Fjármálamarkaðir
1 2 3 4 5 6 … 18 ›
Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Gullverð hefur lækkað nokkuð skarp á heimsvísu síðan á fimmtudag, þegar það náði sögulegum hæðum. Samhliða lækkun gullverðs hefur gengi íslenska námafélagsins Amaroq lækkað um rúmlega ellefu prósent. Viðskipti innlent 2.2.2026 10:57
Viðsnúningur undir lok ársins þegar fjármagn streymdi í hlutabréfasjóði Fjárfestar bættu talsvert við stöðu sína í innlendum hlutabréfasjóði undir lok síðasta árs sem þýddi að hreint flæði fyrir árið í heild sinni var rétt fyrir ofan núllið. Á undanförnum fjórum árum hafa fjárfestar hins vegar almennt sýnt hlutabréfasjóðum lítinn áhuga og beint fjármagni sínu fremur í áhættuminni eignir. Innherjamolar 1.2.2026 12:18
Eik klárar sölu á einu lengsta skuldabréfi sem skráð félag hefur gefið út Fasteignafélagið Eik lauk í gær útboði á nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki til fjörutíu ára, sem er á lokagjalddaga í febrúar árið 2066, en fá dæmi eru um að skráð félög hafi gefið út bréf með svo löngum líftíma á innlendum markaði. Innherjamolar 30.1.2026 09:08
Sameinaður sjóður yrði stærsti hluthafinn í fjölmörgum Kauphallarfélögum Verði af sameiningu Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Birtu, sem myndi búa til risastóran leikanda á íslenskum fjármálamarkaði, þá yrði sjóðurinn stærsti einstaki fjárfestirinn í fjölmörgum skráðum félögum og meðal annars fara með virkan eignarhlut í nokkrum fjármálafyrirtækjum. Innherji 29.1.2026 16:31
„Tókst að kynda undir verðbólgubálið“ og útséð um vaxtalækkanir á næstunni Með skattkerfisbreytingum stjórnvalda um áramótin „tókst heldur betur að kynda undir verðbólgubálið“ en vísitala neysluverðs hækkaði margfalt meira í janúar en meðalspá greinenda gerði ráð fyrir. Verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafa rokið upp og peningastefnunefnd Seðlabankans getur gert lítið annað en „legið á bæn og vonað það besta“, segja sérfræðingar ACRO. Innherji 29.1.2026 12:58
Er hlutlaus eignastýring að valda bólumyndun á hlutabréfamarkaði? Það þýðir ekki að hlutleysinu fylgi skaðleysi að mati gagnrýnenda sem styðja þá skoðun með góðum og gildum rökum. Markaðir þjóna mikilvægu samfélagslegu hlutverki. Þeim er ætlað að beina fjármagninu þangað sem það er hagnýtt með sem skilvirkasta hætti, eitthvað sem hlutlausa fjármagnið hefur ekki skoðun á. Umræðan 24.1.2026 08:53
„Engar teljandi tafir“ orðið í samrunaviðræðum Skaga og Íslandsbanka Þrátt fyrir vendingar innan stjórnar Íslandsbanka, sem er núna undir forystu fjárfestisins Heiðars Guðjónssonar, þá segir forstjóri Skaga að „engar teljandi tafir“ hafi orðið í samrunaviðræðum félaganna að undanförnu og samrunatilkynning til að skila inn á borð Samkeppniseftirlitsins sé langt komin. Sumir hluthafar Íslandsbanka hafa gagnrýnt það sem þeim finnst vera óhagstæð verðlagning á bankanum í fyrirhuguðum viðskiptum og á nýafstöðnum hluthafafundi svaraði bankastjórinn því til að ný stjórn hefði „tæki og tól“ til að endurmeta samninginn. Innherji 23.1.2026 11:20
Þrjú þúsund milljarða skuggabankamarkaður Árleg skýrsla Seðlabankans um gjaldeyrismarkaðinn og gengisþróun er jafnan fróðleg lesning. Í þeirri nýjustu, sem birtist í liðinni viku, er meðal annars að finna þær upplýsingar að umfang gjaldeyrispörunar innan stóru viðskiptabankanna – sem sumir hafa kallað stærstu skuggabankastarfsemi landsins – hafi í fyrra numið samtals um þrjú þúsund milljörðum króna. Hefur sá markaður verið í nokkuð stöðugu ástandi á þeim slóðum undanfarin ár. Innherjamolar 20.1.2026 14:45
Er ósjálfbær fjárlagahalli í boði seðlabanka? Nýleg þróun bendir til þess að kaup Seðlabanka Bandaríkjanna á skuldabréfum teljist ekki lengur bara „peningaleg aðgerð“ heldur snar þáttur í fjármögnun bandarískra stjórnvalda. Því fyrr sem Seðlabankinn og aðrir seðlabankar í svipaðri stöðu átta sig á þessu sjálfskaparvíti, því betra. Umræðan 16.1.2026 10:11
Ríkisbréfakaup erlendra sjóða minnkuðu um tugi milljarða á sveiflukenndu ári Þrátt fyrir talsvert innflæði á síðustu mánuðum ársins þá reyndist samanlögð hrein fjárfesting erlendra sjóða í ríkisskuldabréfum aðeins um þriðjungur af því sem hún var árið áður. Innherjamolar 12.1.2026 10:51
„Óttast“ að næsti gluggi fyrir vaxtalækkun verði ekki fyrr en í maí Verðbólguálagið á skuldabréfamarkaði hefur hækkað skarpt undanfarnar vikur eftir röð neikvæðra verðbólgutíðinda, sem virðist að mestu „heimasmíðað af hinu opinbera“, og búið er að slá verulega á væntingar um vaxtalækkun á næsta fundi peningastefnunefndar. Sérfræðingur á skuldabréfamarkaði segist „óttast“ að næsti gluggi fyrir lækkun vaxta verði ekki fyrr en í vor. Innherji 9.1.2026 17:44
Fjárfestar halda áfram að færa sig yfir í skuldabréfasjóði Talsvert var um innlausnir fjárfesta úr bæði hlutabréfasjóðum og blönduðum sjóðum í nóvember á sama tíma og hreint innflæði í skuldabréfasjóði jókst um milljarða. Innherjamolar 5.1.2026 17:09
Raunhagnaður félaga í Úrvalsvísitölunni jókst í fyrra og verðlagning þeirra lækkaði Mismunurinn á CAPE-hlutföllum OMXI15 og S&P 500 er talsverður, sérstaklega í ljósi þess að nafnávöxtunarkrafa bandarískra ríkisskuldabréfa til lengri tíma er um 3,8% samkvæmt Bloomberg en um 6,6% hér á landi. Umræðan 5.1.2026 10:03
Hvernig fór Warren Buffett að þessu? Warren Buffett hefur lengi verið þekktur og dáður um allan heim fyrir að gera eitthvað sem er í meginatriðum hversdagslegt. Hann er ekki frábær listamaður, uppfinningamaður né methafi í íþróttum. Þess í stað fann hann snilligáfu sinni farveg í þeirri einföldu list að kaupa tiltekin hlutabréf og forðast önnur. Umræðan 2.1.2026 10:59
„Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sterkar vísbendingar eru um að breytingar sem boðaðar eru í nýrri lánastefnu ríkisins geti leitt til lægri fjármagnskostnaðar ríkisins. Þetta segir fjármála- og efnahagsráðherra sem kynnti nýja stefnu í lánamálum ríkisins í gær. Stefnunni er einkum ætlað að bregðast við uppgjöri ÍL-sjóðs fyrr á árinu. Viðskipti innlent 30.12.2025 12:01
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af langþráðum stýrivaxtalækkunum, dramatísku gjaldþroti flugfélags og væringum á alþjóðamarkaði vegna tolla. Viðskipti innlent 29.12.2025 07:00
Er þetta bóla? Miðað við þá mikla möguleika sem gervigreindinni fylgir en einnig gífurlegum fjölda óþekktra stærða, getur nánast enginn sagt með vissu hvort fjárfestar hegða sér óskynsamlega. Ég ráðlegg því engum að setja allt sitt á gervigreindina nema þeir séu tilbúnir að tapa öllu ef illa fer. Umræðan 27.12.2025 10:16
Framvirk gjaldeyrisstaða fjárfesta tók stökk þegar gengi krónunnar veiktist Fjárfestar og fyrirtæki fóru að bæta verulega í framvirka gjaldeyrisstöðu sína núna seint á haustmánuðum samtímis því að gengi krónunnar fór loksins að gefa nokkuð eftir. Þrátt fyrir að lífeyrissjóðirnir hafi á nýjan leik aukið umsvif sín á gjaldeyrismarkaði á síðustu mánuðum er útlit fyrir að heildarkaup ársins verði aðeins í líkingu við það sem þekktist á tímum faraldursins. Innherji 23.12.2025 09:22
Lykilatriði að efla skuldabréfamarkaðinn til að ná niður vöxtum á íbúðalánum Ef það á að takast að ná niður vaxtakjörum á íbúðalánum á Íslandi er „lykilatriði“ að auka aðgengi almennings að skuldabréfamarkaði, sem er núna nánast einokaður af lífeyrissjóðum, og þannig skapa forsendur fyrir því að hægt sé að bjóða upp á langtímafjármögnun, samkvæmt nýrri greiningu. Hlutur einstaklinga á skuldabréfamarkaði er hverfandi, sem er meðal annars afleiðings íþyngjandi regluverks, en þeir beina fjármagni sínu fremur í innlán vegna skorts á öðrum áhættulitlum fjárfestingarkostum. Innherji 22.12.2025 13:38
Markaðsvextir rjúka upp þegar verðbólgan mældist vel yfir spám Ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hefur rokið upp í morgun eftir að nýjar verðbólgutölur sýndu að hún hækkaði langt umfram spár greinenda og mælist núna 4,5 prósent. Tólf mánaða verðbólgan er komin á nánast sama stað og hún var í byrjun ársins. Innherji 22.12.2025 11:10
Minnkar vægi erlendra hlutabréfa og býst við „mun minni uppskeru“ vestanhafs Ólíkt öðrum stærstu lífeyrissjóðum landsins þá hefur Birta sett sér það markmið fyrir komandi ár að minnka áfram vægi erlendra hlutabréfa í eignasafninu. Stjórnendur sjóðsins benda á að með hliðsjón af efnahagshorfum og verðlagningu á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum, einkum í Bandaríkjunum, þá ættu fjárfestar að „vonast eftir hinu besta en undirbúa sig fyrir eitthvað minna.“ Innherji 21.12.2025 13:19
Einkafjárfestarnir sem vilja leiða Heiðar til forystu í stjórn Íslandsbanka Heiðar Guðjónsson, sem fer fyrir hópi sem telur á annan tug einkafjárfesta, hélt áfram að stækka stöðu sína í Íslandsbanka nokkrum dögum áður en hann fór fram á að boðað yrði til hluthafafundar þar sem hann ætlar að sækjast eftir stjórnarformennsku núna þegar félagið er í samrunaviðræðum við Skaga. Þótt beinn stuðningur við Heiðar komi einkum úr röðum umsvifameiri einkafjárfesta, sumir hverjir sem tengjast honum nánum böndum eins og Andri Sveinsson, þá eru einnig ýmsir lífeyrissjóðir sagðir áfram um að hann geri sig gildandi í stjórn bankans. Innherji 18.12.2025 09:29
Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Heiðar Guðjónsson fjárfestir hefur staðfest að hann stefni á framboð til stjórnar Íslandsbanka en hann er stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi bankans. Hann segist hafa fundist vanta tilfinnanlega rödd hluthafa inn í stjórn bankans og tekur sem dæmi síðasta hluthafafund, þar sem aðeins einn hluthafi tók til máls. „Hvaða sirkus er þetta?“ segist hann hafa spurt sig á fundinum. Viðskipti innlent 17.12.2025 11:55
