Eldgos og jarðhræringar
61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 133 ›
Fylgjast vel með Öskju Vakir í ís Öskjuvatns eru afbrigðilega stórar. Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá segir vert að fylgjast vel með. Innlent 9.2.2023 20:02
Gildi TF-SIF seint metið til fulls Ísland er harðbýlt og þjóðin hefur þurft að takast á við margþættar áskoranir tengdar náttúruvá. Slíkt umhverfi kallar á sterka innviði til þess að tryggja almannaöryggi og að efnahagsstarfsemi verði ekki fyrir skakkaföllum. Náttúruhamfarir, svo sem eldgos, ofanflóð og óveður, geta valdið miklu tjóni með litlum fyrirvara og reynt verulega á þanþol innviða. Skoðun 9.2.2023 07:01
Stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð Tyrknesk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast of hægt við afleiðingum jarðskjálftanna á mánudag. Nú er talið að yfir ellefu þúsund hafi farist í skjálftunum. Íslenskt björgunarfólk er komið á hamfarasvæðið í Tyrklandi. Við vörum við myndefni í þessari frétt. Erlent 8.2.2023 19:00
Hópur Landsbjargar nálgast hamfarasvæðið: „Ekkert rafmagn og skortur á bensíni“ Heildarfjöldi látinna í jarðskjálftanum í Tyrkjaldi og Sýrlandi er nú kominn upp í ellefu þúsund en búist er við að sú tala muni hækka. Hópur Landsbjargar lenti í Tyrklandi í nótt og er nú á leið með rútu inn á hamfarasvæði en íbúar gagnrýna stjórnvöld fyrir hægagang í björgunaraðgerðum. Innlent 8.2.2023 12:04
„Hvað á ég að gera? Hvert á ég að fara?“ Heildarfjöldi látinna í jarðskjálftanum í Tyrklandi og Sýrlandi stendur nú í 8.400 en raunverulegur fjöldi er talinn mun meiri. 5. 894 hafa fundist látnir í Tyrklandi og 2.470 í Sýrlandi en þúsundir eru taldar fastar undir húsarústum. Erlent 8.2.2023 06:48
Jarðskjálftahamfarir í Tyrklandi og Sýrlandi: Hvað get ég gert? Aðfaranótt mánudags áttu gríðarlega öflugir jarðskjálftar sér stað í Tyrklandi sem ollu ólýsanlegum skemmdum, þjáningu, ringulreið, hræðslu og ótta og kostuðu þúsundir lífið. Skoðun 7.2.2023 17:01
„Gat ekki staðið í lappirnar og var mjög hrædd“ „Þetta er skelfilegt,“ segir Birkir Bjarnason, leikjahæsti landsliðsmaður Íslands í fótbolta, sem býr ásamt kærustu sinni í Tyrklandi þar sem risastór jarðskjálfti reið yfir í nótt og hefur orðið fjölda fólks að bana. Fótbolti 6.2.2023 10:34
Að minnsta kosti 640 látnir eftir skjálftann í Tyrklandi og Sýrlandi Að minnsta kosti 640 eru látnir eftir að 7,8 stiga skjálfti reið yfir suðurhluta Tyrklands og norðurhluta Sýrlands snemma í morgun. Gert er ráð fyrir að raunverulegur fjöldi látinna sé mun meiri og hundruð manns sögð föst undir rústum bygginga. Erlent 6.2.2023 09:22
Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir vísindamenn og viðbragðsaðila í áfalli vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um að selja TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar. Innlent 2.2.2023 11:33
Átta hundruð slösuðust í jarðskjálfta Átta hundruð slösuðust og þrír létust í jarðskjálfta af stærðinni 5,9 í Íran í gær. Jarðskjálftinn skall á rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Erlent 29.1.2023 21:48
Eyjamenn minnast hálfrar aldar afmælis eldgossins Hálf öld er í dag, 23. janúar, liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973. Gosafmælisins er minnst með margvíslegum hætti í Vestmannaeyjum og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Eyjamenn. Innlent 23.1.2023 09:39
Edda og Páll rifja upp Heimaeyjargosið: Bæjarstjórinn á Hlíðarenda og símar fastir í vegg Hálf öld er liðin frá Heimaeyjargosinu sem hófst aðfaranótt 23. janúar 1973. Fjallað var um þetta fyrsta eldgos sem hófst í byggð á Íslandi í þættinum 50 ár frá gosi, á Bylgjunni í morgun, sunnudag klukkan 9. Í þættinum spjallaði Sighvatur Jónsson við Eddu Andrésdóttur og Pál Magnússon um gosið. Lífið 22.1.2023 15:51
Hálfs metra landris í Öskju GPS mælingar sína að land í Öskju hefur risið um hálfan metra frá því mælingar hófust í ágúst 2021. Landrisið er talið vera vegna kvikusöfnunar á litlu dýpi í eldstöðinni. Innlent 22.1.2023 12:02
Blysför í Vestmannaeyjum í tilefni 50 ára gosafmælis Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Vestmannaeyjar á morgun, mánudag, 23. janúar, í tilefni þess að 50 ár verða liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Hápunktur margvíslegra minningarviðburða í bænum verður blysför frá Landakirkju annaðkvöld að Eldheimum þar sem gossins verður minnst með athöfn sem hefst klukkan 19:30. Fréttir 22.1.2023 05:51
