Barnalán

Þrennir þríburar á einni viku mögulega heimsmet
Snjólaug Sveinsdóttir nýburalæknir á vökudeild Landspítala segir að fæðing þrennra þríbura á Landspítala um páskana gæti verið heimsmet. Hún fagnar tíðindunum en segist ekki vita af fleiri væntanlegum þríburafæðingum hér á landi.

Þrennir þríburar fæddust um páskana
Þrennir þríburar fæddust á fæðingardeild Landspítalans um páskana í ár. Tvö ár eru frá því að þríburar fæddust hér á landi. Frá árinu 2006 hafa átján þríburafæðingar orðið á Íslandi, að meðaltali ein á ári.

Þríburar Ástrósar og Margrétar komnir í heiminn
Þær Ástrós Pétursdóttir og Margrét Finney Jónsdóttir eignuðust þríbura þann 12. apríl síðastliðinn. Þríburarnir eru afrakstur einkar vel heppnaðrar tæknifrjóvgunar.

Aron Can birti fyrstu feðgamyndina
Tónlistarmaðurinn Aron Can birti fyrstu myndina af sér og frumburðinum á samfélagsmiðlum.

Kolbrún og Ísak eiga von á sínu fyrsta barni
Fimleikadrottningin Kolbrún Þöll Þorradóttir á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum Ísak Óla Helgasyni. Parið tilkynnti gleðifréttirnar á Instagram.

Pétur Jóhann nú fyndnasti afi landsins
Fjölmiðlamaðurinn og grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon varð afi á dögunum þegar lítið stúlkubarn kom í heiminn miðvikudag fyrir páska.

Hildur og Gísli eignuðust „lítinn páskaunga“ á skírdag
Hildur Sverrisdóttir alþingismaður og sambýlismaður hennar, Gísli Árnason, hafa eignast dreng. Drengurinn er þeirra fyrsta barn saman en fyrir á Gísli þrjú börn.

Búin að eignast tvíburana
Bandaríska leikkonan Hilary Swank er búin að eignast tvíbura. Hin 48 ára leikkona greindi frá gleðitíðindunum á Instagram í gær.

Aron Can og Erna María eignuðust son
Söngvarinn Aron Can og kærasta hans Erna María Björnsdóttir eignuðust son þann 3. apríl síðastliðinn.

Love Island-stjarna eignaðist dóttur
Love Island-stjarnan Shaughna Phillips eignaðist dótturina Luciu á þriðjudaginn 4. apríl síðastliðinn. Þetta er frumburður raunveruleikastjörnunnar.

Katrín Halldóra og Hallgrímur eiga von á barni
Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Hallgrímur Jón Hallgrímsson, trommuleikari Sólstafa, eiga von á sínu öðru barni saman.

Paris Hilton birtir myndir af frumburðinum
Raunveruleikastjarnan Paris Hilton hefur nú birt fyrstu myndirnar af frumburði sínum á Instagram-síðu sinni. Hilton og eiginmaður hennar Carter Reum eignuðust drenginn í janúar á þessu ári og fékk hann nafnið Phoenix Barron Hilton Reum.

María Rut og Ingileif eignuðust dóttur
Hjónin Ingileif Friðriksdóttir, sjónvarps- og fjölmiðlakona, og María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women, hafa eignast stúlku

Lína Móey og Sigurður eiga von á barni
Lína Móey Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Leigumanna ehf., og Sigurður Karlsson, framkvæmdastjóri iCert, eiga von á barni.

Kaley Cuoco orðin móðir
Leikkonan og Íslandsvinkonan Kaley Cuoco er orðin móðir. Hún og kærasti hennar, Tom Pelphrey, eignuðust sitt fyrsta barn á fimmtudaginn.

Leikkona á sjötugsaldri gagnrýnd fyrir að nota staðgöngumóður
Spænska leikkonan Ana Obregón sætir nú gagnrýni í heimalandi sínu eftir að hún upplýsti að hún hefði eignast barn með milligöngu staðgöngumóður. Obregón, sem er fyrst og fremst þekkt fyrir að leika í sjónvarpsþáttum, er 68 ára gömul.

