Eldgos og jarðhræringar
87 88 89 90 91 92 93 94 95 … 133 ›
Eldgosið gæti staðið lengur en talið var í fyrstu Eldgosið í Geldingadal gæti staðið yfir lengur en í fyrstu var áætlað. Það gæti jafnframt varað í nokkur ár miðað við önnur sambærileg gos. Styrkur gossins hefur smám saman aukist en hraunflæðisspá sýnir að hraunið muni mögulega ná alveg að Stóra-Hrút eftir ellefu daga. Innlent 25.3.2021 18:56
Breyttu gönguleiðinni til að forðast gasmökk úr norðaustri Í ljósi þess vindur úr norðaustri feykir gasmekki yfir nýstikaða gönguleið að eldstöðvunum í dag hafa viðbragðsaðilar stikað nýja varaleið fyrir þá sem áhugasamir eru um að berja eldgosið augum. Innlent 25.3.2021 14:45
Kanna hvort ný sprunga hafi myndast Vísindamenn kanna nú hvort ný sprunga hafi myndast á Reykjanesinu, um sjö kílómetra norðaustur af Keili. Innlent 25.3.2021 10:52
Gasmengun leggur yfir stikuðu gönguleiðina Guðmundur Eyjólfsson, vettvangsstjóri lögreglunnar á Suðurnesjum, ráðleggur fólki að bíða með að leggja af stað í átt að gosstöðvunum í Geldingadal vegna gasmengunar sem leggur yfir stikuðu gönguleiðina. Innlent 25.3.2021 06:50
Gasútstreymið „hættuleg og sterk blanda“ lífshættulegra gastegunda „Nú er orðið ljóst að gasútstreymi frá eldstöðvunum er ekkert í líkingu við það sem við höfum séð áður. Þar er einstaklega hættuleg og sterk blanda CO2 og CO, sem eru lífshættuleg gös.“ Innlent 25.3.2021 00:06
Kærur hafa verið sendar út vegna náttúruspjalla við gosstöðvarnar Umhverfisstofnun hefur sent út kærur vegna umhverfisspjalla í kring um gosstöðvarnar í Geldingadal. Starfsmenn Umhverfisstofnunar hafa orðið vitni að ítrekuðum akstri utan vega ásamt því að almenningur hefur sent inn ábendingar. Tvær kærur hafa þegar verið sendar til lögreglu. Innlent 24.3.2021 20:47
Mögnuð myndbönd af hraunpollum í Geldingadal Göngufólk í Geldingadal hefur verið ráðið frá því að standa á hrauni sem myndast hefur í Geldingadal. Sannarlega ekki að ástæðulausu. Innlent 24.3.2021 16:52
Dorrit vill koma á fót tónlistarhátíð í Geldingadal Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti auglýsir eftir nafni á hátíðina. Volstock er efst á blaði. Lífið 24.3.2021 16:14
Hringadróttinssögudrónamyndband frá gossvæðinu Ljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir fór að gossvæðinu í Geldingadal á dögunum og tók að sjálfsögðu dróna með í ferðina. Lífið 24.3.2021 12:32
Gossvæðið í Geldingadal opið almenningi í dag: Eldgosið skipulagt sem langtímaverkefni hjá lögreglu Gossvæðið í Geldingadal verður opið almenningi í dag. Lögreglan á Suðurnesjum býst við fjölmenni á gosstöðvarnar og horft er á verkefnið til lengri tíma. Skipulag yfirvalda snýr að því að tryggja öryggi á svæðinu. Innlent 24.3.2021 11:50
Lilja Katrín segir súrrealískt að eiga eldgos Lilja Katrín Gunnarsdóttir þúsundþjalasmiður er í þeim einstöku sporum að eiga eldgosið sem nú er í Geldingahrauni. Innlent 24.3.2021 11:49
Eldur og ís mættust á gosstöðvunum Náttúruöflin voru með veislu á Reykjanesskaganum í gær. Göngufólk fékk yfir sig töluverða snjóhríð á leið sinni að gosstöðvunum. Lífið 24.3.2021 11:31
Göngufólki hleypt af stað inn í Geldingadal Lörgeglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að opna aðgengi að gosstöðvunum í Geldingadal. Veðurskilyrði fara batnandi og fylgist Veðurstofa Íslands með veðrinu í rauntíma þökk sé veðurstöð sem komið hefur verið upp í dalnum. Unnið er að því að efla rauntímamælingar á gasi við hraunjaðra. Innlent 24.3.2021 11:16
Ekki ljóst fyrr en um ellefuleytið hvort gossvæðið verði opnað Þeir sem höfðu áhuga á því að sækja gösstöðvarnar á Reykjanesi heim í dag þurfa að bíða eftir niðurstöðu samráðsfundar sem hefst klukkan tíu. Þetta staðfestir Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar við Vísi. Innlent 24.3.2021 09:58
Kröftugra rennsli í öðrum af litlu gígunum tveimur Sigþrúður Ármannsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hvorki hafi opnast ný sprunga á eldstöðvunum í Geldingadal né nýr gígur. Innlent 24.3.2021 06:33
