Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 11:01 Laufey Lín átti æðislegan Laufeyjardag í Reykjavík. Instagram Stórstjarnan Laufey Lín mætti til Íslands í síðustu viku. Hún naut sín í botn í Reykjavík um helgina, skellti sér út á lífið með góðum vinum og fagnaði Laufeyjardeginum, sem haldinn var í fjórða sinn síðastliðinn sunnudag.
Dagurinn er orðinn að árlegum viðburði og fór fram sunnudaginn 23. ágúst. Þemað var Fögnum listinni eða „Celebration of the arts“ en tilgangur dagsins er meðal annars að gefa aðdáendum Laufeyjar innsýn í hennar heim og öllu því sem veitir henni innblástur, tónlist, kvikmyndir, dans, leikhús, myndlist og bókmenntir. Yfir 75 borgir í 25 löndum út um allan heim tóku þátt í ár, sem er það mesta hingað til. Laufey fór meðal annars á sýninguna Smáborg, háborg á Kjarvalsstöðum á Laufeyjardeginum.Instagram Laufey virtist full af innblæstri hér í borginni og skellti sér meðal annars á Kjarvalsstaði, horfði á flugeldasýninguna á Hverfisgötu á Menningarnótt og fékk sér matcha-latte með Lin Wei móður sinni. Þá fór á veitingastaðinn Osteria Bari í Hafnarstræti og átti gott kvöld með vinkonum sínum, meðal annars Ingunni Kristjánsdóttur og Carmen Ingu, klappaði kisu með fyrirsætunni Helen Óttarsdóttur og átti góða endurfundi með New York pæjunni Alexöndru Sif, sem starfar hjá Spotify. Laufey og Carmen Inga eru mjög góðar vinkonur og vinna saman.Instagram „Hver dagur er Laufeyjardagur ef þú ert hugrökk. Takk fyrir að fagna með mér á þessu ári, ég vona að dagarnir ykkar hafi verið fullir af matcha og ís og menningarupplifunum og tónlist og gleði,“ skrifaði Laufey á Instagram síðu sína við fullt af skemmtilegum myndum. View this post on Instagram A post shared by laufey (@laufey) Fjöldi aðila hér á Íslandi taka þátt í deginum sem formlegir samstarfsaðilar A Very Laufey Day. Til að mynda var hægt að fá sérstakan Laufey bragðaref í Ísbúð Huppu og Te & Kaffi bauð upp á Matcha Íslatte að hætti Laufeyjar. Í Bíó Paradís var kvikmynd á dagskrá sem Laufey valdi sjálf og Borgarbókasafnið var með sérstakt Laufeyjar-bókasafnskort. Einnig tekur Listasafn Reykjavíkur þátt í deginum en Laufey lét sig ekki vanta á sýningu þeirra Smáborg, háborg.
Laufey Lín Tónlist Samkvæmislífið Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Fleiri fréttir Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Sjá meira