Mál Danny Masterson

Masterson kominn í fangelsi
Leikarinn og nauðgarinn Danny Masterson hefur verið fluttur í almennt fangelsi í Kaliforníu, þar sem hann mun sitja inni í minnst tuttugu og fimm ár. Masterson mun afplána tvöfaldan nauðgunardóm sinn í North Kern fangelsinu í Kaliforníu.

Kutcher stígur til hliðar eftir umdeilt meðmælabréf
Bandaríski leikarinn Ashton Kutcher hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður samtakanna Thorn sem vinna gegn kynferðisofbeldi og mansali. Eiginkona hans og leikkonan Mila Kunis stígur einnig úr sínu hlutverki í samtökunum.

Sækir um skilnað frá Danny Masterson
Bandaríska leikkonan Bijou Phillips hefur sótt um skilnað frá leikaranum Danny Masterson. Masterson var fyrir tveimur vikum dæmdur í þrjátíu ára fangelsi eftir að hafa verið sakfelldur af ákæru um tvær nauðganir.

Umdeild afsökunarbeiðni vegna enn umdeildari bréfa
Leikarahjónin Mila Kunis og Ashton Kutcher hafa sætt harðri gagnrýni nú um helgina eftir að meðmælabréf sem þau skrifuðu um leikarann Danny Masterson voru birt. Masterson var á fimmtudag dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun.

Masterson dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun
Danny Masterson, leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í That ´70 Show, hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Masterson var sakfelldur í vor fyrir að nauðga tveimur konum á árum áður.

„That 70s Show“ leikari dæmdur fyrir nauðgun
Leikarinn Danny Masterson, sem er hvað þekktastur fyrir að leika í þáttunum That ’70s Show, sem nutu mikilla vinsælda um og eftir aldarmótin síðustu, hefur verið sakfelldur fyrir að nauðga tveimur konum. Kviðdómendur komust ekki að niðurstöðu varðandi þriðju nauðgunina sem hann var ákærður fyrir.

Dómari ógildir réttarhöldin yfir Masterson
Dómari ógilti réttarhöld yfir leikaranum Danny Masterson í gær, þar sem kviðdómurinn gat ekki náð saman um niðurstöðu. Masterson var ákærður fyrir þrjár nauðganir og hefur notið stuðnings Vísindakirkjunnar í baráttu sinni gegn ásökununum.

Holskefla ásakana um kynferðisbrot í Hollywood
Ansi margir karlmenn tengdir skemmtanaiðnaðinum voru sakaðir um kynferðisbrot í þessari og síðustu viku.

That '70s Show stjarna ákærð fyrir þrjár nauðganir
Leikarinn Danny Masterson hefur verið ákærður fyrir þrjár nauðganir sem áttu sér stað á árunum 2001 til 2003.

Stjarna úr That 70's Show rekinn eftir ásakanir um nauðgun
Danny Masterson hefur unnið við framleiðslu á gamanþáttunum The Ranch.

Lögregla rannsakar That '70s Show stjörnu vegna kynferðisafbrota
Bandaríski leikarinn Danny Masterson sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í gamanþáttunum That '70s Show er til rannsóknar hjá lögreglu í Los Angeles vegna meintra kynferðisafbrota gegn þremur konum.