„Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Agnar Már Másson skrifar 9. september 2026 20:58 Þorgerður Katrín nefndi Farage og Le Pen í þingræðu sinni. Samsett Mynd Utanríkisráðherra sendi fjarhægrimönnum í Evrópu pillu í ræðu á Alþingi í kvöld og sagði þá ekki fá að skilgreina hvað niðurstaða nýafstaðinnar atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB þýði. Í skugga þjóðaratkvæðagreiðslunnar býst ráðherrann við „þverpólitískri samstöðu“ um bæði EES-samninginn og auðlindaákvæði í stjórnarskrá á komandi þingvetri. „
Við þau sem fögnuðu strax niðurstöðunni erlendis – [Marine] Le Pen, [Nigel] Farage, þingmenn AfD í Þýskalandi og Salvini á Ítalíu, sem eru reyndar skoðanasystkini ákveðinna stjórnarandstöðuþingmanna hér inni – vil ég segja: Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði né fyrir hvað hún stendur,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í ræðu á Alþingi í kvöld undir umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Vísaði ráðherrann til Marine Le Pen, leiðtoga frönsku Þjóðfylkingarinnar, og Nigels Farage, leiðtoga Reform-flokksins í Bretlandi, sem óskuðu Íslendingum til hamingju með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst þar sem þjóðin hafnaði aðildarviðræðum við Evrópusambandið með tæplega 53 prósenta meirihluta. „Til hamingju Ísland með að kjósa að halda sjálfstæði ykkar,“ skrifaði Farage að morgni 30. ágúst. „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði né fyrir hvað hún stendur,“ sagði Þorgerður í pontu. „Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar breytir hvorki gildum okkar Íslendinga né áratuga utanríkisstefnu okkar.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í ræðustól Alþingis í kvöld.Vísir/Viktor Freyr Ísland standi enn með alþjóðalögum Hún sagði að Ísland myndi enn standa með alþjóðalögum, friðhelgi landamæra og sjálfsákvörðunarrétti þjóða og áfram beita rödd sinni í þágu jafnréttis og fyrir minnihlutahópa. „Og afneitun loftslagsbreytinga er ekki á dagskrá,“ bætti hún við. „Við stöndum „áfram staðfastlega“ með Úkraínu – og „Grænlandi“ að sjálfsögðu, þótt fyrrum pótintátar þessa lands vilji að við liggjum „lágt“. En ekki síst þá stöndum við með okkur sjálfum. Sem sjálfstæð og fullvalda þjóð. Það eru skýr skilaboð til umheimsins,“ sagði hún. Býst við samstöðu á þingi um EES-samninginn Ísland væri enn hluti af evrópsku fjölskyldunni en fyrst samningaviðræður við Evrópusambandið væru ekki sú leið sem þjóðin vildi þyrfti Ísland að ná markmiðum sínum með öðrum hætti, meðal annars með því að styrkja stöðu Íslands enn frekar innan Evrópu. „Og efla enn frekar samstarfið við okkar nánustu vinaríki, meðal annars Noreg, Bretland og Kanada. Geta þessar þjóðir sameinast í hagsmunagæslu, eins og við Evrópusambandið? Svo ræktum við áfram sterk tengsl vestur um haf og sækjum fram í Asíu.“ Hún sagði að EES-samningurinn gegndi lykilhlutverki í því að koma á stöðugleika í íslensku efnahagslífi og auka samkeppnisstöðu Íslands. „Og það gleður mig að heyra hversu einlæg og djúp ást stjórnarandstöðunnar er nú orðin á samningnum. Ég geri ráð fyrir að þessari miklu þverpólitísku samstöðu fylgi ábyrgð,“ sagði hún en búast má við átökum á þinginu um boðað frumvarp um innleiðingu á bókun 35 úr EES-samningnum. Spretthópur kortleggi hagsmunagæslu og sóknarfæri Íslands Þá sagði Þorgerður að efla þyrfti hagsmunagæslu Íslands, opna á nýja markaði og leita nýrra tækifæra. Hún kvaðst hafa ákveðið að skipa spretthóp til að kortleggja hagsmunagæslu Íslendinga og ný viðskiptatækifæri Íslands. „Ég hef þegar rætt við atvinnulífið vegna þessa og ætlum við að taka höndum saman,“ sagði Þorgerður og tók fram að utanríkisstefna landsins yrði áfram rekin í þágu íslenskra hagsmuna. Þorgerður sagðist ekki ætla að taka ákvarðanir til heimabrúks sem þrengdu framtíðarvalkosti landsins, hvorki þegar kæmi að viðskiptum né varnar- og öryggismálum í breyttum heimi. Býst við „breiðum stuðningi við afgerandi auðlindaákvæði í stjórnarskrá“ „Ég fagna því að nú sé að skapast breið samstaða um að náttúruauðlindir Íslands séu sameign þjóðarinnar. Ég býst því ekki við öðru en breiðum stuðningi við afgerandi auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Í þágu þjóðar,“ sagði hún. Þjóðareign þurfi aftur á móti að fylgja gegnsæi og sú sjálfsagða krafa að almenningur viti hverjir fari með réttinn til að nýta sameiginlegar auðlindir okkar og hvert verðmætasköpunin rennur. „Þess vegna verður einnig varpað skýrara ljósi á eignarhald og tengsl í sjávarútvegi, bæði innlent og erlent, með frumvarpi atvinnuvegaráðherra í vetur,“ sagði Þorgerður, „Þetta er hlutverk stjórnmálanna eins og ég sé þau: Að treysta markaðnum en gæta þess að hann sé opinn öllum. Að standa með atvinnulífinu en ekki sérhagsmunum. Að vernda eignarrétt en muna ávallt að sameiginlegar auðlindir eru sameign þjóðarinnar. Að einfalda kerfin í stað þess að þenja þau út. Að sjá til þess að samfélagið sé öruggt með öflugri lögreglu og traustu áfallaþoli.“
Alþingi Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira