Arion banki
1 2 3 4 5 6 7 … 8 ›
Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Evrópski fjárfestingasjóðurinn, EIF, og Arion banki hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að markmiði að styðja við frumkvöðla hér á landi. Ábyrgð frá EIF, sem er studd af InvestEU áætlun Evrópusambandsins, gerir Arion banka kleift að lána allt að 15 milljarða króna til íslenskra fyrirtækja á hagstæðari kjörum en ella. Viðskipti innlent 25.9.2024 13:20
Ringulreið á lánamarkaði Afborgun á ríflega fjörutíu milljón króna láni hækkar um allt að kvartmilljón á ári eftir vaxtahækkun bankanna. Lántaki sem þurfti að færa sig úr óverðtryggðu láni í verðtryggt segir ringulreið ríkja og kallar eftir aðgerðum stjórnvalda. Innlent 23.9.2024 19:17
Framtakssjóður Stefnis fjárfestir í Örnu og eignast kjölfestuhlut Framtakssjóðurinn SÍA IV í rekstri Stefnis hefur ákveðið að leggja mjólkurvinnslunni Örnu til nýtt hlutafé og jafnframt kaupa eignarhluti af tilteknum hluthöfum félagsins. Fjárfesting sjóðsins á að tryggja uppbyggingu og vöxt Örn en fyrirtækið, sem var með fremur lítil eigið fé um síðustu áramót, velti nærri tveimur milljörðum króna á liðnu ári. Innherji 23.9.2024 13:00
Bóf-ar(ion)? Stundum virðist vera sem svo að ákveðnir aðilar séu bara alls ekki í neinu sambandi við það sem er að gerast út í samfélaginu. Þá er ég auðvitað að tala um bankana. Skoðun 20.9.2024 11:02
Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Fyrir nokkrum dögum skrifaði bankastjóri ágætisgrein á Vísi.is þar sem hann virtist rökstyðja vaxtahækkanir bankans nýverið á verðtryggðum húsnæðislánum með þeirri samlíkingu að nauðsynlegt sé að hækka verð á brauði ef hveitið er orðið dýrara en brauðið sjálft. Skoðun 19.9.2024 16:01
„Merkilega sterkar“ kortaveltutölur drifnar áfram af aukinni neyslu erlendis Heildarvelta innlendra greiðslukorta jókst talsvert í liðnum mánuði, drifin áfram af meiri neyslu Íslendinga á ferðalögum erlendis, og voru tölurnar „merkilega sterkar,“ að sögn hagfræðings í Greiningu Arion banka. Þróunin í kortaveltunni getur gefið vísbendingar um þróttinn í einkaneyslu landsmanna, sem peningastefnunefnd mun horfa til þegar tilkynnt verður um næstu vaxtaákvörðun eftir tvær vikur, en sú fylgni hefur hins vegar veikst nokkuð á árinu. Innherji 18.9.2024 13:06
Hafa ekki tekið ákvörðun um vaxtahækkun Stjórnendur Landsbankans hafa ekki tekið ákvörðun um að feta í fótspor hinna stóru viðskiptabankanna tveggja og hækka vexti á verðtryggðum lánum. Viðskipti innlent 16.9.2024 11:31
„Þetta hefur slæm áhrif á heimilin sem hafa augljóslega minna á milli handanna“ Boðaðar vaxtahækkanir á verðtryggðum húsnæðislánum geta kostað heimilin tugi þúsunda aukalega á mánuði. Þetta endurspeglar vaxtaumhverfið á Íslandi í dag og hefur slæm áhrif á heimilin, segir dósent í viðskiptafræði. Þá gerir það illt verra að ekki standi til að endurnýja almenna heimild til að ráðstafa séreignasparnaði inn á húsnæðislán. Viðskipti innlent 14.9.2024 20:31
Ver vaxtahækkunina: Ekki hægt að selja brauðið ódýrara en hveitið Bankastjóri Arion banka segir að þegar stýrivextir lækki ekki í takt við lækkandi verðbólgu þá hækki verðtryggðir vextir. „Þess vegna þurftum við nýverið að hækka vexti verðtryggðra lána.“ Viðskipti innlent 13.9.2024 15:21
Þegar hveitið er dýrara en brauðið Bankar starfa ekki í tómarúmi. Þeir mótast um margt af því umhverfi sem þeir starfa í. Bankar eiga ekki þá fjármuni sem þeir lána nema að litlu leyti. Meginhlutverk okkar sem störfum í bönkunum er í raun að miðla fjármunum annarra, þ.e. taka við sparifé og miðla því áfram til þeirra sem vilja eða þurfa lánsfé til að fjárfesta; hvort sem það er til einstaklinga sem fjárfesta í íbúðarhúsnæði eða fyrirtækja sem vilja efla starfsemi sína. Miklu skiptir að við förum vel með þá fjármuni sem fólk, fyrirtæki og fjárfestar treysta okkur fyrir. Skoðun 13.9.2024 15:00
Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Vilhjálmur Birgisson segir ákvörðun Arion banka um að hækka vexti á verðtryggðum lánum með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi, sem hann segir hafa fengið að viðgangast á íslenskum fjármálamarkaði um árabil. Neytendur 11.9.2024 16:39
Yfirmaður einkabankaþjónustu Arion hættir eftir sameiningu sviða bankans Forstöðumaður einkabankaþjónustu Arion til margra ára hefur látið af störfum samhliða því að sviðið sameinast við Premíu, þjónustuleið sem er ætluð viðskiptavinum í umfangsmiklum viðskiptum við bankann. Samstæða Arion er með leiðandi stöðu á eignastýringarmarkaði á Íslandi og mun stækka enn frekar með boðuðum kaupum á Arngrimsson Advisors. Innherji 11.9.2024 11:17
Arion banki hækkar vexti hressilega Útlánavextir Arion banka hækka talsvert frá og með deginum í dag. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir hafa ekki tilkynnt vaxtahækkun. Neytendur 11.9.2024 10:19
Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Samkvæmt greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins gæti greiðslubyrði þrjátíu milljóna króna óverðtryggðs íbúðaláns á breytilegum vöxtum lækkað um fimmtíu þúsund króna á mánuði á næsta ári. Neytendur 10.9.2024 10:32
Afkoma Eyris rétti út kútnum eftir að yfirtökutilboð barst í Marel Eftir að hafa tapað samtals nærri hundrað milljörðum samhliða miklu verðfalli á hlutabréfaverði Marels á árunum 2022 og 2023 varð viðsnúningur í afkomu Eyris Invest á fyrri árshelmingi sem skilaði sér í lítilsháttar hagnaði þrátt fyrir að vaxtakostnaður hafi aukist nokkuð milli ára. Virði eignarhlutar Eyris í fjölmörgum fjárfestingafélögum í nýsköpun hélst nánast óbreytt en áður hafði það verið fært niður um marga milljarða. Innherji 10.9.2024 06:32
Samið um kaup bankans á Arngrimsson Advisors Arion banki hefur gengið frá samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Arngrimsson Advisors Limited við hluthafa félagsins. Arngrimsson Advisors hefur sinnt eignastýringarráðgjöf með áherslu á erlenda fagfjárfestasjóði og sérhæfðar fjárfestingar frá árinu 2013. Viðskipti innlent 6.9.2024 14:32
Hagnaður Stefnis minnkar um nærri fjórðung en eignir í stýringu tóku stökk Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, dótturfélag Arion banka, sá hagnað sinn dragast nokkuð saman á fyrri árshelmingi samtímis tekjutapi við áframhaldandi krefjandi aðstæður á innlendum mörkuðum. Virkar eignir í stýringu Stefnis jukust hins vegar á sama tíma verulega, einkum eftir að félagið kláraði fjármögnun á tugmilljarða framtakssjóð vegna kaupanna á leigufélaginu Heimstaden. Innherji 28.8.2024 17:29
Lítil virðisrýrnun hjá bönkum er áhyggjuefni en ekki „eitthvað til að gleðjast yfir“ Óeðlilega lítil virðisrýrnun í bankakerfinu síðastliðna tólf mánuði er „frekar áhyggjuefni en eitthvað til að gleðjast yfir“. Áhrif stýrivaxta koma síðast fram í vanskilum og því sé þessi þróun til marks um ójafnvægi og ofþenslu í hagkerfinu. „Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans síðastliðin þrjú ár hafi ekki verið að bíta nægjanlega fast,“ segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 28.8.2024 13:47
Verðtryggingarskekkja bankanna í hæstu hæðum vegna ásóknar í verðtryggð lán Verðtryggingarskekkja stóru viðskiptabankanna, munurinn á verðtryggðum eignum og skuldum á efnahagsreikningi þeirra, hefur margfaldast á aðeins átján mánuðum samtímis því að heimili og fyrirtæki flykkjast yfir í verðtryggða fjármögnun í skugga hárra vaxta. Skuldabréfamiðlari telur sennilegt að þessi þróun muni halda áfram af fullum þunga á næstunni sem ætti að óbreyttu að viðhalda raunvöxtum hærri en ella. Innherji 13.8.2024 07:01
„Ekkert hrun“ í ferðaþjónustu en stöðnun getur hitt sum fyrirtæki illa fyrir Nýjustu tölur um fjölda gistinátta erlendra ferðamanna í júní benda til þess að það sé „ekkert hrun“ í ferðaþjónustu, að sögn hagfræðinga Arion banka, en fyrir atvinnugrein sem hefur vaxið hratt og fjárfest í samræmi við það getur stöðnun hitt mögulega sum fyrirtæki illa fyrir. Stöðug fækkun að undanförnu í gistinóttum ferðamanna frá Bretlandi, næst fjölmennasta þjóðin til að sækja landið heim, gæti aukið á árstíðarsveifluna en þeir hafa verið duglegir að ferðast til Íslands yfir vetrarmánuðina. Innherji 2.8.2024 14:52
Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2024 var 5,5 milljarðar, samanborið við 7,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins var 9,9 milljarðar, samanborið við 13,4 milljarða fyrstu sex mánuði 2023. Bankastjóri segir margt gott í uppgjöri bankans þrátt fyrir að arðsemismarkmiði hafi ekki verið náð. Viðskipti innlent 25.7.2024 16:35
„Óvænt bakslag“ en ein verðbólgumæling breytir ekki heildarmyndinni Þegar leiðrétt er fyrir sveiflukenndum liðum í vísitölu neysluverðs, ásamt ytri þáttum sem tengjast ekki íslensku hagkerfi, þá virðist verðbólguþrýstingurinn enn vera nokkuð yfir markmiði Seðlabankans þótt hann hafi vissulega minnkað frá því að hann náði hámarki. Óvænt hækkun verðbólgunnar í þessum mánuði breytir ekki heildarmyndinni, að mati hagfræðinga Arion banka, en þeir benda á að verð á bæði innlendum vörum og þjónustu hefur verið að hækka af mikið að undanförnu. Innherji 25.7.2024 11:50
Greinendur vænta þess að afkoma bankanna haldi áfram að versna Greinendur gera að jafnaði ráð fyrir því að hagnaður stóru viðskiptabankanna sem skráðir eru í Kauphöll Íslands muni dragast nokkuð saman milli ára á öðrum ársfjórðungi. Útlit er fyrir að hagnaður bankanna fyrir tekjuskatt dragist saman um 18 til 20 prósent en miðað við þær spár munu þeir ekki ná arðsemismarkmiðum sínum. Innherji 11.7.2024 07:54
Ferðatryggingar og val á kreditkorti Stundum er ég spurð að því hvort ferðatryggingar kreditkorta séu ekki óþarfi þar sem margir eru með heimilistryggingar sem fela einnig í sér tryggingavernd á ferðalögum. Skoðun 3.7.2024 20:01
Uppbygging almannahagsmuna á Íslandi Þá er ég loksins búinn að klára skiptin úr Arion banka í ríkisbankann Íslandsbanka og ég vill endilega hvetja fólk til þess að sniðganga Arion banka. Skoðun 2.7.2024 07:31
Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Arion banki hefur gert sátt við Seðlabanka Íslands og verður gert að greiða sekt að fjárhæð 585 milljóna króna ásamt því að skuldbinda sig til úrbætur vegna brota gegn lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Viðskipti innlent 28.6.2024 16:40
Steinunn Kristín ný í stjórn Varðar Steinunn Kristín Þórðardóttir hefur tekið sæti í stjórn Varðar trygginga. Viðskipti innlent 20.6.2024 08:57
Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Kristján Andrésson hefur tekið við starfi forstöðumanns rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 13.6.2024 11:28
Gæti hallað undan fæti hjá Arion á næsta ári því viðvörunarljós blikka Greinandi gerir ráð fyrir „hraustlegri“ virðisrýrnun útlána hjá Arion banka á næsta ári og spáir því að hún verði meiri en í síðasta verðmati. Það blikka viðvörunarljós sem munu grafa undan gengis- og verðstöðugleika hér á landi. Verðmatsgengi Arion lækkaði um nærri fimm prósent frá síðasta mati en er engu að síður 44 prósentum yfir markaðsgengi. Innherji 31.5.2024 13:58
Gengi bréfa Arion rýkur upp eftir „frábæra“ skuldabréfaútgáfu í evrum Hlutabréfaverð Arion hækkaði skarpt eftir að bankinn kláraði 300 milljóna evra almennt skuldabréfaútboð á hagstæðustu kjörum sem íslenskum bönkum hefur boðist í yfir tvö ár en umframeftirspurnin reyndist meiri en sést hefur í útgáfum evrópskra fjármálafyrirtækja í nokkurn tíma. Alþjóðlegi fjárfestingabankinn JP Morgan, einn umsjónaraðila útboðsins, segir niðurstöðuna endurspegla þann aukna áhuga sem er meðal fjárfesta á skuldabréfum íslenskra banka. Innherji 14.5.2024 17:10