HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026.

Leikirnir




    Fréttir í tímaröð

    Fréttamynd

    Stoltur af argentíska liðinu

    Enzo Fernandez segir að argentíska landsliðið hafi verið landi sínu til sóma á heimsmeistaramótinu. Fernandez fékk rautt spjald í úrslitaleiknum og hefur hegðun argentíska liðsins í úrslitaleiknum verið gagnrýnd.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Argentína nú þegar undir rann­sókn

    Fifa mun líklegast setja af stað rannsókn vegna skammarlegrar hegðunar leikmanna argentíska landsliðsins eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fifa er nú þegar að rannsaka Argentínu eftir að liðið hélt á pólitískum borða eftir leik Argentínu og Englands.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Horfðu á alla leiki HM í gler­kassa

    Tveir menn geta sagt að þeir hafi átt vægast sagt skemmtilegt sumar þar sem þeir fengu borgað af Fox í Bandaríkjunum fyrir að horfa á alla leiki HM í glerkassa á Times Square. Um sex þúsund manns sóttu um að horfa á leikinn í kassanum.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Sárs­aukinn er gríðar­legur“

    Lionel Messi er virkilega sár eftir að hafa tapað úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Hann reynir þó að horfa á mótið með bjartsýnisaugum og hugsar um allar góðu stundir mótsins.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Hefur þjálfað hetjuna sína í fjórum landsliðum

    Það var Barcelona-leikmaður sem tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn, bara kannski ekki sá Börsungur sem flestir bjuggust við. Ferran Torres kom inn á sem varamaður í úrslitaleiknum og skoraði sigurmark Spánverja í framlengingunni.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Haaland fékk þrjá­tíu milljónir nýrra fylgj­enda

    Norski knattspyrnumaðurinn Erling Braut Haaland hefur fengið um þrjátíu milljónir nýrra fylgjenda á Instagram á meðan heimsmeistaramótið í fótbolta stóð yfir. Hann er frábær inni á vellinum og skemmtilegur á samfélagsmiðlum sem er góð blanda á móti sem heltekur allan heiminn.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Stjörnurnar skinu skært í stúkunni

    Spánverjar unnu Argentínumenn í spennuþrungnum úrslitaleik Heimsmeistaramótstins í knattspyrnu á MetLife-leikvanginum í Miami í gær. Stjörnurnar skinu skært á vellinum en í stúkunni var ekki minna um stjörnufans.

    Lífið
    Fréttamynd

    Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri

    Rodri leiddi Spánverja til heimsmeistaratitilsins í gær og var í framhaldinu kosinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins. Það tók hann langan tíma að ná sér af erfiðum hnémeiðslum en hann sýndi á þessu heimsmeistaramóti af hverju hann er besti miðjumaður heims.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Hetjan Torres: „Þetta voru ör­lögin“

    Ferran Torres reyndist hetja Spánar gegn Argentínu í úrslitaleik HM 2026. Hann skoraði eina markið í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar. Torres segir að þungu fargi hafi verið af sér létt þegar hann sá boltann í netinu.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Spán­verjar heims­meistarar

    Spánn varð í kvöld heimsmeistari í fótbolta karla í annað sinn eftir 1-0 sigur á Argentínu í framlengdum úrslitaleik á MetLife-leikvanginum í New Jersey. Ferran Torres skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar.

    Fótbolti