Eldgos og jarðhræringar
121 122 123 124 125 126 127 128 129 … 132 ›
Eldgosið hefur verið stöðugt í dag Eldgosið hefur verið stöðugt í dag, mökkurinn rís í 6-9 km hæð og leggur til suðurs. Það gýs úr eins km langri sprungu sem liggur frá norðri til suðurs í suðvesturhluta toppgígsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Innlent 17.4.2010 19:27
Sala á rykgrímum hefur margfaldast Sala á rykgrímum hefur margfaldast í verslunum og apótekum á höfuðborgarsvæðinu og fyrir austan undanfarna tvo daga vegna öskufallsins í Eyjafjallajökli. Sóttvarnalæknir fullyrðir að engin hætta stafi af öskufallinu fari fólk eftir varúðarráðstöfunum landlæknis. Innlent 17.4.2010 19:15
Dregið hefur úr flóðahættu Gosmökkurinn úr Eyjafjallajökli sést í allt að níu kílómetra hæð. Nokkuð rofaði til yfir gosstöðvunum í gærkvöldi. Jarðeðlisfræðingur býst við að draga taki úr gosinu á næstu dögum. Innlent 17.4.2010 19:08
Ræddu um erlenda fjölmiðlaumfjöllun um eldgosið Samráðshópur stjórnvalda og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu hittist í dag í utanríkisráðuneytinu til að ræða samstarf og aðgerðir til að bregðast við erlendri fjölmiðlaumfjöllun um Ísland vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Markmið hópsins er að tryggja að frá Íslandi fari áfram réttar og yfirvegaðar upplýsingar um stöðu mála, að fram kemur í sameiginlegri fréttatilkynningu frá iðnaðar- og utanríkisráðuneytinu. Innlent 17.4.2010 17:47
Allt Evrópuflug Icelandair fellur niður á morgun Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga, þ.e. London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, Amsterdam, Frankfurt og Parísar á morgun, 18. apríl, verði fellt niður, líkt og raunin var um flugið til Evrópu í dag. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu. Innlent 17.4.2010 17:30
„Ég hef ekki séð það svartara“ „Það er stafalogn og óloft sem hefur leitað inn í húsin til okkar," segir Sigurgeir L. Ingólfsson á bænum Hlíð undir Eyjafjöllum. Þar hefur líkt og víða annars staðar verið mikið öskufall vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. „Ég hef ekki séð það svartara. Hér er mun meira myrkur en nokkurn tíma verður á venjulegri vetrarnóttu," segir Sigurgeir. Innlent 17.4.2010 17:01
Fjölmargir björgunarsveitarmenn að störfum Á svæðinu í grennd við Eyjafjallajökul eru meira en 160 björgunarsveitarmenn að störfum frá 12 björgunarsveitum, samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Meðal verkefna þeirra hefur meðal annars verið að til að athuga með fólk á bæjum. Innlent 17.4.2010 15:48
Útlendingar vilja komast úr landi með leiguflugi Undanfarna daga hefur mikil eftirspurn verið eftir flugi frá Íslandi með leiguflugi, að sögn Sigurðar Bjarna Jónssonar, stjórnarformanns Mýflugs. Um er að ræða útlendinga sem eru fastir hér á landi og vilja komast til meginlands Evrópu. Mýflug íhugar að fljúga til norðurhluta Noregs. Innlent 17.4.2010 15:21
Aflýsa flugi fram yfir helgi Flugfélagið British Airways hefur aflýst öllu flugi frá London að minnsta kosti fram á mánudag. Um er að ræða áætlað flug frá Heathrow og Gatwic, að fram kemur á vef Sky-fréttastofunnar. Vonast er til þess að hægt verði að fljúga eitthvað innanlands í Skotlandi og á Írlandi seinnipartinn í dag. Erlent 17.4.2010 14:36