Harry Potter-stjarna fjölgar muggkyninu
Enski leikarinn Daniel Radcliffe, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á töfrastráknum Harry Potter, og Erin Darke, bandarísk kærasta hans, eiga von á sínu fyrsta barni. Parið hefur verið saman í tíu ár.

Á tólf börn en sér eftir því að hafa ekki barnað Christinu Milian
Grínistinn Nick Cannon segist sjá eftir því að hafa ekki eignast barn með fyrrverandi kærustu sinni, Christinu Milian. Cannon hefur vakið mikla athygli fyrir barnalán sitt á síðustu árum en hann hefur eignast tólf börn með sex konum.

Succession-stjarna á von á barni
Ástralska leikkonan og Succession-stjarnan Sarah Snook og eiginmaður hennar David Lawson eiga von á barni. Hin 35 ára Snook afhjúpaði óléttubumbuna í frumsýningarpartýi fjórðu þáttaraðar Succession í New York í gærkvöldi.

Berglind Ósk á von á barni
Þingkonan Berglind Ósk Guðmundsdóttir og unnusti hennar Daníel Matthíasson verkefnastjóri eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Saga og Villi eignuðust son
Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir og Vilhelm Anton Jónsson, oftast þekktur sem Villi naglbítur, eignuðust son fyrr í mánuðinum.

Lindsay Lohan er ólétt
Leikkonan Lindsay Lohan og eiginmaður hennar, Bader Shammas, eiga von á sínu fyrsta barni. Þau gengu í það heilaga á síðasta ári eftir að hafa verið trúlofuð í tæpt ár.

The Ellen DeGeneres Show stjarnan Sophia Grace er orðin móðir
Barnastjarnan Sophia Grace Brownlee, sem sló eftirminnilega í gegn í The Ellen DeGeneres Show, hefur eignast sitt fyrsta barn. Hún komst í sviðsljósið aðeins átta ára gömul þegar hún rappaði lagið Super Bass með Nicki Minaj ásamt frænku sinni Rosie McClelland.

Sonur Rihönnu og A$AP Rocky sprengir krúttskalann
Ónefndur sonur tónlistarparsins Rihönnu og A$AP Rocky er líklega eitt frægasta barn heims án þess að hann hafi nokkra hugmynd um það. Á nýrri mynd sem Rihanna birti af drengnum í gær sprengir hann alla krúttskala.

Barnalán hjá blaðamannapari
Sunna Karen Sigurþórsdóttir, fréttamaður á RÚV, og Viðar Guðjónsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Sunna Karen greinir frá tímamótunum á Instagram.

Knattspyrnupar eignaðist son
Knattspyrnufókið Fanndís Friðriksdóttir og Eyjólfur Héðinsson eignuðust fyrr í vikunni son. Þetta er þeirra annað barn en fyrir tveimur árum eignuðust þau dóttur.

Vildi vera fyrst til að birta myndir af syni sínum
Ofurstjarnan, tónlistarkonan og tískumógúllinn Rihanna prýðir forsíðu breska Vogue tímaritsins í mars mánuði ásamt fjölskyldu sinni. Í samtali við Vogue ræðir hún opinskátt um móðurhlutverkið og segir allt annað í lífinu ómerkilegt í samanburði við það.

Kristrún búin að eiga
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og eiginmaður hennar, Einar B. Ingvarsson, eignuðust dóttur í byrjun febrúar. Þetta er þeirra annað barn en fyrir eiga þau dóttur sem fæddist árið 2019. Dóttirin hefur fengið nafnið Ragnhildur Steinunn.

Gummi Tóta og Guðbjörg eignuðust stúlku
Fyrir helgi eignuðust knattspyrnumaðurinn og tónlistarmaðurinn Guðmundur Þórarinsson og kærasta hans, Guðbjörg Ósk Einarsdóttir, dóttur. Þetta er fyrsta barn parsins.

Kolbeinn Sigþórs og Kristín Helga eignuðust dóttur
Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson og Kristín Helga Þorsteinsdóttir hafa eignast dóttur.