Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Árni Sæberg skrifar 1. júní 2026 10:37 Einar Pálmi, til vinstri, og Hjalti Már, til hægri. Arion banki Hjalti Már Hauksson hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, sem er hluti af fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka. Einar Pálmi Sigmundsson, sem undanfarið ár hefur gegnt starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, tekur við nýju hlutverki á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Hjalti Már hafi starfað við fyrirtækjaþjónustu hjá Arion í um sextán ár og búi því yfir mikilli reynslu, bæði af lánastarfsemi og fyrirtækjaráðgjöf. Hann hafi leitt fjölmörg stór fjármögnunarverkefni og stýrt umfangsmiklum verkefnum í fyrirtækjaráðgjöf á starfsferli sínum. Hjalti Már sé viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með meistarapróf í fjármálahagfræði frá IESE á Spáni. Einar Pálmi muni leiða viðskiptastýringu gagnvart innlendum og erlendum fagfjárfestum og stefnumótun og viðskiptastjórnun þegar kemur að innviða- og fjármögnunarverkefnum á norðurslóðum. Arion banki hafi á undanförnum árum aukið lánveitingar til verkefna á norðurslóðum og breytingin nú marki aukna áherslu á slík verkefni. Einar, sem hafi yfir þrjátíu ára reynslu af fjármálamarkaði, sé viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA-gráðu frá Rotterdam School of Management, próf í verðbréfaviðskiptum og með ACI Diploma í fjárstýringu og gjaldeyrisviðskiptum. „Þetta eru spennandi breytingar í fyrirtækjaráðgjöf og breytingar sem munu efla okkur enn frekar í sókn á norðurslóðum. Hjalti Már er reynslumikill þegar kemur að þjónustu við fyrirtæki og þekkir viðskiptavini okkar vel. Einar Pálmi hefur víðtæka reynslu sem nýtist vel í nýju hlutverki. Þessar breytingar munu auka samstarf á milli lánastarfsemi okkar og fyrirtækjaráðgjafar og gera okkur betur í stakk búin til að grípa spennandi tækifæri á norðurslóðum og þar með auka umsvif okkar á svæðinu enn frekar,“ er haft eftir Hákoni Hrafni Gröndal, framkvæmdastjóra fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs Arion.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Sjá meira