Þjóðvegi 1 lokað við Hvolsvöll Almannavarnir ítreka að Eyjafjallajökull og hlíðar hans utan jökuls eru bannsvæði. Vindátt þurfi lítið að breytast til að öskufall verði þar. Í öskufalli svo nálægt eldstöðinni og í hæð jökulsins sé, auk mikilla áhrifa af öskunni sjálfri, mikil hætta af eldingum. Almannavarnir vara sterklega við öllum ferðum á Mýrdalsjökul. Jafnframt er enn er í gildi bannsvæði um 1 km. í kringum eldri eldstöðina á Fimmvörðuhálsi. Öll umferð á þessu svæði er bönnuð bæði gangandi og akandi ferðamönnum. Innlent 17.4.2010 12:06
Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur open Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur have been opened for those residents in the areas affected by the ash fall and who wish to temporarily evacuate their homes. The local emergency centre does not consider it necessary to order an evacuation of the area in response to the ash fall at this moment in time, but feels that these services may be useful to some families. Innlent 17.4.2010 11:24
Eldingar yfir Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var staddur í grennd við Eyjafjallajökul í gærkvöldi og í nótt og fylgist með sjónarspilinu þar. Í meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá stórkostlegar myndir af eldingum í gosmökkinum. Innlent 17.4.2010 11:14
Opna fjöldahjálparstöðvar Mikill öskumökkur er til suðurs yfir byggð undir Eyjafjöllum frá Sauðhúsvöllum austur fyrir Skóga og eins á söndunum þar fyrir austan. Eldingar eru í mekkinum, að fram kemur frá yfirvöldum. Innlent 17.4.2010 11:06
Mikið öskufall frá Núpi og að Vík í Mýrdal Mikið öskufall er frá Núpi undir Eyjafjöllum og að Vík. Líkur eru á að öskufall færist vestar og nái hugsanlega til Vestmannaeyja. Innlent 17.4.2010 09:28
Gosið lamar enn samgöngur í Evrópu Nær allir stærstu flugvellir Evrópu verða áfram lokaðir í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Milljónir flugfarþega er nú strandaglópar en samkvæmt breska ríkisútvarpinu þurfti að aflýsa um 16 þúsund áætlunarferðum vegna öskufallsins í gær. Erlent 17.4.2010 08:26
Icelandair fellir niður allt flug til Evrópu í dag Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, og Amsterdam í dag,17. apríl, verður fellt niður. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu. Innlent 17.4.2010 07:23
Talið að draga verði úr ráðherraræðinu Í siðferðihluta skýrslu rannsóknarnefndar segir að þjálfa þurfi þjóðina í málefnalegri rökræðu og menntamálaráðherra tekur undir það. Vilhjálmur Árnason vill ekki ræða gagnrýni forsetans, sem gerir lítið úr kafla um sig. Styrkja þarf siðferðisvitund stjórnmálamanna og auka virðingu þeirra fyrir góðum stjórnarháttum. Þeir eiga að setja sér siðareglur. Þá þarf að draga úr ráðherraræði og auka eftirlitshlutverk Alþingis. Innlent 16.4.2010 22:42
Vonar að gosmyndin borgi varnargarðinn Fjölskyldan á Þorvaldseyri má hafa sig alla við að svara fyrirpurnum erlendra fjölmiðla vegna heimsfrægrar ljósmyndar bóndans Ólafs Eggertssonar. Hann kveðst vona að greiðslur fyrir myndina dugi til að byggja nýjan flóðvarnargarð. Innlent 16.4.2010 22:41
Tugmilljarða tap á dag Annan daginn í röð var nánast ekkert flogið í Norður-Evrópu. Mat samtaka áætlunarflugfélaga er að tap flugfélaga sé 200 milljónir dollara á dag. Meira en helmingur fluga í evrópskri lofthelgi var felldur niður. Innlent 16.4.2010 22:42
