Sýningar á Íslandi

Fréttamynd

Skvísur í svaka­legu stuði á Svikasögum

Stjörnur landsins komu saman í Borgarleikhúsinu um helgina í sínu fínasta pússi þegar fyrsta frumsýning leikársins fór fram á nýja íslenska verkinu Svikasögum eftir Maríu Reyndal.

Menning
Fréttamynd

Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni

Það var margt um manninn í bílakjallara Kringlunnar síðastliðinn fimmtudag. Tilefnið var tískusýning þar sem hausttískunni var gerð góð skil í glæsilegri umgjörð og lýsing, tónlist og stílisering sköpuðu einstaka stemningu.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Stjörnum prýdd fyrsta frum­sýning vetrarins

Það var líf og fjör í Þjóðleikhúsinu síðastliðið fimmtudagskvöld. Fyrsta frumsýning vetrarins fór þá fram með pomp og prakt þegar Nýtt eldhús eftir máli, verk eftir Friðgeir Einarsson, var borið á borð fyrir spennta gesti.

Lífið
Fréttamynd

Kanónur komu saman í Hvera­gerði

Það var líf og fjör á fjögurra sýninga opnun á Listasafni Árnesinga um helgina og margt um manninn. Meðal gesta voru kanónurnar og myndlistarkonurnar Kristín Gunnlaugsdóttir og Steina Vasulka, rithöfundurinn og skáldið Elísabet Jökulsdóttir og Kristín Á. Árnadóttir, fyrrum sendiherra í Vínarborg. 

Menning
Fréttamynd

Þór­dís Zoëga sló í gegn í Kaup­manna­höfn

Fullt var út úr dyrum þegar listakonan Þórdís Erla Zoëga opnaði sýninguna Samrými í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn 27. ágúst síðastliðinn. Sýningin fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra.

Menning
Fréttamynd

„Verkinu er haldið í gíslingu“

Hrafnhildur Arnardóttir, þekkt sem listamaðurinn Shoplifter, segir að verk hennar Chromo Sapiens sé nú til sýningar í Höfuðstöðinni í hennar óþökk. Hún hafi ekki lengur aðgang að sýningarrýminu auk vinnustofu sinnar á svæðinu en búið sé að skipta um lása á byggingunni. Hrafnhildur segir málið hreinan listaverkastuld, enda sé hún réttmætur eigandi verksins.

Innlent
Fréttamynd

Lauf­ey fagnaði Laufeyjardeginum á Ís­landi

Stórstjarnan Laufey Lín mætti til Íslands í síðustu viku. Hún naut sín í botn í Reykjavík um helgina, skellti sér út á lífið með góðum vinum og fagnaði Laufeyjardeginum, sem haldinn var í fjórða sinn síðastliðinn sunnudag.

Lífið
Fréttamynd

Byrjaði sem þrá­hyggja fyrir rapplagi á spítala

„Þessi verk eru rétt og sönn því þau spretta algjörlega upp úr kjarna mínum og frá heila sem stundum fer í gegnum erfið veikindatímabil,“ segir myndlistarkonan Ragnhildur Jóhannsdóttir sem fékk rapplag á heilann meðan hún lá á spítala og í kjölfarið kviknaði hugmynd að listasýningu sem hún opnar næsta föstudag.

Menning
Fréttamynd

Tilraunakennd tísku­sýning í bílakjallara

Mörkin á milli tísku, myndlistar og gjörningalistar eiga það til að vera óljós og eitt listform flæðir gjarnan yfir í annað. Listamennirnir Þorleifur Thorlacius Þrastarson og Rökkvi Kárason hafa verið að leika sér að einmitt þessu í sköpun sinni og afhjúpuðu afraksturinn með allsherjar tískusýningu í bílakjallara Molans í Kópavogi.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Sýning Bjarkar bæði væmin og stór­kost­leg og leggur til stofnun Bjarkarsafns

Listasýningar Bjarkar Guðmundsdóttur og James Merry sem taka yfir Listasafn Íslands í sumar hafa vakið mikla umræðu, trekkt að fjölda gesta en líka hlotið töluverða gagnrýni. Hallgrímur Helgason segir verk Bjarkar á sýningunni misjöfn, allt frá því að vera klisjukennd yfir í að vera stórkostleg. Hann veltir því upp hvort ekki sé kominn tími á sérstakt safn tileinkað Björk.

Menning
Fréttamynd

Í jóla­skapi í júní

Jólaandinn er ekki oft tengdur við júnímánuð en myndlistarkonan Hildigunnur Birgisdóttir er á öðru máli. Hún opnaði sýninguna Jól með pomp og prakt í Ásmundarsal síðastliðinn fimmtudag. 