Enginn skjálfti mælst stærri en 3 á síðustu 48 tímum Á síðustu 48 klukkustundum hafa 332 skjálftar mælst á landinu en enginn stærri en 3. Níu skjálftar hafa mælst á bilinu 2 til 3 og 105 á bilinu 1 til 2. Þá hafa 218 mælst minni en 1. Innlent 23.3.2021 23:13
Gosið aldrei sést jafnvel frá Hafnarfirði Eldgosið í Geldingadal sést óvenjuvel frá höfuðborginni í kvöld. Náttúruvársérfræðingur segir engin merki um að gosið hafi aukist. Skyggni og veðurskilyrði í kvöld séu einfaldlega betri en síðustu daga en þó geti verið að minni gígarnir tveir hafi sameinast í einn. Innlent 23.3.2021 22:02
„Þarna var rassinn á mér gjörsamlega að grillast“ Sveinn Snorri Sighvatsson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum síðustu daga eftir að hann reif sig úr öllum fötunum og sat fyrir nakinn – beint fyrir framan glóandi hraunið í Geldingadal. Lífið 23.3.2021 20:02
Aðsóknin alltof mikil miðað við skipulagið Vel hefur gengið að rýma gossvæðið í Geldingadal nú síðdegis, að sögn aðalvarðstjóra á Suðurnesjum. Hann segir óvíst hvort svæðið verði opið almenningi á morgun en ljóst sé að ráðast verði í breytingar á skipulagi. Dagurinn í dag hafi ekki gengið upp. Innlent 23.3.2021 18:55
Myndband af bílaröðinni svakalegu á Suðurstrandarvegi Það er óhætt að segja að margir hafi ákveðið að skella sér að gosstöðvunum í Geldingadal í dag. Og flestir komu á bíl. Innlent 23.3.2021 16:15
Ofan í auga gígsins Hundruð ef ekki þúsundir lögðu leið sína til Grindavíkur í dag og áfram Suðurstrandarveginn í átt að gosstöðvunum. Göngufólk hefur upplifað sólskin og haglél en áfram kraumar í gígnum í Geldingadal. Innlent 23.3.2021 16:08
Ótrúlegt að dróninn hafi lifað þetta af Myndir og myndbönd frá gosinu á Reykjanesskaga hafa vakið mikla athygli síðustu daga, bæði hér á landi og langt út fyrir landsteinana. Björn Steinbekk hefur farið tvær ferðir til að mynda gosið. Lífið 23.3.2021 15:29
Rýma Geldingadal: Gasmengun í dældum gæti nálgast lífshættuleg gildi Nágrenni eldgossins í Geldingadal verður rýmt klukkan 17:00 í dag en Veðurstofan varar við því að hættulegar gastegundir geti safnast fyrir í lægðum og dældum þegar veður lægir. Styrkur gassins þar gæti verið lífshættulegur. Innlent 23.3.2021 15:06
Frumstæðasta kvika sem komið hefur upp í 7000 ár Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir niðurstöður rannsókna á hraunsýnum úr eldgosinu í Geldingadal mjög athyglisverðar og spennandi. Innlent 23.3.2021 12:06
Löng bílaröð á slóðum gossins Fallegt veður er á suðvesturhorninu í dag og greinilega fjölmargir sem ætlað að nota daginn til að heimsækja gösstöðvarnar við Fagradalsfjall. Innlent 23.3.2021 10:50
Ætti að vera í lagi að fara að gosstöðvunum fyrri part dags Eins og veðurspáin er núna þá ætti að vera í lagi að fara að gosstöðvunum fyrri partinn í dag en ekki er mælt með því að fólk sé mikið á ferðinni seinni partinn í dag, það er eftir klukkan fjögur, eða þá að leggja af stað seinni partinn að svæðinu vegna hættu á gasmengun. Innlent 23.3.2021 09:02
Birta hitamynd af sólarhringsgömlu gosi Veðurstofa Íslands birtir á Facebook-síðu sinni í morgun hitamynd af eldgosinu í Geldingadal sem tekin var rúmum sólarhring eftir að það hófst, það er á laugardagskvöldið 20. mars klukkan 22:38. Innlent 23.3.2021 08:14
Fljúga yfir gosstöðvarnar til að meta umfang hraunsins og hraunflæðið Eldgosið í Geldingadal er enn í fullum gangi. Á móti hefur dregið mjög úr skjálftavirkni á svæðinu sé miðað við það sem var í aðdraganda gossins en það hófst á föstudagskvöld. Innlent 23.3.2021 06:52
„Ógleymanlegur morgunn“ ljósmyndarans Ara Magg við gosið Ljósmyndarinn Ari Magg er á meðal þeirra sem lögðu leið sína að eldgosinu um helgina. Þó að gosið í Geldingadal sé ekki stórt þá nást af því stórkostlegar myndir. Lífið 23.3.2021 06:00
Fyrsta gervihnattarmyndin sem sýnir gosið að degi til Fyrsta gervihnattarmyndin sem tekin er að degi til af eldgosinu í Geldingadal, þar sem skýjahula er ekki fyrir gosinu, hefur verið birt. Innlent 23.3.2021 00:19