Sjóðir Stefnis stækka hratt stöðu sína í Skaga Hlutabréfaverð Skaga hefur fallið um liðlega fimmtán prósent frá því að hópur fjárfesta, leiddur af Heiðari Guðjónssyni, fór fram á það í byrjun síðustu viku að efnt yrði til stjórnarkjörs hjá Íslandsbanka en fjármálafyrirtækin tvö eiga í formlegum samrunaviðræðum. Hlutabréfasjóðir Stefnis hafa bætt talsvert við stöðu sína í Skaga í þessum mánuði og stærsti einkafjárfestirinn hefur síðustu daga einnig haldið áfram að kaupa í félaginu. Innherji 16.12.2025 11:32
Víxlastabbi ríkissjóðs hefur nærri helmingast á árinu Útistandandi ríkisvíxlar, stutt fjármögnun á háum vöxtum, hafa farið hratt lækkandi á árinu og útlit fyrir að fjárhæð þeirra verði tæplega helmingi minni í árslok borið saman við árið áður. Innherji 14.12.2025 13:21
Framtakssjóður hjá VEX fjárfestir í Kóða og verður stærsti hluthafinn Framtakssjóður í rekstri VEX hefur gengið frá fjárfestingu í hugbúnaðarfyrirtækinu Kóða, sem rekur meðal annars Kelduna, og verður eftir kaupin stærsti einstaki hluthafinn í félaginu. Innherji 10.12.2025 15:20
Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Gengi hlutabréfa í Skaga hefur lækkað um rúm tíu prósent frá opnun markaða í morgun. Hópur hluthafa í Íslandsbanka, sem á í samrunaviðræðum við Skaga, krafðist hluthafafundar og stjórnarkjörs í bankanum í gærkvöldi. Viðskipti innlent 9.12.2025 10:25
Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Framkvæmdastjóri sjóðsstýringarfyrirtækisins Stefnis, fagnar því að fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hafi ákveðið að herða lánþegaskilyrði vegna nýrra sameignasamninga á fasteignamarkaði. Um áttatíu manns hafa sótt um slíka samninga. Stefnir rekur sex sjóði fyrir byggingafyrirtæki sem bjóða upp á formið. Sameignarformið felur í sér að kaupandi semur í raun við Stefni, byggingafyrirtæki og nýja fjárfestingarfyrirtækið Aparta. Viðskipti innlent 5.12.2025 08:02
„Mikilvægt að skrifa ekki undir neitt nema vita hvað það er“ Fjármálastofnanir þurfa nú við útreikning á greiðslubyrði að líta til allra greiðslna sem falla til hjá einstaklingum við kaup á íbúðarhúsnæði, jafnvel þó þeim sé frestað. Fjármálastöðuleikanefnd er með þessu að bregðast við útspili margra verktakafyrirtækja sem bjóða nú upp á nýja fjármögnunarleið. Hún er áhættusamari en almenn íbúðakaup að mati Seðlabankastjóra. Viðskipti innlent 3.12.2025 13:37
Vilja áfram auka vægi erlendra eigna en minnka við sig í innlendum hlutabréfum Engar stórar breytingar eru boðaðar í nýjum fjárfestingarstefnum tveggja af stærstu lífeyrissjóðum landsins, umsvifamestu fjárfestum landsins, en þær eiga það sammerkt að áfram er lögð áhersla á að auka vægi erlendra verðbréfa í eignasafninu á meðan útlit er fyrir minni áhuga á innlendum hlutabréfum. Óvissa hér heima og erlendis hefur aukist en verðlagning á helstu verðbréfamörkuðum utan Íslands, einkum í Bandaríkjunum, er há um þessar mundir sem gæti skilað sér í auknu flökti í verðlagningu sökum meiri undirliggjandi áhættu. Innherji 2.12.2025 16:22