinu, Suðausturlandi og í Breiðafirði. Veður 30.1.2025 11:40
Sterk tilfinningabönd Sjálfstæðismanna við herbergið koma Guðmundi Ara í opna skjöldu Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar er undrandi á því hversu fast Sjálfstæðismenn vilja halda í þingflokksherbergi sitt. Innlent 30.1.2025 11:39
Kennaradeilan enn í hnút og mannskætt flugslys í Washington Í hádegisfréttum verður fjallað um kennaradeiluna sem enn er í hnút. Innlent 30.1.2025 11:37
Alla grunaði bróðurinn um að standa að baki skálduðum ásökunum Karlmaður hefur verið dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir rangar sakargiftir. Hann tilkynnti lögreglu að bróðir hans hefði framið svívirðileg kynferðisbrot gegn eigin dætrum. Vitni sem lögregla ræddi við í tengslum við hin meintu brot bentu strax á manninn sem líklegasta tilkynnandann. Maðurinn sagði hins vegar að dularfullur maður hefði fengið síma hans lánaðan og hringt á lögreglu. Innlent 30.1.2025 11:20
Búið að opna Reykjanesbraut á ný Reykjanesbraut hefur verið opnuð á nýjan leik. Loka þurfti brautinni í átt til Reykjavíkur vegna gámabíls sem þveraði veginn. Betra færi er á brautinni en í morgun. Innlent 30.1.2025 10:52
Sleginn yfir því hversu margir setji sig í samband við börn daglega Sævar Þór Jónsson, lögmaður ungmennis sem er meðlimur úr eins konar tálbeituhóp, segir að lögreglan verði að taka gögn sem hópurinn hafi afhent lögreglu alvarlega. Innlent 30.1.2025 10:48
Segir Sjálfstæðismenn hyggja á setuverkfall verði þeim vísað á dyr Samfylkingin hefur óskað eftir því að fá úthlutað stærsta þingflokksherberginu í Alþingishúsinu – herbergi sem hefur hýst þingflokk Sjálfstæðisflokksins í 84 ár. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir kröfuna fáránlega enda fullkomlega óþarfa, auk þess að þingflokksherbergið hefur sögulegt og tilfinningalegt gildi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 30.1.2025 10:42
Að minnsta kosti fimm vilja verða rektor Háskóla Íslands Að minnsta kosti fimm hafa í hyggju að sækja um embætti rektors Háskóla Íslands en umsóknarfresturinn rennur út á morgun. Nýr rektor verður skipaður í embætti frá 1. júlí 2025. Innlent 30.1.2025 10:39
Íhaldsmenn taka höndum saman við öfgamenn í aðdraganda kosninga Ályktun gegn innflytjendum og flóttafólki sem Kristilegir demókratar fengu samþykkta með stuðningi öfgahægriflokksins Valkosts fyrir Þýskalands er sögð vatnaskil í þýskum stjórnmálum þar sem flokkar hafa fram að þessu útilokað samstarf við harðlínumennina. Líklegt er að flokkarnir verði þeir tveir stærstu eftir kosningar í næsta mánuði. Erlent 30.1.2025 10:30
Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Stjórnvöld í Rússlandi hafa staðfest að Evgenia Shishkova og Vadim Naumov, fyrrverandi heimsmeistarar í listdansi á skautum, hafi verið meðal farþega í flugvélinni sem fórst fyrir utan Washington í gærkvöldi að staðartíma. Erlent 30.1.2025 09:52
Staða viðræðna valdi „miklum vonbrigðum“ Umboðsmaður barna segir stöðu kjaraviðræðna aðildarfélaga Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga annars vegar og ríkið hins vegar valda miklum vonbrigðum. Innlent 30.1.2025 09:41
Norska stjórnin gæti sprungið í dag Líklegt er talið að samsteypustjórn Verkamannaflokksins og Miðflokksins í Noregi springi jafnvel strax í dag. Þrátefli er sagt uppi á milli flokkanna um hvort innleiða eigi Evróputilskipanir sem eru hluti af svonefndum fjórða orkupakka Evrópusambandsins. Erlent 30.1.2025 08:56
Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Fjórðungur barna sem hefja undirbúningsnám í grunnskóla á Bretlandseyjum er enn í bleyjum. Þá virðast mörg þeirra skorta styrk og hreyfigetu, sem kennarar rekja til mikillar skjánotkunar. Erlent 30.1.2025 07:59
Tafir á Reykjanesbraut og víða óvissustig Færð er farin að spillast á Reykjanesbraut og eru nú umferðartafir vegna þessa. Það sem af er morgni hafa tvö ökutæki runnið út af veginum, en ekki hafa þó orðið meiðsl á fólki. Innlent 30.1.2025 07:46
Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð Þrjátíu og átta ára karlmaður var skotinn til bana í íbúð í sænska bænum Södertälje seint í gærkvöldi. Sænskir fjölmiðlar segja að morðið hafi verið tekið upp og sýnt beint á samfélagsmiðlum, en lögregla á eftir að staðfesta það. Erlent 30.1.2025 07:33
Gengur í storm með slyddu eða snjókomu Það mun ganga í suðaustanhvassviðri eða -storm með slyddu eða snjókomu með morgninum, en rigningu við ströndina og hlýnar nokkuð. Veður 30.1.2025 07:08
Ráðgjafar loftslagsráðuneytis telja losunarskuldbindingar ekki nást Ákvörðun loftslagsráðherra um að halda áfram að nýta sveigjanleika í losunarbókhaldi Íslands byggðist á því mati að landið standist að óbreyttu ekki skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Ríkisjóður hefur þegar afsalað sér hátt í tíu milljörðum króna með því að nýta sér sveigjanleikann. Innlent 30.1.2025 07:03
UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Útlit er fyrir að Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) hætti starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag, eftir að stjórnvöld í Ísrael ákváðu að banna stofnunina innan Ísrael. Erlent 30.1.2025 06:42
Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Óttast er um örlög farþega og áhafnar flugvélar American Airlines sem féll í Potomac-ána nærri Reagan-alþjóðaflugvellinum fyrir utan Washington-borg eftir árekstur við herþyrlu rétt fyrir klukkan 21 að staðartíma. Erlent 30.1.2025 06:14
Starfsemin sé ekki tryggð miðað við núverandi framlög Framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar segir félaginu þröngur stakkur sniðinn fjárhagslega. Félagið hafi þurft að hækka gjöld á þjónustu sem eigi að vera gjaldfrjáls. Síðustu ár hefur félagið annast eina ættleiðingu á ári. Innlent 29.1.2025 23:01
Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Starfsmenn Microsoft og OpenAI rannsaka hvort að DeepSeek, kínversk gervigreind sem olli usla á mörkuðum vestanhafs í vikunni, byggi á gögnum ChatGPT, gervigreindar OpenAI. Kínverska gervigreindin er sögð standa jafnfætis ChatGPT en á að hafa verið mun ódýrari í þróun og notkun. Erlent 29.1.2025 22:51
Segja formann fræðslunefndar hafa brotið siðareglur Félagsfólk Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í Skagafirði telur formann fræðslunefndar Skagafjarðar hafa brotið siðareglur kjörinna fulltrúa og brotið traust með því að taka þátt í því að stefna Kennarasambandi Íslands fyrir ólögmætt verkfall í leikskólum. Innlent 29.1.2025 22:02