Slógu upp veislu eftir rýmingu Hópur fjörutíu breskra skólakrakka þurfti að rjúka frá heitu lambalærinu á kvöldverðarborðinu á Hellishólum í Fljótshlíð á fimmtudagskvöld þegar kallið kom um rýmingu. Maturinn fór þó ekki til spillis heldur var slegið upp veislu í fjöldahjálparmiðstöðinni á Hellu. Innlent 16.4.2010 22:41
Verðmat eigna hærra en lánin Skuldir Ólafar Nordal Sjálfstæðisflokki og eiginmanns hennar, Tómasar Más Sigurðssonar, sem námu 113 milljónum króna árið 2007 eru tilkomnar vegna fasteignakaupa. Innlent 16.4.2010 22:39
Svartur loðinn tuddi og augun öll á floti Margar sagnir eru til um berdreymi, allt aftur til Íslendingasagnanna. Ef marka má Svein Runólfsson landgræðslustjóra, lifa þær góðu lífi í nútímanum. „Þetta er orðinn fullorðinn maður og kominn á eftirlaun og hann dreymdi draum í vetur, áður en goshrinan hófst. Þegar gosið hófst á Fimmvörðuhálsi sagði hann mér frá þessu,“ segir Sveinn. Innlent 16.4.2010 22:40
Flúorið yfir hættumörkum „Nú vitum við að þetta er yfir hættumörkum,“ segir Gunnar Þorkelsson, héraðsdýralæknir á Kirkjubæjarklaustri, um flúormengunina í öskunni sem fallið hefur úr gosinu. Innlent 16.4.2010 22:39
Komust ekki í sjóbirtingsveiði „Vegna eldgoss í Eyjafjallajökli verða þeir sem eiga veiðileyfi eystra líklegast að sitja heima nema veiðidellan sé svo mikil að farin sé norðurleiðin,“ sagði á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur í gær. Þá voru einmitt hollaskipti í Tungufljóti í Skaftárhreppi. Innlent 16.4.2010 22:39
Getur valdið lungnaskaða Heilbrigðisyfirvöld mæla eindregið með því að þeir sem búa á svæðum þar sem öskufalls gætir geri viðeigandi varúðarráðstafanir. Askan er afar fínkornótt og á greiða leið niður í öndunarfæri og það getur valdið fólki lungnaskaða. Fólk sem á við öndunarfærasjúkdóma að stríða ætti að fara sérstaklega varlega. Það sama á við um börn. Innlent 16.4.2010 22:42
Mörg tonn af ferskum fiski bíða eftir flugi „Við eigum ein sjö tonn af ferskum flökum á Keflavíkurflugvelli sem bíða þess að komast í flug en staðan er vægast sagt mjög óljós. Við erum í stöðugu sambandi við viðskiptavini okkar í Evrópu. Innlent 16.4.2010 22:41
Stjórnar Noregi í gegnum smátölvu vegna eldgossins Öskufallið úr Eyjafjallajökli hefur gríðarlega víðtæk áhrif en fjölmiðlar vestan hafs hafa undanfarið fjallað um hremmingar Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs, en hann situr fastur í New York vegna öskufallsins. Erlent 16.4.2010 21:53
Enn seinkar flugi Icelandair hefur tilkynnt að flug félagsins til London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Amsterdam í fyrramálið, að morgni 17. apríl, verði seinkað til klukkan 12.00 á hádegi að íslenskum tíma. Innlent 16.4.2010 20:11
Rofar til á Eyjafjallajökli Það er að rofa til yfir Eyjafjallajökli en á þessari mynd má sjá gosmökkinn yfir jöklinum vegna eldgossins. Mökkurinn hefur ekki sést undanfarna daga vegna veðurs. Myndin sem fylgir með fréttinni er tekin rétt fyrir utan Hvolsvöll. Innlent 16.4.2010 19:09
Útlendingar kvíða Kötlugosi Öngþveiti ríkir í samgöngum í Evrópu. Flugmálayfirvöld gera ekki ráð fyrir að flug komist í eðlilegt horf fyrr en eftir helgina í fyrsta lagi. Menn eru þegar farnir að kvíða fyrir Kötlugosi. Innlent 16.4.2010 18:56