Menning
Fréttamynd

Ó­lík túlkun lista­manna á Reykja­vík í tvær aldir

Í tilefni 240 ára afmælis Reykjavíkur árið 2026 er ásýnd borgarinnar í gegnum tíðina tekin til skoðunar á sumarsýningu á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni er spurt hvaða augum listamenn líta borgina og hvaða einkenni hennar eru dregin fram í myndmáli ólíkra kynslóða?

Lífið
Fréttamynd

Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei”

Það er úr mörgu að velja í miðborg Reykjavíkur í dag, þjóðhátíðardag Íslendinga, en í Marshall-húsinu úti á Granda verður opnuð sýningin „Hæhóogjibbíjei” klukkan fimm. Að baki sýningunni standa listakonan Elísa Þóreyjardóttir, tvíeykið í Gallerí Kichin og eigendur gallerísins Kling & Bang en nammitískubylgjur á íslenskum markaði voru meðal þess sem Elísa dró innblástur af við undirbúning sýningarinnar.

Menning
Fréttamynd

Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukku­tíma á dag

„Ég hélt bara að árið 2026 væri fólk búið að sjá meira og minna allt og að þetta myndi kannski ekki alveg kveikja á þessum viðbrögðum,“ segir listakonan og dansarinn Lísandra Týra Jónsdóttir sem setti upp gjörninginn „The Urinal“ í sýningarrými á Ingólfsstræti síðastliðna helgi. Gjörningurinn var óhefðbundinn eins og gengur og gerist í slíku listformi en hann snerist um að pissa í klósett í sjö klukkustundir á dag í sex daga í röð.

Menning
Fréttamynd

Sjóð­heitir lista­menn í eina lit­ríka sæng

Við strendur Skerjafjarðar hefur nýtt hönnunarstúdíó litið dagsins ljós. Það ber heitið ÓRAR og er hugarfóstur og samstarfsverkefni listamannanna Elsu Jónsdóttur og Júlíönnu Ósk Hafberg. Þær fögnuðu með glæsilegri opnun á Parliament hótelinu um helgina.

Menning
Fréttamynd

„Hugur manns í þung­lyndi er eineltishrotti“

„Það virðist vera óumflýjanlegt fyrir mig að detta niður í mesta myrkrinu. Í vetur ákvað ég að spyrna við, breyta vörn í sókn og rómantísera myrkrið,“ segir myndlistarkonan Ragnhildur Jóhanns, sem hefur vakið athygli fyrir einstök listaverk sín og eru blómin vinsælt viðfangsefni hjá henni. Blaðamaður ræddi við hana um listina, lífið og andlega heilsu.

Menning
Fréttamynd

Settu tærnar upp í loft og fengu knús

Myndlistarmennirnir Árni Már og Skarphéðinn standa á tímamótum eftir tíu ára rekstur af listrýminu Gallery Port. Þeir stóðu fyrir lokahófi um helgina eftir að hafa staðið að yfir 300 sýningum og viðburðum.

Menning
Fréttamynd

Gjöfull trekantur

Það var líf og fjör í Gallery Port á dögunum þegar sýningin Throuple opnaði með pomp og prakt. Listunnendur komu þar saman og upplifðu fjölbreytileikann.

Menning
Fréttamynd

„Ný sýn, nýr heimur“

Menningarlífið iðaði í Hveragerði um helgina þegar Pétur Markan bæjarstjóri opnaði formlega fimm sýningar á Listasafni Árnesinga. Fjöldi fólks leit við og listin veitti innblástur.

Menning
Fréttamynd

Hestastelpa úr sveit og sjóð­heitur hönnuður

„Ég er hugfangin af hestum enda eru þeir einstaklega falleg dýr,“ segir listakonan og vöruhönnuðurinn Salóme Hollanders sem hefur algjörlega slegið í gegn með listræna spegla sína og einstök listaverk.

Menning
Fréttamynd

Lista­menn safna fyrir 10 ára dreng á Sel­fossi í dag

Listamenn úr Myndlistarfélag Árnessýslu (MFÁ) standa saman að styrktarviðburði til stuðnings Hinriki Sjørup, 10 ára dreng frá Selfossi, sem glímir við blóðkrabbamein. Hinrik er nú staddur í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti. Söfnunin fer fram í dag, 1. febrúar.

Lífið
Fréttamynd

Jói Fel málar með puttunum

Málverk eftir Jói Fel eins og hann er alltaf kallaður hafa vakið mikla athygli á veggjum Sundhallar Selfoss því þar eru til sýnis fjölmörg verk hans, til dæmis af þríeykinu í Covid og nokkrum heimsfrægum knattspyrnustjörnum. Margar af myndunum málar hann eingöngu með puttunum.

Lífið
Fréttamynd

Líf og fjör í loðnu mál­verkunum

Það var margt um manninn í versluninni La Boutique Design á Granda síðastliðinn laugardag þegar frumlega listakonan Lilý Erla Adamsdóttir opnaði sýninguna Gróðurþel.

Menning