Litaveisla á morgunhimninum yfir Akureyri Akureyringar og nærsveitungar hafa heldur betur fengið sýningu í morgun. Stærðarinnar glitský hafa skreytt morgunhimininn. Innlent 21.1.2023 11:07
Svona upplifðu Eyjamenn að vakna upp við eldgos Fimmtíu ár verða liðin á mánudag, 23. janúar, frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973, sem telja má einn af stærstu viðburðum Íslandssögunnar. Yfir fimm þúsund íbúar Vestmannaeyja þurftu í skyndi að yfirgefa heimili sín um nóttina þegar gossprunga opnaðist í jaðri byggðarinnar. Innlent 21.1.2023 07:01
Litadýrðin rakin til eldgossins öfluga hinum megin á hnettinum Ef til vill hafa Íslendingar tekið eftir því að sólarupprás og sólarlag síðustu daga hafa verið í litskrúðugri kantinum. Að öllum líkundum má rekja ástæður þess og uppruna eitt ár aftur í tímann og í 15 þúsund kílómetra fjarlægð frá Íslandi, til eyríkisins Tonga í Kyrrahafi. Innlent 19.1.2023 11:27
Vatnið úr Fukushima losað út í sjó í vor eða sumar Stjórnvöld í Japan hyggjast hefja losun milljóna tonna af vatni úr kjarnorkuverinu í Fukushima í hafið í vor eða sumar. Ákvörðunin hefur vakið mikla reiði meðal fiskara og nágrannaríkja Japan. Erlent 13.1.2023 09:03
Enn gýs í Kilauea-fjalli á Havaí Eldgos er hafið í toppgíg Kilauea-fjalls á Havaíeyjum innan við mánuði eftir að hraun hætti að renna þar og í stærri nágranna þess Mauna Loa. Tindurinn er fjarri mannabyggðum og er þeim ekki talin stafa hætta af gosinu. Erlent 6.1.2023 10:35
Myndir ársins 2022: Eldgos, óveður og menn í járnum Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu. Innlent 4.1.2023 09:30
Skjálfti 3,4 að stærð við Krýsuvík Skjálfti 3,4 að stærð varð við Krýsuvík klukkan 10:13 í morgun. Skjálftinn fannst meðal annars á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 21.12.2022 10:38
Tíu þúsund án rafmagns eftir jarðskjalfta upp á 6,4 Jarðskjálfti að stærð 6,4 reið yfir í norður Kaliforníu, á svæði í kringum borgina Eureka, í dag. Um 10 þúsund manns eru án rafmagns og að minnsta kosti tveir eru slasaðir. Skemmdir urðu einnig á vegum á svæðinu. Erlent 20.12.2022 20:07
Sterkur skjálfti mældist í Kötlu Rétt upp úr klukkan ellefu mældist skjálfti af stærðinni 3,8 í norðanverðri Kötluöskju. Ein tilkynning hefur borist um að skjálftinn hafi fundist í Drangshlíðardal. Innlent 18.12.2022 12:22
Vísindamaðurinn í fallegu lopapeysunum heiðraður í Bandaríkjunum Freysteinn Sigmundsson, vísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskólans, hefur verið kjörinn heiðursfélagi hjá Sambandi bandarískra jarðvísindamanna (American Geophysical Union - AGU) fyrir rannsóknir sínar og framlag á sviði jarðeðlisfræði. Greint er frá þessu á vef Háskóla Íslands. Innlent 16.12.2022 18:21
Fundu merki um að Mars sé enn jarðfræðilega virkur Athuganir á reikistjörnunni Mars benda til þess að þar sé að finna virkan möttulstrók undir yfirborðinu. Reikistjarnan hefur fram að þessu verið talin jarðfræðilega óvirk en strókurinn sem menn telja sig hafa fundið gæti knúið jarðskjálfta, misgengishreyfingar og jafnvel eldgos. Erlent 6.12.2022 10:52
„Við hefðum ekki getað verið heppnari“ Þúsundir flykktust að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli þegar eldgos hófst þar á ný í ágúst. Í þetta sinn voru engar samkomutakmarkanir líkt og árið áður og því fátt sem kom í veg fyrir að erlendir ferðamenn gerðu sér ferð til að skoða gosið. Eldgosið stóð undir væntingum og gerði marga agndofa. Innlent 5.12.2022 07:00
Eldgosið ógnar sögulegri loftslagsmæliröð Athuganastöð sem mælir styrk koltvísýrings á Mauna Loa á Havaí hefur verið stopp frá því að eldgos hófst í fjallinu fyrir rúmri viku. Mæliröðin þar er sú elsta samfellda um vaxandi styrk gróðurhúsalofttegundarinnar í lofthjúpi jarðar. Erlent 4.12.2022 13:41
Margir spenntir en aðrir varkárir eftir að Mauna Loa vaknaði Mikið sjónarspil blasir við á Hawaii þar sem hraun streymir úr stærsta virka eldfjalli heims. Gos hófst í Mauna Loa eldfjallinu aðfaranótt mánudags í fyrsta sinn í fjörutíu ár og Íslendingar kannast eflaust vel við appelsínugula bjarmann og bjarta hraunsprunguna í líkingu við það sem þar má nú sjá. Erlent 30.11.2022 11:00
Skjálftar í Bárðarbungu og Goðabungu Um klukkan eitt í nótt varð skjálfti af stærðinni 3,8 í Bárðarbungu í Vatnajökli og um 20 mínútum síðar reið yfir skjálfti af stærðinni 3,0 í Goðabungu í Mýrdalsjökli. Innlent 29.11.2022 06:15
Stærsta eldfjall jarðar byrjað að gjósa Eldgos hófst í Mauna Loa, stærsta virka eldfjalli jarðar, á Havaí í nótt. Hraunrennsli er enn bundið við tind fjallsins og ógnar það ekki nærliggjandi byggð. Erlent 28.11.2022 14:04